„Mikil er ábyrgð kvenna sem þurfa bara að vera duglegri að láta ekki nauðga sér“

Vara­þing­maður Vinstri grænna segir að Íslend­ingar þurfi femíníska bylt­ingu. „Við þurfum að grípa til rót­tækra umfangs­mik­illa aðgerða á öllum sviðum.“

Daníel E. Arnarsson
Daníel E. Arn­ars­son Mynd: Skjáskot/Alþingi

Daníel E. Arn­ars­son vara­þing­maður Vinstri grænna sagði undir liðnum störf þings­ins í dag að allt of oft væri aðeins talað um femín­isma þegar hópur kvenna neydd­ist til að koma fram með sögur af grófu kyn­bundnu ofbeldi eða áreiti til að vekja sam­fé­lagið upp og þar með fá þing­menn til að grípa bolt­ann og bregð­ast við.

„Konur þurfa nefni­lega bara að vera dug­legri að vera þægar, eru jafn­vel látnar svara fyrir ummæli sem við karl­arnir höfum látið falla og okkur í feðra­veld­is­sam­fé­lag­inu finnst óþægi­legt að hlusta á og heyra. Við viljum taka undir af umburð­ar­lyndi en svo í kjöl­farið ger­ist harla fátt.

Hversu margar metoo-bylgjur þurfum við til þess að átta okkur raun­veru­lega á alvar­leika máls­ins, átta okkur raun­veru­lega á öllu ofbeld­inu og hve djúpt það hefur komið sér fyrir í kimum sam­fé­lags­ins? Þá er ég ekki ein­ungis tala um beint lík­am­legt eða kyn­bundið ofbeldi heldur einnig kerf­is­lægt ofbeldi, að við áttum okkur á því að grunn­þjón­usta til kvenna er skert, því að konur þurfa bara að vera dug­legri að vera ekki móð­ur­sjúkar, já eða ekki feitar. Já, þær þurfa að vera dug­legri að vera bara nákvæm­lega eins og sam­fé­lagið vill,“ sagði vara­þing­mað­ur­inn.

Er verið að gera nóg?

Daníel sagði þó að færa mætti rök fyrir því að margt hefði verið gert á síð­ustu miss­erum, að góð mál hefðu verið lögð fram á þingi, bæði af stjórn og stjórn­ar­and­stöðu, og ýmis­legt fleira væri í vinnslu.

„En er það nóg? Enn þann dag í dag er konum kennt um kyn­ferð­is­of­beldi vegna klæða­burðar, atferlis síns eða hegð­unar. Við erum enn á þeim stað, þrátt fyrir allt sem hefur verið gert, að við búum við kyn­bund­inn launa­mun, kyn­bundið ofbeldi, kerf­is­lægt ofbeldi gegn konum og að konum sé nauðgað í hverri viku. Mikil er ábyrgð kvenna sem þurfa bara að vera dug­legri að láta ekki nauðga sér. Þessu þarf að breyta.

Við þurfum femíníska bylt­ingu. Við þurfum að grípa til rót­tækra umfangs­mik­illa aðgerða á öllum sviðum. Við þurfum fleiri femíníska flokka á Alþingi, breytum öllum þeim lögum, stofn­unum, aðgerða­á­ætl­unum, verk­ferlum og fræðslu­á­ætl­unum sem þarf að breyta til að við getum í alvöru talað um sam­fé­lag fyrir fólk af öllum kynjum. Áfram, stelpur,“ sagði hann að lokum og upp­skar í fram­hald­inu fögnuð þing­manna í salnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár