„Óeðlilegt“ að maður á fertugsaldri hafi kynferðislegan áhuga á 16 ára unglingi

Það er talsvert algengt að konur sem á unglings­árum áttu í kynferðis­legu sambandi við miklu eldri menn leiti til Stígamóta því upplifun þeirra er að þær hafi orðið fyrir kynferðis­ofbeldi, segir talskona samtak­anna. Umboðs­maður barna segir að það auki hættuna á ójafnræði í samböndum ef annar aðilinn hefur yfirburði vegna aldurs, þroska og lífs­reynslu.

Lög setja hömlur
Lög setja hömlur Lagalega séð eru ung­lingar börn fram að 18 ára aldri. Til sextán ára ald­urs er börnum ekki heim­ilt að vera lengur úti en til 22 á kvöldin. Myndin er svið­sett. Mynd: Shutterstock

Jófríður Ísdís Skafta­dóttir steig fram í síðustu viku og sagði frá því að hún hefði, fyrir sjö árum, þá 16 ára gömul, stundað kynlíf með Þóri Sæmunds­syni, fyrr­verandi leikara, sem þá var 34 ára gamall. Jófríður sagðist í samtali við Stundina hafa ákveðið að segja frá þessu eftir að viðtal við Þóri var sýnt í frétta­skýringa­þættinum Kveik. Viðtalið vakti mikla athygli en yfir­skrift þess var: „Hreinsunar­eldur Þóris Sæmunds­sonar“ og í kynningu þáttarins var sagt að Þórir hafi verið rísandi stjarna á íslensku leiksviði en eftir að kynferðisleg mynda­sending hans hafi komist í hámæli árið 2017 hafi hann verið utangarðs og fái hvergi vinnu.

Þórir Sæmunds­son í við­tali í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik á RÚV.

Nokkrar konur greindu eftir þáttinn frá samskiptum sínum við Þóri á samfélags­miðlum. Samskiptum sem þær segja að hafi átt sér stað þegar þær voru á aldrinum 16 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár