Sigurður Ingi biðst afsökunar á því að látið „óviðurkvæmileg orð“ falla

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins er sagður hafa vísað til fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­taka Íslands sem „hinnar svörtu“. Hann segir að honum hafi orðið á og biðst afsök­unar á þeim orðum sem hann lét falla.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, hefur birt stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hann biðst inni­lega afsök­unar á orðum sem hann lét falla í garð Vig­dísar Häsler, fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­taka Íslands, í sam­kvæmi í tengslum við Bún­að­ar­þing síð­asta fimmtu­dags­kvöld. Í umfjöllun á vef DV í gær sagði að Sig­urður Ingi hefði vísað til Vig­dísar sem „hinnar svört­u“.

Í stöðu­upp­færsl­unni sem Sigurður Ingi birti í dag segir að hann sé alinn upp við það og það sé hans lífs­skoðun að allir séu jafnir. „Þess vegna hef ég tamið mér að koma jafnt fram við alla. En mér verður á eins og öðrum. Það þykir mér miður. Í kvöld­verð­ar­boði Fram­sóknar fyrir full­trúa á Bún­að­ar­þingi síð­ast­liðið fimmtu­dags­kvöld, lét ég óvið­ur­kvæmi­leg orð falla í garð fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna. Á þeim orðum biðst ég inni­legrar afsök­unar. Í líf­inu er maður alltaf að læra á sjálfan sig. Sárt er þó að sá lær­dómur bitni á til­finn­ingum ann­arra.“

Vigdís birti stöðu­upp­færslu fyrr í dag þar sem hún sagði að „afar sær­andi ummæli“ hafi verið látin falla og að hún hafi heyrt þau, sem og fleira starfs­fólk Bænda­sam­tak­anna.

Ing­veldur Sæmunds­dóttir aðstoð­ar­maður Sig­urðar Inga vís­aði því þó á bug í sam­tali við DV að ráð­herra hefði notað slíkt orða­lag – hann hefði þess í stað sagt að hann vildi ekki halda halda á Sjálf­stæð­is­manni eftir að sú hug­mynd kom upp að hann og fleiri héldu á Vig­dísi í eins­konar „planka“ fyrir mynda­töku.

[adspot]Vig­dís sjálf segir þetta hins vegar rangt. „Að­stoð­ar­maður ráð­herr­ans var ekki við hlið hans þegar ummælin voru látin falla, eins og hún hefur haldið fram en myndir úr þess­ari mynda­töku sýna það án alls vafa. Það er sær­andi þegar reynt er að gera lítið úr upp­lifun minni og þegar bein­línis rangar skýr­ingar eru not­aðar við það.“

Neitar að bera ábyrgð á orðum ráð­herra í sinn garð

Hún segir að hún hafi aldrei talið að hún þyrfti að setj­ast niður og skrifa yfir­lýs­ingu af þessu tagi. „Ég hef aldrei látið húð­lit, kyn­þátt, kyn­ferði eða annað skil­greina mig. Ég hef alltaf talið að verk mín og gjörðir töl­uðu fyrir sig sjálf, en núna tel ég mig knúna til að tjá mig um það sem gerð­is­t,“ skrifar hún.

„Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráð­herr­ann við­hafði í minn garð. Duldir for­dómar eru gríð­ar­legt sam­fé­lags­mein og grass­era á öllum stigum sam­fé­lags­ins. Þeir smætta verk ein­stak­linga og gjörðir niður í lit eða kyn,“ skrifar Vig­dís.

Hún bætir því við að hún hygg­ist ekki tjá sig frekar um þetta, heldur kjósa að „horfa fram á veg­inn að vinna úr þeim góðu nið­ur­stöðum sem fram komu á Bún­að­ar­þing­i.“

Yfir­lýs­ingu Vig­dísar má lesa hér að neð­an:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár