„Mun hæstvirtur forsætisráðherra fara fram á að innviðaráðherra segi af sér?“

Þing­maður Pírata sagði ummæli Sigurðar Inga Jóhanns­sonar um fram­kvæmda­stjóra BÍ vera rasísk, niðr­andi, sær­andi og áreitni. Hún spurði for­sæt­is­ráð­herra hvort hún myndi fara fram á afsögn. For­sæt­is­ráð­herra sagði inn­við­a­ráð­herra hafa beðist afsök­unar.

Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata.
Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra að því í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag hvort hún myndi fara fram á að Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, segði af sér ráð­herra­emb­ætti.

Tilefnið voru fréttir sem sagðar voru um helg­ina um ummæli Sigurðar um Vig­dísi Häsler, fram­kvæmda­stjóri Bænda­sam­taka Íslands, en þar var hann sagður hafa vísað til Vigdísar sem „hinnar svörtu“ í sam­kvæmi á fimmtu­dags­kvöld.

„Ummælin sem um ræðir voru rasísk, þau voru niðr­andi og þau voru sær­andi,“ sagði Halldóra og sagði þau telj­ast áreitni í skiln­ingi laga um jafna með­ferð óháð kyn­þætti og þjóð­ern­is­upp­runa. Því féllu þau undir bann við mis­munun sam­kvæmt lögum. Hún vildi í því ljósi spyrja Katrínu hvernig hún teldi að rík­is­stjórnin ætti að axla ábyrgð á ummælum inn­við­a­ráð­herra. „Mun hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra. og ráð­herra jafn­rétt­is­mála, fara fram á að inn­við­a­ráð­herra segi af sér?“

Sigurður Ingi birti stöðu­upp­færslu á Facebook fyrr í dag þar sem hann baðst afsök­unar á ummæl­unum. Katrín vitn­aði til þess í svari sínu og sagði afsök­un­ar­beiðn­ina end­ur­spegla þá afstöðu Sigurðar Inga að ummælin hefðu verið röng og að þau hefðu ekki átt að falla, enda óásætt­an­leg með öllu. „Við gerum þá kröfu í íslensku sam­fé­lagi að öllum sé sýnd virð­ing í hví­vetna og að á ráð­herrum í rík­is­stjórn hvíli rík­ari krafa og að undir henni eigum við ráð­herrar að standa. Þegar mönnum verður á og þeir gera mis­tök skiptir hins vegar máli að þeir stigi fram og biðj­ist afsök­unar með skýrum hætti sem inn­við­a­ráð­herra hefur gert og það skiptir máli.“

„Það er hennar að draga línuna í sandinn“

Halldóra kom aftur í pontu og sagði Katrínu auð­vitað ekki bera ábyrgð á orðum eða gjörðum ann­arra ráð­herra innan rík­is­stjórn­ar­innar. „En sem leið­togi rík­is­stjórn­ar­innar ber hún ábyrgð á því að vera leið­andi í þeim sam­fé­lags­breyt­ingum sem hún sjálf boðar. Það er hennar að draga lín­una í sand­inn. Ef hún ætlar að verða kyndil­beri jafn­réttis út á við hlýtur hún að þurfa að bregð­ast við á ein­hvern hátt þegar ráð­herra í hennar eigin rík­is­stjórn verður upp­vís að fram­komu sem brýtur í bága við allt sem hún seg­ist standa fyrir. Að minnsta kosti þegar það hentar henni.“

[adspot]Halldóra spurði því Katrínu um hversu alvara henni væri með að upp­ræta mis­munum? „Þegar í harð­bakk­ann slær, hvar stendur hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra? Er nóg að biðj­ast bara afsök­unar á lög­broti? Eru það skila­boðin inn í fram­tíð­ina? Að ef að ráð­herra brýtur lög, eða sýnir hegðun sem er á skjön við skila­boð rík­is­stjórn­ar­innar, er á skjön við þá hegðun sem rík­is­stjórnin fer fram á að borg­arar lands­ins sýni, er þá nóg að segja bara; afsakið, þetta voru mis­tök.“

Katrín sagð­ist standa nákvæm­lega þar sem hún hefði staðið hingað til og stæði þar áfram. „Það liggur algjör­lega fyrir að þau ummæli sem vitnað er til voru óásætt­an­leg og ég rengi ekki orð fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna í þeim mefnum. En við verðum líka að geta tekið því þegar fólk biðst afsök­unar, eins og hæst­virtur inn­við­a­ráð­herra hefur gert með mjög skýrum hætti.“

Baðst afsökunar á óviðurkvæmilegum orðum

Í stöðu­upp­færsl­unni sem Sig­urður Ingi birti í dag sagði að hann væri alinn upp við það og það væri hans lífs­skoðun að allir væru jafn­ir. „Þess vegna hef ég tamið mér að koma jafnt fram við alla. En mér verður á eins og öðr­um. Það þykir mér mið­ur. Í kvöld­verð­ar­boði Fram­sóknar fyrir full­trúa á Bún­að­ar­þingi síð­ast­liðið fimmtu­dags­kvöld, lét ég óvið­ur­kvæmi­leg orð falla í garð fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna. Á þeim orðum biðst ég inni­legrar afsök­un­ar. Í líf­inu er maður alltaf að læra á sjálfan sig. Sárt er þó að sá lær­dómur bitni á til­finn­ingum ann­arra.“

Áður hafði Ing­veldur Sæmunds­dóttir, aðstoð­­ar­­maður Sig­­urðar Inga, vís­að því á bug í sam­tali við DV að ráð­herra hefði notað það orða­lag sem hann hefur nú beðist afsök­unar á. Hann hefði þess í stað sagt að hann vildi ekki halda halda á Sjálf­­stæð­is­­manni eftir að sú hug­­mynd kom upp að hann og fleiri héldu á Vig­­dísi í eins­­konar „planka“ fyrir mynda­­töku.

[links]Vig­dís birti stöðu­upp­færslu fyrr í dag þar sem hún sagði að „afar sær­andi ummæli“ hefðu verið látin falla og að hún hefði heyrt þau, sem og fleira starfs­­fólk Bænda­­sam­tak­anna. Hún sagði að hún hefði aldrei talið að hún þyrfti að setj­ast niður og skrifa yfir­lýs­ingu af þessu tagi. „Aðstoð­ar­maður ráð­herr­ans var ekki við hlið hans þegar ummælin voru látin falla, eins og hún hefur haldið fram en myndir úr þess­ari mynda­töku sýna það án alls vafa. Það er sær­andi þegar reynt er að gera lítið úr upp­lifun minni og þegar bein­línis rangar skýr­ingar eru not­aðar við það. Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráð­herr­ann við­hafði í minn garð. Duldir for­dómar eru gríð­ar­legt sam­fé­lags­mein og grass­era á öllum stigum sam­fé­lags­ins. Þeir smætta verk ein­stak­linga og gjörðir niður í lit eða kyn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár