Spurði Katrínu hvort hún væri sammála fjármálaráðherra um málefni öryrkja

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar vís­aði á þingi í orð for­sæt­is­ráð­herra síðan árið 2017 þar sem hún sagði að stjórn­völd ættu ekki að biðja fátækt fólk á Íslandi að bíða eftir rétt­læti og spurði hana hvort hún væri sam­mála eigin orðum í ljósi umræðu um öryrkja.

Logi Einarsson og Katrín Jakobsdóttir.
Logi Ein­ars­son og Katrín Jak­obs­dóttir. Mynd: Samsett

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði for­sæt­is­ráð­herr­ann, Katrínu Jak­obs­dóttur, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag hvort hún væri sam­mála þeim orðum Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að tals­menn öryrkja græfu „undan getu okkar til að styðja við þá sem eru í mestri þörf“ eða treysti hún sér til að taka undir það að öryrkjar ættu betra skilið en „þennan skæt­ing“.

Vísaði Logi þarna í deilur fjár­mála­ráð­herra og Öryrkja­banda­lags Íslands (ÖBÍ) í síð­ustu viku. Mótmælti meðal ann­ars for­maður ÖBÍ, Þur­íður Harpa Sig­urð­ar­dótt­ir, orðum og full­yrð­ingum ráð­herra um öryrkja.

Er Katrín sammála eigin orðum?

„Stjórn­völd eiga ekki að biðja fátækt fólk á Íslandi að bíða eftir rétt­læti. Þetta sagði hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra í þessum stól árið 2017, þá þing­maður í stjórn­ar­and­stöðu og ég er henni hjart­an­lega sam­mála. Engu að síður býr stór hópur öryrkja og aldr­aðra við skammar­lega lág laun. Tæplega fjórð­ungur öryrkja býr við skort á efn­is­legum gæðum sam­kvæmt rann­sóknum Hag­stof­unnar og bilið milli líf­eyris og lág­marks­launa heldur áfram að breikka.

Þannig hefur biðin eftir rétt­læti sem hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra tal­aði um árið 2017 bara lengst. Ekki nóg með það. Nú þegar Öryrkja­banda­lag Íslands stendur fyrir kraft­mik­illi bar­áttu fyrir bættum kjörum ber­ast kaldar kveðjur frá rík­is­stjórn Íslands, pillur frá fjár­mála­ráð­herra sem sakar tals­menn öryrkja um ábyrgð­ar­leysi og hótar því að fjölgun fólks með skerta starfs­getu verði látin bitna á þeim sem nú þegar eru á örorku­líf­eyri. Þetta dæmir sig sjálft,“ sagði Logi.

Hann spurði Katrínu hvort þetta væri í alvöru stefna rík­is­stjórnar Íslands.

Logi spurði hvort Katrín væri ekki sam­mála eigin orðum um að stjórn­völd ættu ekki að biðja fátækt fólk á Íslandi að bíða eftir rétt­læti. „Ég spyr einnig hvort hún komi ekki með okkur í það að bretta upp ermarnar núna, draga úr skerð­ingum og tryggja að líf­eyrir almanna­trygg­inga fylgi þróun lægstu launa sam­kvæmt lífs­kjara­samn­ingum?“

Stendur enn við orð sín

Katrín svar­aði og þakk­aði Loga fyrir að vekja máls á kjörum þeirra sem höllustum fæti standa í sam­fé­lag­inu. „Hann vitn­aði í mín orð 2017 sem ég stend enn þá við, enda hafa fjöl­margar aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar á þessu kjör­tíma­bili end­ur­speglað nákvæm­lega þessa áherslu, aðgerðir sem hátt­virtur þing­maður hefur stutt hér í þessum sal, eðli­lega. Þá vil ég sér­stak­lega nefna breyt­ingar á tekju­skatts­kerf­inu þar sem ráð­ist var í aðgerðir sem koma hinum tekju­lægstu best.

Ég vil tala um hækkun barna­bóta sem skiptir veru­legu máli, sér­stak­lega fyrir tekju­lágar barna­fjöl­skyldur, þar sem dregið var úr skerð­ing­unni króna á móti krónu í sér­stakri fram­færslu­upp­bót og til þess varið 2,5 millj­örðum að frum­kvæði hæstv. félags- og barna­mála­ráð­herra, þar sem gripið hefur verið til sér­staks félags­legs við­bót­ar­stuðn­ings við þá í hópi aldr­aðra sem höllustum fæti standa, þar sem ráð­ist hefur verið í að draga mjög mark­visst úr kostn­aði fólks í heil­brigð­is­kerf­inu, öryrkja, aldr­aðra, barna. Og hæstv. heil­brigð­is­ráð­herra sté löngu tíma­bært skref í að draga úr tann­lækna­kostn­aði sem hv. þing­maður, eins og ég, var spurður að fyrir síð­ustu kosn­ingar og svar­aði að hann vildi stíga stór skref,“ sagði hún.

Ekki sammála Loga að Bjarni hafi haft í hótunum

Katrín sagði mörg mik­il­væg skref hafa verið stigin til þess að efla vel­ferð­ina í þessu sam­fé­lagi og auka jöfnuð.

„Ég kann­ast ekki við það þegar hátt­virtur þing­maður ræðir hér að hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra hafi haft í hót­unum. Það tel ég ekki vera. Ég er ekki sam­mála hátt­virtum þing­manni um að þannig eigi að skilja orð hæst­virts ráð­herra sem benti hins vegar á að fram­lög til þessa mála­flokks hafa vaxið jafnt og þétt á síð­ustu árum, ekki síst þegar ráð­ist var í breyt­ingar á almanna­trygg­inga­kerf­inu sem vissu­lega átti fyrst og fremst við eldri borg­ara. Þá er ég að vísa í breyt­ing­arnar 2016, sem við höfum oft rætt hér, en sömu­leiðis vegna fjölg­unar í þessum hópi,“ sagði Katrín í svari sínu.

Vonbrigði að Katrín geti ekki tekið dýpra í árinni

Logi steig aftur í pontu og sagði að fjár­mála­ráð­herra hefði í síð­ustu viku svarað með skæt­ingi „og ég kalla það ekk­ert annað en hótun það sem hann sagði. Það eru mér ákveðin von­brigði að hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra geti ekki tekið dýpra í árinni undir þá kröfu okkar að laun öryrkja og elli­líf­eyr­is­þega fái að fylgja almennri launa­þróun í land­inu og tekið sé mið af lífs­kjara­samn­ingum, líkt og gert var þegar hún sat í rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur um árið. Hér hafa fjöl­margar aðgerðir leitt til fram­fara.“

Hann sagði það rétt hjá for­sæt­is­ráð­herra að hann hefði stutt þær margar og muni gera það áfram, öll góð mál. „Ég kalla hins vegar eftir því hvort ekki sé eðli­legt að með almennum hætti sé tryggt að líf­eyrir fylgi launa­þróun sam­kvæmt lífs­kjara­samn­ing­unum. Annars er tómt mál fyrir rík­is­stjórn­ina að vera að slá um sig með orðum eins og lífs­kjara­samn­ingur þegar hann nær bara til hluta sam­fé­lags­ins,“ sagði Logi.

Verða þá bara að vera ósammála

Í seinni ræðu Katrínar sagði hún að þau Logi myndu þá „bara að vera ósam­mála um þá hluti, því að ég held að það sé einmitt mik­il­vægt að við ræðum þessi mál ann­ars vegar út frá mark­mið­unum, sem ég tel að við hátt­virtur þing­maður séum sam­mála um, þ.e. að við viljum auka jöfnuð í sam­fé­lag­inu og teljum það vera mik­il­vægan hluta af vel­gengni íslensks sam­fé­lags hversu mik­ill jöfn­uður hefur í raun verið og við eigum að hafa það í huga í öllum okkar aðgerðum.

En ég held að við þurfum líka að horfa á gögnin sem liggja undir. Til að mynda þegar við skoðum tekju­sög­una, sem ég vitn­aði í áðan, þá sýnir hún mjög glögg­lega að það er ekki rétt að mínu viti að tala um aldr­aða og öryrkja sem einn hóp. Þar hefur tekju­þróun verið mjög ólík milli hópa, en ekki síst er eigna­staða þess­ara hópa mjög ólík. Þess vegna held ég að við þurfum að ræða þessa hópa aðskilið. Við þurfum að horfa á stóra mark­miðið: Hvernig getum við náð auknum jöfn­uði? Ég nýtti mitt fyrra svar hér til að benda á allar þær aðgerðir sem þegar hefur verið ráð­ist í og fleirum eigum við von á, eins og hæst­virtur félags- og barna­mála­ráð­herra hefur boðað. En ég tel líka að það sé mik­il­vægt að við horfum á þær aðgerðir út frá því hvernig við viljum þróa þetta kerfi til fram­tíðar. Ég held að Alþingi megi ekki skor­ast undan því verk­efni sem fram undan er,“ sagði Katrín að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár