Vilja að ráðherrann geri hreint fyrir sínum dyrum

Þingmenn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna ósk­uðu eftir því á þingi í dag við for­seta Alþingis að fá að ræða rasísk ummæli Sigurðar Inga en for­seti stóð keikur og hélt fyr­ir­fram gef­inni dag­skrá.

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, inn­við­a­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Fjöl­margir þing­menn úr öllum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum nema Mið­flokki ósk­uðu eftir því á þing­fundi í dag að Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra kæmi fyrir þingið, gerði grein fyrir máli sínu er varðar rasísk ummæli um Vigdísi Häsler fram­kvæmda­stjóri Bænda­sam­tak­anna og í kjöl­farið gæf­ist þing­mönnum kostur á að eiga orða­stað við ráð­herr­ann.

Halldóra Mogensen þing­flokks­for­maður Pírata reið á vaðið undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta rúm­lega klukkan tvö í dag og sagði að inn­við­a­ráð­herra hefði orðið upp­vís að hegðun sem væri ólíð­andi fyrir ráð­herra í rík­is­stjórn og for­mann stjórn­ar­flokks. „Hann hefur farið undan í flæm­ingi frá fjöl­miðlum og neitar að svara því með hvaða hætti hann hyggst axla ábyrgð og bæta fyrir brot sitt öðru­vísi en með aumri afsök­un­ar­beiðni á sam­fé­lags­miðlum.“

Hún sagði að það gengi ekki að Alþingi héldi áfram eins og ekk­ert hefði í skorist, enda starf­aði rík­is­stjórnin í umboði meiri­hluta þings­ins. Fór hún því fram á að ráð­herr­ann kæmi fyrir þingið og gerði hreint fyrir sínum dyrum gagn­vart þing­inu og almenn­ingi áður en lengra væri haldið.

Birgir Ármanns­son for­seti Alþingis benti í fram­hald­inu á að hann hefði átt fundi með þing­flokks­for­mönnum um fyr­ir­komu­lag umræð­unnar í dag – og dag­skrá dags­ins í dag og dags­ins á morgun. „Þessi ósk kom ekki fram þannig að for­seti hefur í hyggju að halda áfram dag­skránni eins og hún var áætluð og þing­flokks­for­menn voru upp­lýstir um og tóku þátt í að móta,“ sagði Birgir. Margir þing­menn reyndu að sann­færa for­seta að setja málið á dag­skrá í fram­hald­inu en honum var ekki haggað.

Óþægileg umræða „en hún verður að eiga sér stað“

Þingmenn nýttu einnig tæki­færið undir liðnum störf þings­ins fyrr í dag til að gagn­rýna ráð­herr­ann, orð­ræðu hans og afsök­un­ar­beiðni.

Sigmar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar sagði að von­andi væru allir sam­mála um að þegar ráð­herra í rík­is­stjórn við­hefði rasísk ummæli þá kall­aði það á djúpa og yfir­veg­aða umræðu, bæði um þau orð sem féllu, afsök­un­ar­beiðn­ina sjálfa og aðdrag­anda hennar því aðeins þannig gæti Alþingi og rík­is­stjórn sent skýr skila­boð til þús­unda Íslend­inga og ann­arra sem eiga að búa við þau sjálf­sögðu mann­rétt­indi að húð­litur þeirra skipti ekki máli.

Rifjaði hann upp orð Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í þing­inu í gær þar sem hún sagði að við yrðum að geta tekið því þegar fólk biðst afsök­unar á orðum sínum og gjörðum.

„Ég er hjart­an­lega sam­mála því. Það var því gott og jákvætt að for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins baðst afsök­unar í gær þótt vissu­lega hafi liðið fjórir dagar og póli­tískur aðstoð­ar­maður hans hafi full­yrt í milli­tíð­inni að umrædd ummæli hefðu aldrei fallið. Því miður var afsök­un­ar­beiðni for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra ekki nema nokk­urra klukku­stunda gömul þegar aðstoð­ar­mað­ur­inn svar­aði fjöl­miðlum aftur með þeim orðum að hún hefði í fyrra svari sínu bara lýst því sem hún heyrði og sá þetta kvöld sem var það að ráð­herra hefði ekki vísað til lits heldur ein­göngu til þess að þol­and­inn væri Sjálf­stæð­is­maður.

Málið væri því, og þetta er orð­rétt til­vitnun: Algjört bull. Við þetta verðum við að staldra. Við erum í þeirri dap­ur­legu stöðu að ráð­herra baðst afsök­unar á meið­andi ummælum sem póli­tískur aðstoð­ar­maður hans og ráð­gjafi, sem seg­ist hafa séð og heyrt atburða­rás­ina, full­yrðir ítrekað að hafi aldrei fallið. Ef fara á fram hrein­skiptin umræða um hvað gerð­ist og hvernig bregð­ast skuli við verðum við að fá skýr­ingar á þessu mis­ræmi. Hvað var sagt og á hverju var nákvæm­lega beðist afsök­unar? Eiga þolendur svona ummæla og þús­undir Íslend­inga sem eiga það á hættu að verða fyrir aðkasti vegna upp­runa síns ekki kröfu til þess að skila­boðin úr Stjórn­ar­ráð­inu, frá ráð­herra og öðrum sem tala í hans umboði, séu skýr og að eng­inn vafi leiki á að fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna sé trúað, að orð þol­anda, ger­anda og vitna stang­ist ekki á? Þetta er óþægi­leg umræða en hún verður að eiga sér stað,“ sagði hann.

Siðareglur ráðherra og þingmanna brotnar

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði undir sama lið að íslenskt sam­fé­lag þyrfti að átta sig á því „að ras­ismi er ekki eitt­hvað sem stundað er í útlöndum heldur dag­legt og frekar hvers­dags­legt hlut­skipti fólks hér á landi sem ein­hverjum gæti fund­ist líta út fyrir að geta ekki rakið ættir sínar aftur til mið­alda í Íslend­inga­bók“.

„Rasismi getur birst á til­tölu­lega mein­lausan en afar þreyt­andi hátt, til dæmis með því að ein­stak­lingur er ávarp­aður á ensku í verslun eða á vinnu­stað. Það getur birst sem áreiti beint og óbeint: „Má ég snerta á þér hárið? Hvaðan ertu? Úr Breið­holt­inu? Nei, ég meina, hvaðan ertu?“ og þannig mætti áfram telja. Svo eru þessi ömur­legu rasísku komment sem lesa má í kommenta­kerf­unum á miðl­unum og beinar per­sónu­legar árásir og við­bjóðs­legar dylgjur um nafn­greinda ein­stak­linga.“

Þórunn sagði að sjaldan, sem betur fer, afhjúp­uðu æðstu ráða­menn þjóð­ar­innar sig með þeim hætti sem inn­við­a­ráð­herra gerði á bún­að­ar­þingi gagn­vart fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna.

„Þar voru siða­reglur ráð­herra og þing­manna brotnar, allar vel­sæm­is­reglur og lík­lega lög. Ráð­herr­ann, eins og við öll sem hér störfum, er fyr­ir­mynd og það eru meiri kröfur gerðar til okkar en almennra borg­ara í þessu landi vegna þess að við erum kjörnir full­trúar.

Það var líka ömur­legt, for­seti, að hlýða á for­sæt­is­ráð­herra í gær úr þessum stól, ráð­herra jafn­rétt­is­mála og mann­rétt­inda, ekki bregð­ast við með afger­andi hætti og for­dæma fram­komu ráð­herra síns í rík­is­stjórn­inni. Þannig hefði hún getað lagt sitt lóð á vog­ar­skál­arnar gegn ras­isma á Íslandi. Ræturnar eru djúpar. Mein­semdin er mikil og við verðum að horfast í augu við hana,“ sagði hún.

„Er ekki bara best að segja af sér?“

Dagbjört Hákon­ar­dóttir vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar ræddi málið einnig á þingi í dag. „Hvers­dags­legur ras­ismi og kven­fyr­ir­litn­ing lifir enn sem komið er góðu lífi innan rík­is­stjórn­ar­innar,“ sagði hún og bætti því við að ef marka mætti orð for­sæt­is­ráð­herra þyrftu við að sætta okkur við að ummæli inn­við­a­ráð­herra hefðu hvorki verið rædd á vett­vangi rík­is­stjórn­ar­innar í morgun né innan Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs sér­stak­lega.

„Ég neita fyrir mitt leyti að sætta mig við að hvers­dags­legur ras­ismi og kven­fyr­ir­litn­ing sé gott sem sam­þykkt í rík­is­stjórn íslensku íhalds­flokk­anna. Eigum við virki­lega að trúa því að það séu mann­leg mis­tök að for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi ekki ávarpað fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­taka Íslands, Vigdísi Ósk Häsler Sveins­dóttur, með nafni eins og henni er sæm­andi heldur hafi hann kosið, ég end­ur­tek hann valdi, að smætta hana niður á grund­velli kyns og kyn­þáttar? Sam­flokks­fólki hæstv. inn­við­a­ráð­herra hefur verið falið það vafa­sama hlut­verk að biðj­ast afsök­unar á fram­ferði hans og þau ýja bein­línis að því að svona ger­ist bara,“ sagði hún.

Dagbjört sagði enn­fremur að „svona orð­færi“ væri kannski dag­legt brauð í Fram­sókn­ar­flokknum en svo væri sann­ar­lega ekki í öllum stjórn­mála­flokkum.

„Ég ætla að nota tæki­færið og minna á að það er ekki nóg að biðj­ast afsök­unar. Hugur verður að fylgja máli. Hæst­virtur inn­við­a­ráð­herra heldur kannski að hann hafi beðist afsök­unar og það sem verra er, ráð­herrar í íhalds­rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur virð­ast halda það líka. Inni­halds­laust hjal ráð­herra um eigið ágæti, trú á jafn­rétti, við­kvæmar til­finn­ingar ann­arra og að mann­leg mis­tök sem þessi séu jafn nátt­úru­legur hluti af líf­inu og upp­risa sólar að morgni er ekki afsök­un­ar­beiðni og nú neitar inn­við­a­ráð­herra að tjá sig við fjöl­miðla.

Maður sem væri hryggur yfir fram­komu sinni myndi nota slíkt tæki­færi til að koma afstöðu sinni á hreint. Inn­við­a­ráð­herra virð­ist bara vera leiður yfir því að hafa verið stað­inn að verki. Er ekki bara best að segja af sér?“ spurði hún að lokum.

Ráðherrann blindur á eigin forréttindi

Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata var síð­asti ræðu­maður undir liðnum störf þings­ins en hann sagði að und­an­farin ár hefði orðið hávær vit­und­ar­vakn­ing um kyn­þátta­for­dóma þar sem hvítt fólk í for­rétt­inda­stöðu hefði verið hvatt til að hlusta, með­taka, læra og gera betur.

„Það virð­ist vera að minn­is­blaðið hafi ekki borist öllum í Stjórn­ar­ráð­inu ef marka má ummæli inn­við­a­ráð­herra, rasísk ummæli á nýaf­stöðnu bún­að­ar­þingi. For­sæt­is­ráð­herra hefur í fram­hald­inu ekki aðeins lýst því yfir að hún taki afsök­un­ar­beiðni ráð­herr­ans gilda heldur hefur hún lagt til að þjóðin geri það öll, fylgi hennar for­dæmi og faðmi ráð­herr­ann eftir þennan asna­skap.“

Hann sagði að tvennt væri veru­lega athuga­vert við það. „Í fyrsta lagi er for­sæt­is­ráð­herra hvít valda­kona, hún er í gríð­ar­legri for­rétt­inda­stöðu og hvernig á hún að segja fólki sem þarf að þola for­dóma og ras­isma á hverjum ein­asta degi að það sé bara allt í lagi að dusta þetta af sér, fyr­ir­gefa ráð­herr­anum og halda áfram? Ættu afleið­ing­arnar ekki að vera dýpri þegar ráð­herra flaskar á grund­vall­ar­at­riði eins og að vera ekki ras­isti?

Í öðru lagi þjóna ráð­herrar alltaf sem full­trúar Íslands erlendis. Jafnvel þótt þjóðin öll fyr­ir­gæfi inn­við­a­ráð­herra þá getum við ekki litið fram hjá pín­legri fáfræð­inni sem þau afhjúpa á heims­vísu. Þau sýna svart á hvítu hversu blindur ráð­herr­ann er á eigin for­rétt­indi og veru­leika fólks sem þarf að þola for­dóma og jað­ar­setn­ingu. Það ætti að vera öllum ljóst að mað­ur­inn er ekki starfi sínu vax­inn því að svona fáfræði verður ekki bara leið­rétt með afsök­un­ar­beiðni, sama hversu ein­læg hún kann að sýn­ast. Stjórn­ar­liðar þurfa að sjá sóma sinn í að við­ur­kenna upp­lifun þeirra sem verða fyrir for­dómum í íslensku sam­fé­lagi og sýna með skýrum hætti að rasískur hugs­un­ar­háttur sé ekki lið­inn í rík­is­stjórn Íslands.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár