Mynd um Maidan er sterkur vitnisburður um úkraínsku mótmælin

Í nóvember 2013 mótmæltu þúsundir á sjálfstæðis­torginu Maidan í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu. Ein ástæðan var að Viktor Janukovits forseti hafði rift samkomu­lagi varðandi Evrópu­sambandið og snúið sér að Rússlandi og Pútín í staðinn. Þegar mótmælin hófust var kvikmynda­leik­stjórinn Sergei Loznitsa staddur í Kænugarði. Loznitsa ,sem býr í Berlín, fæddist árið 1964 í Hvíta-Rússlandi en ólst upp í Kænugarði þar sem hann nam stærð­fræði og japönsku. 1997 lauk hann námi í kvikmynda­leikstjórn í Moskvu og hefur leikstýrt fjórtán marg­verð­launuðum heimilda­myndum og tveimur leiknum kvik­myndum sem m.a. voru sýndar á kvikmynda­hátíðinni í Cannes.

Nýjasta mynd hans Maidan ,var frumsýnd þar í vor og vekur nú víða athygli og hefur hlotið alþjóðlegar viðurkenningar . Á kvikmynda­hátíðinni CinEast í Luxemborg var Loznitsa nýlega heiðraður sem „einn af mikil­vægustu lista­mönnum okkar tíma.“

Heim­ilda­myndin var tekin upp á 90 dögum og sýnir mót­mæli og upp­reisn almenn­ings gegn spilltum stjórn­völdum.

Heimilda­myndin var tekin upp á 90 dögum og sýnir mótmæli og uppreisn almennings gegn spilltum stjórn­völdum. Það er enginn sögumaður, aðeins nokkrir textar sem mynda kafla­skipti.Við heyrum ræður og tónlist en sjáum sjaldan flytjendur. Stöðugri myndavél er beint að fólkinu og sýnir þróun og framvindu byltingarinnar. Marg­breytilegt líf og litir innan rammans minna stundum á málverk eldri meistara.

Eftir að um klukku­tími er búinn af myndinni birtast sjúkra­bílar og stemningin sortnar. Hjálmar og gasgrímur, mótmælendur í röðum færa götu­steina að fremstu víglínu. Sprengjur, táragas og hóstandi manneskjur. Maidan er sterkur vitnis­burður um mótmælin en um leið tímalaus mynd með átakanlegum lokasenum þar sem hundrað manns hafa fallið, hundruð eru týnd og mörg hundruð særðir.

Kjarninn ræddi nýverið við Loznitsa.

Breytingarnar höfðu sterk áhrif á mig


Af hverju gerðir þú mynd um Maidan?

„Ég var í Kænugarði í nóvember 2013 að undirbúa leikna mynd um Babi Jar fjölda­morðin sem áttu sér stað í seinni heim­styrjöldinni. Ég fann að þetta væri áríðandi og að ég þyrfti að mynda það, svo ég fór heim og lagði önnur verkefni til hliðar. Þegar ég snéri aftur til Kænugarði í desember gerði ég mér grein fyrir því að Janukovits var ekki lengur forseti Úkraínu. Hann hafði tapað allri virðingu fólksins. Það var ljóst að þessi stjórn myndi falla fljótlega og engir kraftar gætu haldið forsetanum við völd. Jafnvel þótt ég hafi alist upp í Kænugarði og þekki borgina vel höfðu þessar breytingar sem ég sá mjög sterk áhrif á mig.“

Sergei Loznitza tók myndina upp á 90 dögum.

Sergei Loznitza tók myndina upp á 90 dögum.
Sergei Loznitza tók mynd­ina upp á 90 dögum.

Var erfitt að finna fram­leiðenda að myndinni með svona stuttum fyrirvara?

„Yfirleitt þegar ég fer til fram­leiðenda er ég alveg viss um hvernig myndin mun líta út. Þarna vissi ég ekki hvernig þetta gæti þróast eða hvort ég væri yfirleitt með mynd. Það tekur tíma að fá svar frá fram­leiðendum og í okkar tilfelli var enginn tími til að bíða. Fram að 23. mars í ár var myndin fjár­mögnuð af mér og litlu fyrirtæki okkar í Hollandi. Síðan fengum við stuðning frá Hollensku Kvikmynda­stofnuninni. Frá þeim sjónar­hóli séð er þetta „no-budget“ mynd.“

Hvernig bylting var þetta ?

„Í fyrsta lagi var þetta and-nýlendu­bylting. Rússland er auðvitað nýlendu­herrann, þetta var einhvers konar „andleg bylting“ gegn rússneskum yfirráðum. Það sést einnig á stríðinu í austur Úkraínu. Það hófst vegna þáttöku Rússlands. Í öðru lagi var þetta and-sovésk bylting. Við gerðum enga byltingu gegn Sovét­ríkjunum. Það varð bara hrun í landinu en engin pólitísk bylting. Við höfum aldrei gert upp við Sovét­ríkin eins og Þjóð­verjar gerðu í Nürnberg-réttar­höldunum. Kommúnista­flokkurinn er enn til og löglegur í Úkraínu. Á meðan á Maidan mótmælunum stóð voru mörg minnis­merki um Lenin eyðilögð.

Í þriðja lagi var þetta hugmyndaleg bylting. Á Sovétímanum vildi fólk heldur láta aðra um að taka ákvarðanir, Stalin til dæmis. Nú gerir fólk sér grein fyrir því hversu mikilvægt það er að stjórna eigin lífi. Út frá þessu sjónar­horni þá er evrópskur hugsunar­háttur að færa sig í austur.“

„Fólkið hafði upplifað hræðilega hluti saman og þú sást það í andlitum þeirra. Sjálfs­aginn og vinnu­harkan voru mjög áhrifarík þegar haft er í huga að það var enginn að skipuleggja neitt. Hlutinn þegar hinir syrgjandi kveðja þá látnu er auðvitað mjög mikil­vægur. Ég sleppti því viljandi að mynda það, sýni bara fólkið sem fylgist með," segir Loznitsa um mynd sína.

Sjálfstæðistorgið Maidan í Kænugarði


„Hátíð­ar­stemmn­ingin á fyrstu dögum Maidan-mót­mæl­anna var mjög heill­andi og styrkj­andi, næstum eins og að liggja í móð­ur­kviði. Ég hef aldrei áður séð eða upp­lifað þannig sam­stöðu og vin­áttu .Það var ótrú­legt að sjá fjöld­ann vinna saman. Allir virt­ust upp­teknir við að gæta Mai­dan­torgs­ins, hjálpa til í eld­hús­unum, veita lækn­is­að­stoð, koma fram á svið­inu og skipu­leggja starf sjálf­boða­lið­anna. Það voru líka ótrú­lega margir sem gáfu og eld­uðu mat, allir fengu að borða sama í hvaða liði þeir voru. Ég held að engin bylt­ing hafi verið jafn vel nærð og þessi.

„Fólkið hafði upplifað hræðilega hluti saman og þú sást það í andlitum þeirra. Sjálfsaginn og vinnuharkan voru mjög áhrifarík þegar haft er í huga að það var enginn að skipuleggja neitt. Hlutinn þegar hinir syrgjandi kveðja þá látnu er auðvitað mjög mikilvægur. Ég sleppti því viljandi að mynda það, sýni bara fólkið sem fylgist með," segir Loznitsa um mynd sína.
„Fólkið hafði upp­lifað hræði­lega hluti saman og þú sást það í and­litum þeirra. Sjálfsag­inn og vinnu­harkan voru mjög áhrifa­rík þegar haft er í huga að það var eng­inn að skipu­leggja neitt. Hlutinn þegar hinir syrgj­andi kveðja þá látnu er auð­vitað mjög mik­il­vægur. Ég sleppti því vilj­andi að mynda það, sýni bara fólkið sem fylgist með," segir Loznitsa um mynd sína.

„Allir virtust uppteknir við að gæta Maidantorgsins, hjálpa til í eldhúsunum, veita læknis­aðstoð, koma fram á sviðinu og skipuleggja starf sjálfboða­liðanna. Það voru líka ótrúlega margir sem gáfu og elduðu mat, allir fengu að borða sama í hvaða liði þeir voru," segir Loznitsa.

0003018
0003018

Fyrstu vikurnar á Madiantorgi var auðvitað hætta en þar var líka mikill húmor og hlátur. Þessi sérstaka úkraínska kímnigáfa hefur hjálpað þjóðinni við að komast í gegnum erfiða tíma. Að hlægja að heimskum og spilltum stjórn­málamönnum í stað þess að hata þá. Þarna blómstraði sköpunar­krafturinn. Hópur áhuga­söngvara og skálda fluttu stundum fremur einfaldar en ótrúlega einlægar ballöður á sviðinu við Maidan.“

Myndin hefst á mann­fjölda sem syngur þjóð­sönginn og þú sýnir það tvisvar. Af hverju?

„Af því að það er hlaðið merkingu. Þetta er mjög áhrifarík sena. Hún snertir áhorf­andann og vekur sterkar tilfinningar. Ég bað töku­manninn um að fylla rammann af fólki, mann­hafinu. Það er erfitt að ímynda sér þúsundir rússa sem taka samtímis ofan halda hönd að hjarta og syngja þjóð­sönginn. Þannig séð er Úkraína ólík Rússlandi. Fólk var stöðugt syngjandi á Maidan. Það vakti furðu mína. Ég get ekki ímyndað mér að þetta gerðist í Moskvu. Ég veit reyndar ekki með þjóð­sönginn en þar eru þjóðlögin að deyja út. Eitthvað mjög mikilvægt er að hverfa, það sem var mjög sérstakt við þjóðina, fyrir fólkið.

Þetta hefur varðveist í Úkraínu. Það eru svo mörg skáld þarna sem lesa ljóðin sín, þeir gera það af ástríðu og allir eru tilbúnir að syngja með. „Cherovna Ruta“ (vinsælt úkraínskt lag) kom ekki mjög vel út í upptökunum svo við þurftum að gera nýja útgáfu við hljóð­vinnsluna í Vilnius. Við leituðum til Úkraínska sendi­ráðsins þar og starfs­fólkið hóf svona líka fallegan söng fyrir kokur öll saman. Nei þetta er ekki Rússland, heldur annað.“

Af hverju var mynda­vélin alltaf föst?

„Áður en ég geri mynd bý ég til vinnu­reglur sem ég fylgi. Þessar reglur stjórna mynd­byggingunni, flæði og lengd. Myndin átti að fjalla um fólkið, því þurfti ég á stöðugri myndavél að halda til að sýna það. Ég gat ekki sagt þessa sögu á annan hátt. Ef þú fylgir einni persónu þá verður hún og einkalíf hans miðpunktur. Þú þarft að stíga nokkur skref afturábak. Þegar ég setti upp mynda­vélina gætti ég þess að enginn ein persóna tæki yfir rammann.Það er til stórkostlegt dæmi úr rússneskri kvik­myndasögu með fólks­fjölda í uppreisn, „Verk­fallið“ eftir Eisenstein. Hann var fyrirmynd mín. Síðan fylgdi ég bara atburðar­rásinni. Þannig byggði ég myndina. Hver ný sena sýnir nýtt stig í þróun sögunnar. Þannig séð er þetta söguleg mynd.

Takmark mitt er að fara með áhorf­andann á Maidan og láta hann upplifa 90 daga byltingu. Ég vildi fjar­lægjast og láta áhorfenda mæta atburðunum augliti til auglits. Ég notaði því langar tökur til að draga fólk inn í frásögnina án þular eða skýringa.“

Sjálfboða­liðar í Kænugarði að útbúa mat fyrir mótmælendur.

Sjálfboðaliðar í Kiev að útbúa mat fyrir mótmælendur.
Sjálf­boða­liðar í Kiev að útbúa mat fyrir mót­mæl­endur.

Er einhver hluti í myndinni sem skiptir þig meira máli en aðrir?

„Það er lykilsena eftir skot­árásirnar, þegar skytturnar eru farnar frá Maidantorgi. Þú sérð stóra hópa fólks að hreinsa til, byggja varnar­garða, bera bíldekk og vatn. Þetta hafði djúp áhrif á mig. Fólkið hafði upplifað hræðilega hluti saman og þú sást það í andlitum þeirra. Sjálfs­aginn og vinnu­harkan voru mjög áhrifarík þegar haft er í huga að það var enginn að skipuleggja neitt. Hlutinn þegar hinir syrgjandi kveðja þá látnu er auðvitað mjög mikil­vægur. Ég sleppti því viljandi að mynda það, sýni bara fólkið sem fylgist með.“

Eftir að skyttur Janukovits höfðu myrt yfir hundrað manns flúði forsetinn landið ásamt fjölskyldu­meðlimum. Viku seinna yfirtóku þung­vopnaðir grímu­klæddir menn þingið í Simferopol og mynduðu lepp­stjórn Rússlands. Sumir þeirra skyttur, sem nýlega höfðu myrt mótmælendur í Kænugarði, á flótta undan réttlætinu. Síðan hertók Vladimir Pútín Krímskaga og kynnti undir vopnaðum uppreisnum í Donbas héraði í austur Úkraínu.

Neitaði að tala rússnesku


Við frum­sýn­ingu mynd­ar­innar í Cannes í vor neit­aðir þú að tala við rúss­neska fjöl­miðla. Af hverju?

„Allt sem sagt er um Úkraínu í opinberum rússneskum fjöl­miðlum er lygi og ég vil ekki taka þátt í því. Það er upplýsingar­stríð í gangi og fjöl­miðlar eru notaðir sem vopn. Og með góðum árangri skilst mér. Opinberir rússneskir fjöl­miðlar misnota ótta fólks og mála atburðina í Úkraínu eins dökka og þeir mögulega geta. Eitt dæmi er að rússneskir fjöl­miðlar tala um Úkraínsk stjórn­völd sem Juntu.

Junta var yfirleitt notað yfir það sem gerðist í löndum Suður Ameríku. Eða yfir það sem gerðist í Grikk­landi á sjöunda og áttunda áratugnum. Orðið vísar í valdarán og á alls ekki við. Það virkar sem hugmynda­fræðileg klisja. Fólk þekkir orðið frá Sovét-tímanum. Rússar tala um fasista í Úkraínu. Tæknilega séð var fasismi aðeins til á Ítalíu. Ef maður opnar Soviet Encyclopedia, sem var aðal uppsláttarrit þess tíma, má lesa skýringu á fasisma. Þar eru sex skýringar. Að minsta kosti fimm þeirra (ofsóknir á frjálsum félaga­samtökum, ofsóknir gegn minnihluta­hópum osfr.) eru það sem stjórn Pútíns er að gera! Rússar geta stýrt umræðu og áróðri á mjög áhrifa­ríkan hátt. Þeir nota orð úr sovéskri fortíð og rangfæra þau upp á stöðuna í dag.“

Leik­stjórinn segir að byltingin hafi verið þríþætt. Í fyrsta lagi and-nýlendu­bylting gagnvart Rússlandi, í öðru lagi and-sóvésk bylting gagnvart sögunni og í þriðja lagi hugmynda­fræðileg bylting.

Maidan
Maidan

En hvað er að gerast í Úkraínu í dag?

„Í fyrsta lagi kem ég frá Kænugarði, öllum sem lifðu í Sovét­ríkjunum stendur þetta nærri því það eru nokkrir mikil­vægir hlutir. Þessir árekstrar hugsunar­hátta, eða meðvitundar. Þetta er stríð sem fjallar um rétt þræla til að verða þrælar aftur. Þetta fólk sem ver drauminn um Sovét­ríkin, það dreymir í raun og veru um að verða þrælar aftur. Til að einhver frændi leysi vandamál þeirra. Lenin eða Vova frændi. Það fjallar um þetta.“

Á kvimyndahátíðinni í Cannes mótmæltir þú handtöku kollega þíns kvikmynda­leik­stjórans Oleg Sentsov frá Úkraínu sem var hand­tekinn í mai í Simferopol af rússnesku leyni­þjónustunni FSB?

„Honum er haldið í fangelsi mánuðum saman á algerlega ógrunduðum ásökunum. Hann var pyntaður og hótað kynferðis­ofbeldi og laminn til játninga. Síðan var hann falinn í tær vikur þar til verstu örin hurfu. Hann er hugrakkur maður og nú hafa þeir brotið tennur hans og framlengt fangelsis­vist hans í Moskvu. Ég tel það afar mikilvægt að tala um Oleg Sentsov það er eina leiðin til að stuðla að frelsi hans og annara.

Þeir sem handtóku hann og aðra eru , eins og Stalíntímanum, að búa til absúrd ákærur sem hafa ekkert með raun­veruleikann að gera.“

En verður myndin þín þá einhvern tíma sýnd í Rússlandi?

„Já, ég mun bráðum setja hana á netið. Ég lít á hana sem fræðslu­mynd. Fólk þarf að sjá þetta.Hvað sem öllu líður hefur hún hlotið góðar móttökur. Af yfir hundrað myndum sem voru sýndar í Cannes lenti hún fyrsta sæti gagn­rýnenda sem kom mér reyndar á óvart. Á sýningum myndarinnar hefur fólk klappað og einnig hrópað Slava Ukraina! Heiður til Úkraínu. Það er mjög áhrifa­ríkt að upplifa það.

Myndin endar á minningar­athöfn til heiðurs baráttu­fólki sem lét lífið á Maidantorgi. Í löndum okkar er algengt að reisa minnis­varða yfir óþekkta hermenn. Ég trúi því að hlutirnir geti breyst ef hetjurnar bera nöfn því við verðum að muna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár