Útgjöld til rannsókna og þróunar mun hærri í Svíþjóð og Danmörku en á Íslandi

Útgjöld til rannsókna og þróunar hérlendis hækkuðu sem hlutfall af lands­framleiðslu úr 1,76 ´í 2,19 prósent frá byrjun árs 2013 og fram að síðustu áramótum. Hlut­fallið er nú sambærilegt og það er í Frakk­landi og Slóvenínu en töluvert lægra en í Svíþjóð (3,07 prósent), Danmörku (3,03 prósent) og Finnlandi (2,9 prósent). Ísland er nú komið yfir meðaltal Evrópu­sambands­ríkja, en það er 2,04 prósent. Vert er að taka fram að mjög misjafnt er milli ríkja sambandsins hversu háu hlutfalli af þjóðar­framleiðslu þau eyða í rann­sóknir og þróun. Auk ofan­greindra Norður­landaþjóða eyða Austur­ríki, Þýskaland, Belgía, Frakkland og Slóvenía hærra hlutfalli af þjóðar­framleiðslu í rann­sóknir og þróun en Íslendingar. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.

Í síðasta mánuði birti Hagstofan annars konar tölur um útgjöld til rann­sóknar- og þróunar­starfs á Íslandi. Þar kom fram að þau hefðu verið 48,5 millj­arðar króna í fyrra og juk­ust umtals­vert á milli ára. Aukn­ing­una er fyrst og fremst hægt að rekja til þess að fyr­ir­tæki eyði meira fé í rann­sóknir og þró­un. Á ein­ungis tveimur árum juk­ust útgjöld íslenskra fyr­ir­tækja sem runnu í rann­sóknir og þróun úr 18,7 millj­örðum króna í 31,4 millj­arða króna, eða um 68 pró­sent.

Líkt og kemur fram hér að ofan þá er ekki ein­ungis krónu­talan sem fer í rann­sóknir og þróun sem er að hækka. Hlut­fall af lands­fram­leiðslu sem eytt er í að finna nýjar leiðir til að auka fram­leiðni og skapa vöxt hefur einnig auk­ist. Árið 2013 voru útgjöld fyr­ir­tækja og stofn­anna í rann­sóknir og þróun 1,76 pró­sent af lands­fram­leiðslu, árið 2014 2,01 pró­sent og í fyrra 2,19 pró­sent.

Laga­breyt­ing í ár stórt fram­fara­skref

Íslenski tækni- og hug­verka­geir­inn hefur kallað mjög eftir því á und­an­förnum árum að starfs­um­hverfi hug­verka­fyr­ir­tækja með alþjóð­lega starf­semi á Íslandi yrði gert skap­legra. Fyrr á þessu ári voru sam­þykktar breyt­ingar á lögum þess efn­is, sem þóttu mikið fram­fara­skref. Í þeim fólst meðal ann­ars að gerð var sú breyt­ing að skattaí­viln­anir til nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja vegna rann­sókn­ar- og þró­un­ar­kostn­aðar voru hækk­aðar veru­lega. Hámark slíks kostn­aðar til almennrar við­mið­unar á frá­drætti fór úr 100 millj­ónum króna í 300 millj­ónir króna og úr 150 í 450 millj­ónir króna þegar um aðkeypta rann­sókn­ar- og þró­un­ar­þjón­ustu er að ræða frá ótengdu fyr­ir­tæki, háskóla eða rann­sókna­stofn­un. Þá fólst einnig í þeim að erlendir sér­fræð­ingar sem ráðnir verða til starfa hér­lendis munu ein­ungis þurfa að greiða skatta af 75 pró­sent af tekjum sínum í þrjú ár.

Hilmar Veigar Pét­urs­son, for­stjóri CCP, sagði í við­tali við Kjarn­ann í október að þessar breyt­ingar hafi verið mjög mik­il­væg­ar. Fyrir þessu hafi hann, og fleiri í geir­an­um, talað í ára­tug. „Við fundum að nú var tím­inn. Það var ekki þessi bar­átta að koma þessu í gegnum stjórn­mála­menn­ina eins og það hefur ver­ið. Fólk var til­búið að hlusta og skilja. Þegar það er komið á þann stað þá eru þetta svo mikil skyn­sem­is­mál. Þau eru ekk­ert umdeild, eða ættu ekk­ert að vera það. Það er ekki verið að útdeila tak­mörk­uðum gæðum eða verið að taka úr einu og setja í ann­að.

Við fundum það núna að orðum myndi fylgja aðgerð­ir. Það hefur oft vantað upp á það og verið meira um orða­gjálfur eða 17. júní ræð­ur. Ég vill hrósa Bjarna Bene­dikts­syni og fjár­mála­ráðu­neyt­inu hástert fyrir að hafa komið þessu í gegn.

Ég myndi samt sem áður vilja að þakið á frá­drætt­inum vegna rann­sóknar og þró­unar yrði alveg afnumið. Núna rúm­ast bara lítil fyr­ir­tæki undir því. Það leiðir til óeðli­legrar hegð­un­ar. Það eru engin vís­indi á bak við þessar tölur sem voru ákveðn­ar. Þetta er bara ein­hver þæg­ind­ara­mmi sem er ekki studdur neinu sér­stöku.“

Hlutur í lands­fram­leiðslu 9,6 pró­sent

Hag­stofa Íslands hóf nýverið að taka sér­stak­lega sam­an, og birta, hag­tölur fyrir íslenska tækni- og hug­verka­iðn­að­inn. Við það kom í ljós að hann er sá iðn­aður sem á stærstan hlut í lands­fram­leiðslu á Íslandi. Alls er hlutur iðn­að­ar­ins í lands­fram­leiðsl­unni 9,6 pró­sent. Áður hafði tækni- og hug­verka­iðn­að­ur­inn verið flokk­aður í hinu víða mengi „eitt­hvað ann­að“.

Í nýlegri úttekt Arion banka á ferða­þjón­ustu á Íslandi sagði að hlut­fall grein­ar­innar í lands­fram­leiðslu sé átta pró­sent. Stand­ist þær tölur er meiri fram­leiðni í tækni- og hug­verka­iðn­aði en í ferða­þjón­ustu sem stend­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár