Hvetur til ábyrgðar í peningastefnu og ríkisfjármálum

Hagfræði­prófessor biður stjórn­völd um að lækka halla­rekstur ríkis­sjóðs og hafa raunvexti jákvæða, þrátt fyrir kröfur fyrir­tækja og stjórn­málamanna um að halda vöxtum lágum og auka ríkis­útgjöld án fjár­mögnunar.

Gylfi Zoega, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands
Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands Mynd: Skjáskot

Ríkis­stjórn og Seðla­bankinn ættu að fara varlega í peninga­stefnu og ríkis­fjármálum hérlendis, þar sem verðbólgu­þrýstingur hefur aukist í Banda­ríkjunum og hagvaxtar­horfur í Kína hafa versnað. Ráðlegt væri að minnka halla­rekstur ríkis­sjóðs, hafa jákvæða raunvexti og gæta hófs í launa­kröfum, en reyna þess í stað að bæta kjör þeirra sem eru verst settir.

Þetta skrifar Gylfi Zoega, hagfræði­prófessor við Háskóla Íslands, í nýjasta tölublaði Vísbendingar, sem kom út á föstu­daginn.

Verðbólguþrýstingur vegna peningaprentunar

Í grein sinni fer Gylfi yfir efnahags­horfur á heimsvísu, sér í lagi í Banda­ríkjunum, Kína og Evrópu. Hann segir peninga­magn í umferð hafa aukist töluvert á vestur­löndum síðan COVID-19 heims­faraldurinn byrjaði í fyrravor og að ekkert lát verði á þeirri aukningu næsta hálfa til heila árið.

Samkvæmt honum mun aukning peninga­magns umfram hagvöxt að lokum enda í vaxandi verðbólgu. Nú þegar sé farið að bera á skorti á vinnuafli víðs vegar um hagkerfið sem veldur hækkun launa, en Gylfi segir þessar launa­hækkanir muni leiða til verð­hækkana.

Hins vegar segir Gylfi það vera óvíst hvort stýri­vextir muni hækka í Banda­ríkjunum, Evrópu og Bretlandi, þar sem slíkar hækkanir gætu haft í för með sér gjaldþrot fyrir­tækja, aukna vaxta­byrði húsnæðis­lána og aukið atvinnu­leysi þeirra sem verst hafa það. Því yrði örugglega vaxandi pólitískur þrýstingur á seðla­bankana að halda vöxtum lágum.

Ísland í ágætri stöðu

Í slíkum aðstæðum gæti verðbólga farið vaxandi á Vestur­löndum og smitast til Íslands. Þó bætir Gylfi við að stjórn­völd hérlendis séu í ágætri stöðu til að bregðast við henni, þar sem skuldir ríkis­sjóðs, fyrir­tækja og heimila séu hóflegar og peninga­magn hafi ekki aukist umtals­vert.

„Við þessar aðstæður væri ráðlegt að fara varlega; að minnka halla­rekstur ríkis­sjóðs, að hafa jákvæða raunvexti sem stuðla að innlendum sparnaði og jákvæðum viðskipta­jöfnuði, að koma í veg fyrir mikið flæði spákaupmennsku­fjármagns inn í krónuna og jafna sveiflur hennar með inngripum,“ skrifar Gylfi. „Á vinnu­markaði verður að gæta hófs í launa­kröfum og reyna þess í stað að bæta kjör þeirra sem verst eru settir með þeim tilfærslu­kerfum ríkisins. Samkeppnis­hæfi atvinnu­lífsins skiptir sköpum,“ bætir hann við.

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár