Lýsir ósýnileika þunglyndis: Brosandi og hrósandi með sjálfsvígshugsanir

„Myrkrið var orðið svo þétt og mér fannst ég vera svo mikil byrði með vesen og hafa valdið svo miklum vonbrigðum að eina rökrétta leiðin væri að kveðja,“ segir Olga Björt Þórðar­dóttir, ritstjóri Hafnfirðings, sem lýsir reynslu sinni af þunglyndi.

Olga Björt Þórðar­dóttir, ritstjóri Hafnfirðings, lýsir því í áhrifa­ríkri færslu á Facebook hversu ósýnilegt þunglyndi getur verið jafnvel þótt það leggist þungt á viðkomandi. „Ósýni­leiki þessa sjúkdóms lýsti sér til dæmis þannig hjá mér þannig að sömu daga og ég var í rusli var ég hrósandi fólki á messenger, brosandi með mynda­vélina á viðburðum og að reyna að selja auglýsingar í blaðið mitt.“

Sjálf var hún komin á þann stað að hún óttaðist um líf sitt, þegar hún fékk loks hjálp frá vinkonu sinni og sálfræðingi við að gefa lífinu annan séns. „Myrkrið var orðið svo þétt og mér fannst ég vera svo mikil byrði með vesen og hafa valdið svo miklum vonbrigðum að eina rökrétta leiðin væri að kveðja,“ segir hún. 

„Þegar ég lít til baka sé ég hversu ógnvæn­lega ósýni­legur sjúkdómur þunglyndi getur verið. Meira að segja mín nánustu spottuðu það ekki frekar en ég og ég hef í raun ekki viljað ræða þennan dag við þau, þótt ég viti að þau elska mig og vilja mér vel. Það er of sárt. Það fylgir því nefnilega ofan á allt skömm að hafa „látið sér“ detta slíkt dómgreindar­leysi í hug. Dagana og vikurnar á undan hafði ég líka bætt eigið Norður­landamet í sjálfs­niðurrifi sem algengt er meðal þung­lyndra.“

Á Íslandi þjást 12 til 15 þúsund manns af þunglyndi á hverjum tíma. Þótt þunglyndi sé svo algengt gerir fólk sér oft litla grein fyrir eðli sjúk­dómsins og þar gætir oft misskilnings, samkvæmt upplýsingum frá Land­spítalanum. Orsaka er að leita í flóknu samspili arfgengra áhættu­þátta, áfalla og viðvarandi álags sem móta viðbrögð einstaklingsins gegn streitu og áföllum og auka líkur á sjúklegu þunglyndi. Síðastliðin áratug hafa sjálfsvíg að meðaltali verið 39 á ári, samkvæmt tölum frá Embætti land­læknis. En það er hægt að fá hjálp, eins og Olga bendir á, en hún vísar meðal annars á Píeta-samtökin sem veita fyrstu hjálp fyrir fólk í sjálfsvígs­hættu. 

Nú er rúmt ár síðan hún fékk viðeigandi aðstoð og það er erfitt að hugsa til baka og til þess hversu hætt hún var komin, þegar tímamótin runnu upp var hún komin með kvíðahnút og öran hjartslátt. Í dag er lífið hins vegar mun betra en áður, hún er komin á rétt lyf, líður betur og hefur lært mjög mikið um mannlegt eðli, áhrif andlegs ofbeldis, meðvirkni og þolenda­skömmunar. „Ég ætla að nýta þessa þekkingu áfram í störfum mínum og verkefnum og vona að ég geti komið að gagni. Ég ætla líka að halda áfram að sýna dætrum mínum fram á að það er hægt að rísa upp (enn og aftur) eins og Fönix og brjálast úr hamingju. Þannig er lífið.“

Færslu Olgu má lesa hér að neðan:

Þann 20. september 2020 fékk ég ómetanlega hjálp frá vinkonu og sálfræðingi við að gefa lífinu annan séns, þegar myrkrið var orðið svo þétt og mér fannst ég vera svo mikil byrði með vesen og hafa valdið svo miklum vonbrigðum að eina rökrétta leiðin væri að kveðja.

Þegar ég lít til baka sé ég hversu ógnvæn­lega ósýni­legur sjúkdómur þunglyndi getur verið. Meira að segja mín nánustu spottuðu það ekki frekar en ég og ég hef í raun ekki viljað ræða þennan dag við þau, þótt ég viti að þau elska mig og vilja mér vel. Það er of sárt. Það fylgir því nefnilega ofan á allt skömm að hafa „látið sér“ detta slíkt dómgreindar­leysi í hug. Dagana og vikurnar á undan hafði ég líka bætt eigið Norður­landamet í sjálfs­niðurrifi sem algengt er meðal þung­lyndra. 

Ósýni­leiki þessa sjúkdóms lýsti sér t.d. hjá mér þannig að sömu daga og ég var í rusli var ég hrósandi fólki á messenger, brosandi með mynda­vélina á viðburðum og að reyna að selja auglýsingar í blaðið mitt. Blaðið sem var umbrotið daginn eftir, 21. september, með hjálp sobril og elsku umbrots­mannsins sem gaf mér rými til að eiga skrýtinn dag.

Þann sama dag fékk ég tölvupóst um að ráðið hefði verið í stöðu sem ég sótti um; sérfræðing hjá embætti forseta Íslands. Ég samgladdist svo innilega konunni sem fékk starfið (já, þung­lyndir geta átt auðvelt með að samgleðjast) því ég þekki hana, að ég svaraði póstinum með hamingju­óskum til skrif­stofu embættisins um að þarna hefðu þau valið hæfustu manneskjuna. Beint frá hjartanu.

22. september dreifði ég blaðinu mínu um bæinn og á þeim rúnti fékk ég óvænt skilaboð frá sjálfum forsetanum (núna vini mínum) þar sem hann sagðist hafa séð tölvu­póstinn til embættisins og þakkaði mér fyrir stór­mennskuna, því hún væri ekki öllum fær og óskaði mér síðan alls góðs. Ég horgrenjaði af þakklæti í klukku­tíma á bílastæði Fjarðar­kaupa. Ég bið elsku Guðna að fyrirgefa mér að opinbera þetta en ég geri það fyrst og fremst til að sýna fram á hversu auðveldlega hrós og hlýja geta bjargað dögum fólks. Og hversu einstök manneskja og mannvinur hann er.

Í dag er lífið fallegt og gott. Ég er komin á rétt lyf og hef á einu ári lært ótal margt í viðbót við fyrri þekkingu um mannlegt eðli, áhrif andlegs ofbeldis, meðvirkni og þolenda­skömmunar (sem tengist öllu ofbeldi, ekki bara kynferðis-). Ég ætla að nýta þessa þekkingu áfram í störfum mínum og verkefnum og vona að ég geti komið að gagni. Ég ætla líka að halda áfram að sýna dætrum mínum fram á að það er hægt að rísa upp (enn og aftur) eins og Fönix og brjálast úr hamingju. Þannig er lífið.

Einn góður maður sem ég er búin að þekkja lengi sagði við mig í sumar: „Hættu að skrifa þessar löngu færslur þínar. Það les þetta enginn.“ Hann vissi ekki betur og les þetta mögulega ekki...haha. Hann vissi ekki um hóp yndislegs fólks sem ég hef tengst sterkum böndum undan­farin ár einmitt vegna þess að það hefur tengt við færslurnar og við lært mikið hvert af öðru. Tengingar geta bjarga manns­lífum.

Við berum ábyrgð sem persónur og leikendur í lífi annarra. Við höfum alltaf val um framkomu og orðalag og jafnvel að láta bara kyrrt liggja ef eitthvað pirrar okkur. Við getum oftar valið að vera nærvera án þess að dæma og ráðleggja, þótt við getum ekki sett okkur í spor eða jafnvel skiljum ekki. Við getum í það minnsta hugsað okkur um.

Það eru Alþingis­kosningar framundan. Ég er ávallt hlutlaus þar til í kjör­klefann er komið. Ég á eftir að kynna mér almennilega stefnumál fram­boðanna, en það eru miklar líkur á að atkvæði mitt fari til þeirra sem ætla að tryggja betra geðheil­brigðis­kerfi. Við verðum að hysja upp um okkur í þeim mála­flokki og eyða biðlistum. Yfir og út. ❤

Píeta sam­tökin, sími 552 2218.
Kt. 410416-0690, reikn 0301-26-041041

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár