Segir „feit kosningafjárlög“ í vændum: „Sjálfstæðisflokkurinn er að kaupa sér tíma“

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar gagn­rýndu Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra harð­lega undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta.

„Stjórn­ar­flokk­arnir hlakka til að halda til fundar við kjós­endur,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í umræðum um fund­ar­stjórn for­seta á Alþingi í dag.

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar sóttu hart að ráð­herr­anum og kröfð­ust afsagnar hans. „Skatta­mála­ráð­herra situr enn og er sjálfur í Panama-skjöl­unum. Þetta er óásætt­an­legt,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir, þing­kona Vinstri grænna. „Hvar á byggðu bóli í ver­öld­inni gæti fjár­mála­ráð­herra, æðsti yfir­maður skatta- og rík­is­fjár­mála í land­inu, setið á ráð­herra­stóli eftir aðra eins afhjúpun og nú hefur verið gert á þátt­töku hans og aðild að aflands­fé­lagi í skatta­skjóli?“ sagði Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar.

Róbert Marshall, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, tók í sama streng og sagði rík­is­stjórn­inni ekki hafa tek­ist að rök­styðja hvers vegna eðli­legt væri að hún sæti áfram. „Hún hefur við­ur­kennt það að hún er að hrökkl­ast frá völdum. Við erum stödd í miðju bílslysi sem sýnt er hægt,“ sagði hann. „Trú­verð­ug­leik­inn er eng­inn, traustið er farið og það er ekk­ert sem rétt­lætir það að hún sitji áfram.“

Þá full­yrti Róbert að rík­is­stjórn væri að reyna að kaupa sér tíma. „Planið var nefni­lega að kaupa tíma. Að fresta og fá tíma til þess að grípa til aðgerða sem mögu­lega myndu hífa upp fylgið. Það sem við okkur blasir er afreka­skrá rík­is­stjórnar sem ætl­aði að halda öllu að sér í þrjú ár og koma svo með feit kosn­inga­fjár­lög á fjórða árinu. Það er það sem við okkur blasir. Við erum að fjalla um sam­göngu­á­ætlun núna og tala við sveit­ar­stjórn­ar­fólk og það er í sjokki. Það er í upp­námi vegna ástands­ins í sam­göngum þjóð­ar­innar. Þjóðin öll er í upp­námi yfir ástand­inu í heil­brigð­is­kerf­inu, það sama er að segja um mennta­kerfið, en það átti að gefa í fjórða árið og kaupa sér með fjár­munum almenn­ings vin­sældir. Og það sem nú er að ger­ast er að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er að kaupa sér tíma til að hífa upp fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins. Því það ætlar eng­inn annar með þeim í stjórn, hverjum myndi detta það í hug þegar afreka­skráin er eins og hún er? Þegar fram­tíð­ar­sýnin er eins og hún er? Þegar virð­ingin fyrir umræð­unni og almenn­ingi í þessu landi er eins og raun ber vitni. Hún er fyrir neðan allar hellur.“ 

Bjarni Bene­dikts­son greip fram í fyrir Róberti og spurði hvort þetta væri hin nýja umræðu­hefð Bjartrar fram­tíðar. Þá gagn­rýndi hann þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar fyrir að tala um traust sín til undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta. „Ef að ein­staka þing­menn vilja koma með van­traust­s­til­lögu á ráð­herra þá skulu þeir bara gera það,“ sagði hann. „Og talandi um traust, mættu ekki sumir þeirra sem stigu hér upp líta kannski aðeins í eigin barm og spyrja sig, hvernig er traustið til við­kom­andi stjórn­mála­flokka? Stað­reyndin er sú, að stjórn­ar­flokk­arnir þeir hlakka til fundar við kjós­endur, til að leggja fyrir kjós­endum í þessu landi þann gríð­ar­lega árangur sem áherslur rík­is­stjórn­ar­innar hafa skilað fyrir lands­menn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár