Kallaði atburðarásina í aðdraganda afsökunarbeiðni Sigurðar Inga gaslýsingu

Aðstoð­ar­maður Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sagði við fjöl­miðil um helg­ina að það væri „algjört bull“ að ráð­herr­ann hefði við­haft rasísk ummæli. Sigurður Ingi hefur nú geng­ist við þeim. Þing­maður Við­reisnar sagði við­brögð aðstoð­ar­manns­ins vera gas­lýs­ingu.

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar.
Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um það í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag hvort hún teldi að það þyrfti ekki að skoða þá atburða­rás sem átti sér stað í aðdrag­anda þess að Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra baðst afsök­unar á rasískum ummælum fyrr í dag.

Þar vís­aði Sigmar til við­bragða Ing­veldar Sæmunds­dóttur, aðstoð­ar­manns Sigurðar Inga, sem birt­ust í kjöl­far þess að fyrstu fréttir voru sagðar af ummælum Sigurðar Inga um Vig­­dísi Häsler, fram­­kvæmda­­stjóri Bænda­­sam­­taka Íslands. Þar var ráð­herr­ann sagður hafa vísað til Vig­dísar sem „hinnar svörtu“ í sam­kvæmi á fimmtu­dags­kvöld. Ing­veldur vís­að því á bug í sam­tali við DV um helg­ina að ráð­herra hefði notað það orða­lag og sagði orð­rétt: „Þetta er algjört bull.“

Sigurður Ingi baðst hins vegar afsök­unar á ummæl­unum síð­degis í dag og sagði orðin sem hann hefði notað hafa verið „óvið­ur­kvæmi­leg.“

Sagði Sigmari að spyrja Sigurð Inga

Sigmar sagði að skoða þyrfti að afsök­un­ar­beiðni Sigurðar Inga í ljósi þeirrar atburða­rásar. „Ég velti því fyrir mér hvort að þessi gas­lýs­ing sem að birt­ist okkur um helg­ina, hvort hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra svari okkur ekki með aðeins efn­is­meiri hætti, því eins leið­in­legt og mér þykir að standa hér í þessum ræðu­stól og tala um þetta þá er það alveg gríð­ar­lega mik­il­vægt. Verðum við ekki að velta fyrir atburða­rásinni áður en beðist var afsök­unar og hver er hljómur afsök­un­ar­beiðni þegar aðdrag­and­inn er þessi?“

Gas­lýs­ing er tækni sem á ensku kall­ast „gaslight­ing“, Í henni felst að neita stans­laust allri sök, afvega­leiða, setja fram mót­sagn­ir, ljúga upp á fólk afstöðu, hengja sig í öll auka­at­riði og hanna nýja atburða­rás eftir á sem hentar mál­stað þess sem er að verja sig.

[adspot]Katrín svar­aði því til að hún sæi ekki ástæðu til að draga heil­indi afsök­un­ar­beiðni Sigurðar Inga í efa. „Hvað varðar orð aðstoð­ar­manns hæst­virts ráð­herra þá hlýt ég hins vegar að vísa vanga­veltum hátt­virts þing­manns til hæst­virts inn­við­a­ráð­herra þar sem téður aðstoð­ar­maður starfar. Ég ætla ekki að tjá mig um það hér.“·

Kjarninn hefur reynt að ná sam­bandi við Ingveldi, Sigurð Inga og Sigtrygg Magnason, hinn aðstoð­ar­mann Sigurðar Inga, í dag vegna máls­ins en án árang­urs.

„Duldir for­dómar eru gríð­ar­legt sam­fé­lags­mein“

Vig­­dís birti stöð­u­­upp­­­færslu fyrr í dag þar sem hún sagði að „afar sær­andi ummæli“ hefðu verið látin falla og að hún hefði heyrt þau, sem og fleira starfs­­­fólk Bænda­­­sam­tak­anna.

[links]Hún sagði að hún hefði aldrei talið að hún þyrfti að setj­­­ast niður og skrifa yfir­­lýs­ingu af þessu tagi. „Að­stoð­ar­maður ráð­herr­ans var ekki við hlið hans þegar ummælin voru látin falla, eins og hún hefur haldið fram en myndir úr þess­ari mynda­töku sýna það án alls vafa. Það er sær­andi þegar reynt er að gera lítið úr upp­lifun minni og þegar bein­línis rangar skýr­ingar eru not­aðar við það. Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráð­herr­ann við­hafði í minn garð. Duldir for­dómar eru gríð­ar­legt sam­fé­lags­mein og grass­era á öllum stigum sam­fé­lags­ins. Þeir smætta verk ein­stak­linga og gjörðir niður í lit eða kyn.“

Í kjöl­far hennar birti Sigurður Ingi eigin stöðu­upp­færslu og baðst afsök­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár