Óhófleg inntaka á bætiefnum varasöm

Bætiefni hafa lík­lega aldrei notið eins mik­illa vin­sælda og akkúrat núna. Auk bæti­efna í töflu- og duft­formi er prótein­drykki, prótein­stykki og hið sívin­sæla Nocco að finna í nær hverri mat­vöru­verslun.

Þrátt fyrir vin­sæld­irnar er þekk­ingin á ágætum þeirra sem við­bót við ann­ars hollt matar­æði enn nokkuð tak­mörkuð. Nýlegar nið­ur­stöður rann­sóknar á músum bendir til þess að mikil inn­taka á svoköll­uðum BCAA amínó­sýrum geti í raun valdið meiri skaða en ávinn­ingi.

Meg­in­nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar, sem fram­kvæmd var af rann­sókn­ar­hópi við Sydney-háskóla, var sú að inn­taka á of miklu próteini geti leitt til nei­kvæðra áhrifa á borð við þyngd­ar­aukn­ingu, nei­kvæðra áhrifa á lund og jafn­vel stytt líf við­kom­andi.

Lífsnauðsynlegar amínósýrur

Amínó­sýrur eru bygg­ing­ar­efni próteina og eru þær sem manns­lík­am­inn nýtir 20 tals­ins. Af þeim eru níu sem lífs­nauð­syn­legt er að við fáum úr fæð­unni okkar. Ef við fáum nægi­lega mikið af þeim getur lík­am­inn sjálfur fram­leitt hinar 11.

Mörg bæti­efni inni­halda BCAA eða grein­óttar amínó­sýrur (e. branched chain amino acids). BCAA amínó­sýr­urnar eru þrjár lífs­nauð­syn­legar amínó­sýrur: leucine, isoleucine og valine. BCAA amínó­sýrur er meðal ann­ars að finna í rauðu kjöti, linsu­baunum, hnetum, fiski, kjúklingi og eggjum. Þær ein­kenn­ast af því að þær eru brotnar niður í vöðvum ólíkt hinum sex nauð­syn­legu amínó­sýr­unum sem brotnar eru niður í lifr­inni.

Flest prótein­bæti­efni inni­halda BCAA amínó­sýrur en algengt er að þeir sem stunda lík­ams­rækt taki auk þess inn BCAA til við­bótar við það. Með snjallri mark­aðs­setn­ingu hefur BCAA ekki síður notið vin­sælda meðal þeirra sem ekki endi­lega stunda mikla lík­ams­rækt heldur heill­ast af góðu bragði, fal­legum umbúðum og koff­ín­inni­haldi drykkja á borð við Nocco og Amino Energy.

„Inntaka á of miklu próteini geti leitt til nei­kvæðra áhrifa á borð við þyngd­ar­aukn­ingu, nei­kvæðra áhrifa á lund og jafn­vel stytt líf við­kom­andi“

Áhrif á mýs könnuð

Í rann­sókn­inni sem um ræðir voru áhrif BCAA amínó­sýra og ann­arra lífs­nauð­syn­legra amínó­sýra á mýs könnuð. Músunum var ýmist gef­inn hefð­bund­inn skammtur af BCAA amínó­sýrum, tvö­faldur skammtur, hálfur skammtur eða einn fimmti skammtur af því sem telst eðli­leg BCAA inn­taka.

Þær mýs sem fengu tvö­faldan skammt af BCAA reynd­ust í kjöl­farið éta mark­tækt meira en aðrar mýs í rann­sókn­inni. Þessi hegðun leiddi til ofþyngdar og styttri ævi sam­an­borið við aðra hópa í rann­sókn­inni.

Ástæðan fyrir þessu var rakin til þess að aukið magn á BCAA amínó­sýrum keppti við flutn­ing á annarri amínó­sýru, tryptoph­ani, til heil­ans. Tryptophan er eini und­an­far­inn fyrir horm­ónið serótónín. Serótónin er meðal ann­ars vel þekkt vegna áhrifa þess á lund fólks og er gjarnan kallað ham­ingju­horm­ónið. Í mús­unum í rann­sókn­inni leiddu lægri gildi af serótóníni í heil­anum til þess að lík­am­inn fékk merki um að það að inn­byrða meiri fæðu með fyrr­greindum afleið­ingum.

Áhrif á mannfólk

Mýs og menn er aug­ljós­lega um margt ólíkar dýra­teg­undir svo ljóst er að erfitt er að draga álykt­anir um það hvort það nákvæm­lega sama sé upp á ten­ingnum þegar við mann­fólkið tökum inn ofgnótt af BCAA amínó­sýrum.

Nið­ur­stöð­urnar minna okkur þó á það hversu mik­il­vægt það getur verið að huga að jafn­vægi í matar­æði okkar. Bæti­efnin sem slík eru ekki endi­lega slæm fyrir heils­una. Þessar nið­ur­stöður ítreka fremur mik­il­vægi þess að ekki sé lögð of mikil áhersla á eina gerð prótein­gjafa. Fremur sé lyk­il­at­riði að gæta að því að valdir séu fjöl­breyttir orku­gjafar af prótein, fitu og kol­vetnum til að koma í veg fyrir ójafn­vægi í inn­töku á nær­ing­ar­efnum.

Niðurstöður rannsóknarinnar birtust í tímaritinu Nature Metabolism.

Ítarefni:

https://www.sciencealert.com/overdoing-protein-supplements-for-fitness-could-be-harmfull

https://www.nature.com/articles/s42255-019-0059-2

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár