Segir fullyrðingar Bjarna rangar

„Það er ánægju­legt að fá loks að ræða þessi mál við þig, og við erum til­búin til þess hvenær sem er, eins og ósvaraðir tölvu­póstar síð­ustu þriggja ára í inn­hólfi tölvu þinnar bera vott um,“ segir í bréfi for­manns ÖBÍ til fjár­mála­ráð­herra.

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins.
Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Öryrkja­banda­lag Íslands (ÖBÍ) segir full­yrð­ingar Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra rangar sem hann birti í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær­kvöldi.

Þar sagði hann það sæta furðu að ÖBÍ deildi ekki áhyggjum af því að sífellt hærra hlut­fall lands­manna þyrfti örorku­bætur og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri. Sú þróun væri alger­lega ósjálf­bær og ábyrgð­ar­leysi að horfast ekki í augu við vand­ann.

Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður ÖBÍ, sendi honum bréf í dag þar sem hún mót­mælti full­yrð­ingum Bjarna á Facebook. Í bréf­inu vitnar hún í skýrslu Kolbeins Stef­áns­sonar félags­fræð­ings, sem hann vann fyrir Öryrkja­banda­lagið. Í skýrsl­unni segir að þó það sé óum­deil­an­legt að örorku­líf­eyr­is­þegum hafi fjölgað á milli 2008 og 2019, virð­ist hafa dregið nokkuð úr fjölg­un­inni eftir 2017 og raunar hafi heild­ar­fjöldi örorku­líf­eyr­is­þega svo gott sem staðið í stað á milli 2017 og 2019.

„Þannig má segja að breyt­ingin á milli 2008 og 2019 gefi ekki rétta mynd af stöðu mála í dag og breyt­ingin frá alda­mótum enn síður. Örorku­líf­eyr­is­þegum hefur fjölgað umtals­vert frá alda­mótum, nokkuð frá 2008 en lítið sem ekk­ert frá 2017 miðað við þær upp­lýs­ingar sem liggja fyrir í dag,“ segir í skýrsl­unni.

Þuríður bendir á að þannig hafi örorku­líf­eyr­is­þegar verið 7 pró­sent af mann­fjölda 18 til 66 ára árið 2008, og 7,8 pró­sent árið 2019, eftir að hafa verið hæst 8,2 pró­sent árið 2017. „Hér ber að hafa í huga að árið 2016 var gerð gang­skör hjá Trygg­inga­stofnun Ríkisins í að afgreiða fjölda umsókna sem safn­ast höfðu fyrir,“ skrifar hún.

ÖBÍ telur framsetningu ráðherrans villandi

Kjarn­inn greindi frá því í gær að fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra hefði lagt fram minn­is­­blað á rík­­is­­stjórn­­­ar­fundi í fyrra­dag um fram­lög til almanna­­trygg­inga. Sam­­kvæmt því minn­is­­blaði rennur sífellt auk­inn hluti verð­­mæta­­sköp­unar hag­­kerf­is­ins til til­­­færslu­­kerfa og fjár­­fram­laga rík­­is­­sjóðs. Sér­­stak­­lega var fjallað um fram­lög til almanna­­trygg­inga, að frá­­­töldum atvinn­u­­leys­is­­bót­u­m, og sagt að þau hefðu nær tvö­­fald­­ast frá árinu 2013 miðað við verð­lag hvers árs.

Í stöð­u­­upp­­­færslu sem Bjarni birti á Face­­book í gær­dag sagði hann það vera mikið áhyggju­efni að frá árinu 2013 hefði þeim sem eru á örorku­­bótum eða end­­ur­hæf­ing­­ar­líf­eyri fjölgað um 4.300 manns.

ÖBÍ sendi frá sér til­kynn­ingu seinna um dag­inn þar sem sagði að eftir lestur minn­is­blaðs fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra stæði eftir sú „til­finn­ing að til­gangur minn­is­blaðs­ins sé fyrst og fremst til að ýja að því að það séu öryrkjarnir sem frek­astir eru á flet­i“.

Sam­kvæmt ÖBÍ er fram­setn­ingin sem ráð­herra velur vill­andi. „Og gleymum ekki kosn­inga­lof­orð­inu sem ráð­herra gaf eldri borg­urum fyrir nokkrum árum stærsti hluti aukn­ingar útgjalda til almanna­trygg­inga farið í að efna það. Öryrkjar hafa ekki fengið neitt. Fjár­mála­ráð­herra vill líka sýna fram á hve gríð­ar­leg fjölgun örorku­líf­eyr­is­þega hefur orðið og birtir máli sínu til stuðn­ings línu­rit.

Þar má sjá hlut­fall örorku­líf­eyr­is­þega, örorku­styrk­þega og end­ur­hæf­inga­líf­eyr­is­þega sem hlut­fall af fólki á vinnu­færum aldri. Ein­hverra hluta vegna tekur ráð­herra þó sér­stak­lega út úr jöfn­unni inn­flytj­end­ur, eða erlent vinnu­afl, eins og þessi hópur skipti engu máli í verð­mæta­sköpun lands­ins,“ sagði í til­kynn­ing­u ÖBÍ í gær.

Hér fyrir neðan má lesa bréf Þuríðar til fjármálaráðherra í heild sinni:

Sæll Bjarni.

Það er mér ánægju­efni að geta nú átt þessar sam­ræður við þig, þó á þessum vett­vangi sé.

Þú skoraðir á mig að nefna tíma­bil þar sem kaup­máttur örorku­líf­eyris hafi hækkað meira en síð­ustu átta ár.

Stutta svarið við því er að fyrir ein­hleypan öryrkja sem varð öryrki 18 ára, jókst kaup­máttur hámarks­greiðslna hans meira en und­an­farin átta ár, á hvaða átta ára tíma­bili sem er, frá októ­ber 1997 til októ­ber 2008. Fyrir þann sem er í sam­búð eða giftur á þetta sama við á tíma­bil­inu októ­ber 1997 til októ­ber 2011, eða alveg að því tíma­bili sem þú kýst að miða við. Þetta tekur til hæstu mögu­legra greiðslna frá TR, þeirra sem fengu örorku­mat 18-24 ára og eru ein­hleyp. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá TR er hér um 9 ein­stak­linga að ræða árið 2019.

En tölum um kaup­mátt.

Það hefur aldrei verið um það rætt af hálfu okkar að engin kaup­mátt­ar­aukn­ing hafi átt sér stað og því í sjálfu sér óþarfi að fara í mikla sögu­skoðun á honum.

En það vill svo til að Öryrkja­banda­lagið fékk Hag­fræði­stofnun Háskól­ans til að reikna út kaup­mátt óskerts líf­eyris almanna­trygg­inga, og bera saman við kaup­mátt lág­marks­launa.

Sam­an­burð­ar­tíma­bilið er 2009 til 2018. Öryrkja­banda­lagið víkur sér ekki undan þeirri stað­reynd að kaup­máttur óskerts líf­eyris hafi hækkað. Bara ekki nærri eins mikið og kaup­máttur lág­marks­launa.

Í sam­an­burð­inum er óskertur örorku­líf­eyrir og lægstu laun sett í 100 árið 2009. Árið 2018 er kaup­máttur óskerts örorku­líf­eyris komin í 118 fyrir skatta, en lægstu launa 161. Þarna munar 43 stigum, kaup­máttur örorku­líf­eyris er með öðrum orðum 73% af kaup­mætti lægstu launa við lok tíma­bils­ins.

Og það er í takt við þá stað­reynd, að örorku­líf­eyrir verður ekki nema ¾ af lág­marks­launum um næstu ára­mót. Og það haggar ekki þeirri stað­reynd að skatta­lækk­anir rík­is­stjórn­ar­innar ná lítið til þeirra sem hafa tekjur undir 300.þ kr.

Ráð­stöf­un­ar­tekjur öryrkja, sem um ára­mót fær 265þ. kr. rúmar fyrir skatt, aukast vegna skatta­lækk­ana um 2900 krónur rúmar á mán­uði.

Þú segir einnig í færsl­unni: „Þá sætir það furðu að ÖBÍ deili ekki áhyggjum af því að sífellt hærra hlut­fall lands­manna þarf örorku­bætur og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri. Sú þróun er alger­lega ósjálf­bær og ábyrgð­ar­leysi að horfast ekki í augu við vand­ann.“

Ástæða þess að ÖBÍ deilir ekki áhyggjum þínum er að full­yrð­ing þín er ein­fald­lega röng.

Í skýrslu Kolbeins Stef­áns­sonar félags­fræð­ings, sem hann vann fyrir Öryrkja­banda­lagið, segir á bls 6: „Það er hins vegar athygli­vert að þó það sé óum­deil­an­legt að örorku­líf­eyr­is­þegum fjölg­aði á milli 2008 og 2019, virð­ist hafa dregið nokkuð úr fjölg­un­inni eftir 2017 og raunar hefur heild­ar­fjöldi örorku­líf­eyr­is­þega svo gott sem staðið í stað á milli 2017 og 2019. Þannig má segja að breyt­ingin á milli 2008 og 2019 gefi ekki rétta mynd af stöðu mála í dag og breyt­ingin frá alda­mótum enn síður. Örorku­líf­eyr­is­þegum hefur fjölgað umtals­vert frá alda­mótum, nokkuð frá 2008 en lítið sem ekk­ert frá 2017 miðað við þær upp­lýs­ingar sem liggja fyrir í dag.“

Þannig voru örorku­líf­eyr­is­þegar 7,0% af mann­fjölda 18-66 ára árið 2008, og voru 7,8% árið 2019, eftir að hafa verið hæst 8,2% árið 2017. Hér ber að hafa í huga að árið 2016 var gerð gang­skör hjá Trygg­inga­stofnun Ríkisins í að afgreiða fjölda umsókna sem safn­ast höfðu fyrir.

Síðan segir þú: „Þeir sem neita að horfast í augu við þá veik­leika sem birt­ast okkur í þróun þessa mála­flokks grafa með því undan getu okkar til að styðja við þá sem eru í mestri þörf.“

Hér stendur einmitt hníf­ur­inn í kúnni. Við erum ekki sam­mála um hvernig eigi að meta „þá sem eru í mestri þörf“. Þú talar fyrir starfs­getu­mati. Að við hættum að horfa á hvað fólk geti ekki, frekar hvað það getur. En er það megin ástæðan fyrir því að öryrkjar eru ekki á vinnu­mark­aði?

Svarið við því er nefni­lega nei.

Því í kerfi almanna­trygg­inga hafa verið reistar svo háar girð­ingar sem koma í raun í veg fyrir atvinnu­þátt­töku öryrkja.

Lítil saga:

Kona ein, 75% öryrki, fékk tíma­bundið verk­efni í einn og hálfan mánuð. Fyrir það fékk hún greitt 153þ.kr. Skatt­ur­inn tók 78þ, TR 53þ, eftir stóð 27þ fyrir þessa vinnu. Þá er ekki útséð að áhrif af þessum auka­tekjum komi fram t.d. í hús­næð­is­stuðn­ingi og víðar, sem myndi þýða að heild­ar­út­koman væri tap.

Það kemur mér á óvart að þú sem for­maður þess stjórn­mála­flokks sem í gegnum tíð­ina hefur haft frelsi ein­stak­lings­ins til orða og athafna á sinni stefnu­skrá, hafi ekki löngu breytt þessu. Vilji öryrkja til þátt­töku á vinnu­mark­aði er til staðar hjá lang­flestum. Sem sést best á því að þrátt fyrir þessar háu girð­ingar, þrátt fyrir þessar gríð­ar­legu skerð­ingar, eru samt um þriðj­ungur öryrkja á vinnu­mark­aði. Eða voru fyrir heims­far­aldur kór­ónu­veiru.

Af þeim voru um 40% í fullu starfi.

Það skortir hins vegar sár­lega tæki­færin fyrir þá. T.d. hluta­störf hjá hinu opin­bera. Þar gætir þú gengið á undan með góðu for­dæmi og ráðið inn ein­stak­linga með skerta starfs­getu í ráðu­neyti þitt, en sam­kvæmt svari við fyr­ir­spurn Oddnýjar Harð­ar­dóttur, þing­konu Sam­fylk­ingar, er engan slíkan að finna í fjár­mála­ráðu­neyt­inu.

Það er ánægju­legt að fá loks að ræða þessi mál við þig, og við erum til­búin til þess hvenær sem er, eins og ósvaraðir tölvu­póstar síð­ustu þriggja ára í inn­hólfi tölvu þinnar bera vott um.

ÖBÍ mun birta ítar­legri útreikn­inga um kaup­mátt með skýr­inga­myndum á heim­síðu sinni innan skamms.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár