Engin samskipti við virkjunaraðila eftir álit Skipulagsstofnunar

„Sveitar­stjórn hefur ekki tekið neina ákvörðun varðandi Svartár­virkjun,“ segir Dagbjört Jóns­dóttir, sveitar­stjóri Þing­eyjar­sveitar. Frá því að svart álit Skipulags­stofnunar kom út hafa engin samskipti átt sér stað milli virkjunar­aðila og sveitar­stjórnar.

Virkjun Svartár í Bárðardal hefur staðið til í nokkur ár. Skipulagsstofnun telur hana hafa verulega neikvæð umhverfisáhrif í för með sér.
Virkjun Svartár í Bárð­ar­dal hefur staðið til í nokkur ár. Skipu­lags­stofnun telur hana hafa veru­lega nei­kvæð umhverf­is­á­hrif í för með sér. Mynd: Af Facebook-síðu Verndarfélags Svartár og Suðurár

Sveitar­stjórn Þing­eyjar­sveitar hefur ekki átt í neinum samskiptum við framkvæmda­aðila Svartár­virkjunar síðan álit Skipulags­stofnunar á hinni fyrir­huguðu virkjun lá fyrir í lok síðasta árs. Framkvæmda­aðilinn, SSB Orka, hefur ekki óskað eftir því að aðal­skipulagi sveitar­félagsins verði breytt og virkjunin færð inn á það.

Skipulags­stofnun komst að því í áliti sínu að umhverfis­áhrif virkjunar Svartár yrðu verulega neikvæð og taldi niður­stöðu umhverfis­matsins gefa tilefni til að endur­skoða áform um að gera ráð fyrir virkjuninni á aðal­skipulagi Þing­eyjar­sveitar.

SSB Orka er í eigu Svartárvirkjunnar ehf. Eigendur þess félags eru Ursus ehf. (í eigu Heiðars Guðjóns­sonar) sem á 42,9 prósent, Íslands­virkjun ehf. (í jafnri endanlegri eigu Péturs Bjarna­sonar og Auðuns Svafars Guðmunds­sonar) sem á 50 prósent og Íshóll (í eigu Stefáns Ákasonar) sem á 7,10 prósent. Kjarninn sendi fyrir­spurn til Heiðars Guðjóns­sonar, forsvars­manns verk­efnisins í janúar um fram­haldið en engin svör hafa enn borist.

SSB Orka hefur um árabil áformað að reisa 9,8 MW virkjun með því að stífla Svartá í Bárðardal um 500 metra fyrir ofan ármót Svartár og Grjótár. Vatn yrði leitt um aðrennslis­pípu um 3 kílómetra leið að stöðvar­húsi sem yrði staðsett um 1,5 kíló­metrum ofan við ármót Svartár og Skjálfanda­fljóts. Virkjunin mun leiða til skerðingar á rennsli Svartár á um þriggja kílómetra kafla á milli stíflu og frárennslis­skurðar frá stöðvar­húsi.

Áformin hafa vakið hörð viðbrögð og bárust Skipulags­stofnun athuga­semdir frá tæplega 80 einstaklingum og samtökum í umhverfis­mats­ferlinu. Að auki hefur málið verið hinu fámenna samfélagi í Bárðardal erfitt og sveitar­stjóri og oddviti Þing­eyjar­sveitar hafa sagt Svartár­virkjun „heita kartöflu“ sem muni kljúfa samfélagið í dalnum, hafi hún ekki þegar gert það.

Álit Skipulags­stofnunar var lagt fram til kynningar á fundi sveitar­stjórnar Þing­eyjar­sveitar um miðjan janúar og svo vísað til kynningar í skipulags- og umhverfis­nefnd sveitar­félagsins. Sú kynning fór fram á fundi nefndarinnar 21. janúar.

„Sveitar­stjórn hefur ekki tekið neina ákvörðun varðandi Svartár­virkjun,“ segir Dagbjört Jóns­dóttir, sveitar­stjóri Þing­eyjar­sveitar, í skriflegu svari til Kjarnans um stöðu málsins nú. „Næstu skref eru framkvæmda­aðilans; að sækja um breytingu á aðal­skipulagi og í fram­haldinu að óska eftir framkvæmda­leyfi, þá kemur til ákvörðunar sveitar­stjórnar.“ Hún segir engin samskipti hafa verið milli sveitar­stjórnar og framkvæmda­aðilans frá því að álit Skipulags­stofnunar var gefið út í lok desember í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár