Matreiðslubækur vinsælt lesefni hjá Dönum - fæstir elda upp úr þeim

Það er alkunna að Danir eru miklir áhugamenn um mat. Borða mikið, tala mikið um mat, eyða miklum tíma í að skoða mat í búðum og dreymir jafnvel mat. Þessi mikli matar­áhugi hefur líka sett mark sitt á þjóðina, margir eru alltof þungir og þrátt fyrir hverja hollustu­herferðina á fætur annarri á undan­förnum árum, og fögur áramóta­heit breytir það litlu: baðvigtin sýnir það og sannar.

Það kemur þess vegna ekki á óvart að þessi mikla matarþjóð skuli hafa áhuga fyrir að lesa um mat og skoða uppskriftir. Dönsku dagblöðin eru öll með sérstakar matar­síður, sum þeirra jafvel með matseðil vikunnar, þar sem línurnar eru lagðar um hvað „familien Danmark“ geti haft á borðum og þurfi ekki að láta hendingu ráða hvað fer í pottana. Viku­blöðin, Famile Journal, Hjemmet, Alt for Damerne og öll hin birta fjöldann allan af uppskriftum í hverju tölublaði.

Aragrúi matreiðslubóka á hverju ári


Árlega koma út hér í Danmörku um það bil 80 nýjar mat­reiðslu­bækur (fyrir utan end­ur­út­gáfur), talan fer hækk­andi ár frá ári. Fyrir nokkrum ára­tugum létu flestir sér nægja að eiga tvær til þrjár mat­reiðslu­bækur, oft og tíðum þver­hand­ar­þykka doðranta sem inni­héldu, auk upp­skrift­anna, marg­vís­legar upp­lýs­ingar um með­ferð og geymslu mat­væla o.s.frv. (Matur og drykkur fröken Helgu Sig­urð­ar­dóttur er í þessum anda).

Þekktust danskra matreiðslu­bóka er líklega Frøken Jensens Kogebog, hún kom fyrst kom út árið 1901 og hefur verið endur­útgefin að minnsta kosti 30 sinnum og selst í hundruðum þúsunda eintaka og selst enn þann dag í dag jafnt og þétt. Þessi metsölubók á fátt sameiginlegt með hinum nýtísku­legu matreiðslu­bókum nútímans, þar sem mikil áhersla er lögð á ljós­myndir til skýringar og vandaðan glanspappír. Í þessum bókum er líka hráefnið mun fjöl­breyttara en hjá frøken Jensen, enda tímarnir breyttir. Lesendur fá vatn í munninn við það eitt að skoða myndirnar og uppskriftirnar og hugsa með sér: þetta prófa ég næst!

Langfæstir elda upp úr matreiðslubókunum


En, þetta næst kemur bara aldrei, eða mjög sjaldan. Nýleg rann­sókn sér­fræð­ings hjá Kon­ung­lega bóka­safn­inu leiddi nefni­lega í ljós það sem marga reyndar grun­aði. Fólk kaupir nýju bæk­urnar og skoðar þær sér til skemmt­unar en notar þær svo aldrei. „Manni fall­ast bara hendur þegar maður sér mynd­irnar og allt sem þarf að kaupa til að elda þetta fína í bók­unum“ sagði eld­hús­vanur karl í við­tali við áður­nefndan sér­fræð­ing.

Niður­staða rann­sóknarinnar var sú að Danir hafi mjög gaman af að lesa um allt þetta nýja í matar­gerðinni og skoða myndirnar en þegar kemur að sjálfri matreiðslunni þá er það medisterpylsa, steikt rauð­spretta og síld, hakkebøf eða svína­kótilettur sem enda á diskinum með kartöflum og rauðkáli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár