Lífguð við eftir hálftíma á kafi í sjó

Einstæð móðir sem lenti í Reykja­víkurhöfn komin til heilsu. Var í hjarta­stoppi þegar henni var bjargað. Kæld niður og haldið sofandi. Batinn gengur krafta­verki næst.

Slysstaðurinn
Slys­stað­ur­inn Fáir reikn­uðu með að konan myndi lifa slysið af. Mynd: Google earth

Það þykir ganga krafta­verki næst að kona sem lenti í Reykja­víkurhöfn um miðjan janúar skuli vera komin til meðvitundar. Bifreið konunar hafnaði í höfninni og sökk til botns síðdegis 18. janúar. Gestir á veitinga­staðnum Höfninni sáu þegar atvikið varð á Miðbakka. Skott­lokið á bílnum var opið þegar hann fór fram af bryggjunni. Það tók kafara hálftíma að ná konunni úr bílnum. Hún var þá meðvitundar­laus. Það tókst að koma hjarta hennar af stað en líklegt þótti að hún hefði hlotið varanlegan skaða af. Hún var kæld niður og henni haldið sofandi í 48 klukku­stundir á meðan hitastig hennar var smám saman hækkað. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár