Facebook gengur frá WhatsApp samningnum

Facebook hefur endanlega gengið frá kaupum á samskipta­forrits­fyrirtækinu WhatsApp fyrir um 19 millljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 2.200 milljörðum króna. Tilkynnt var um kaupin fyrir um hálfu ári, í febrúar á þessu ári. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar en stofn­endur WhatsApp, Brian Acton og Jan Koum, fengu greitt fyrir í reiðufé og hluta­bréfum í Facebook. Úkraínu­maðurinn Koum græddi um 6,8 milljarða Bandaríkja­dala á samningnum og verk­fræðingurinn Acton um 3,5 milljarða Bandaríkja­dala.

Í umfjöllun Forbes um samninginn er sérstak­lega tekið fram að Facebook hafi borgað meira en sem nemur árlegri „lands­framleiðslu Íslands“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár