Áhugasamir kaupendur geta séð hæstu tilboð sem borist hafa

Ný veflausn sprota­fyrir­tækisins KOT, sem hönnuð er til að halda utan um sölu á stórum fasteigna­verkefnum, fór í loftið í vikunni. Þar munu kaupendur geta séð hæstu virku tilboð í eignir sem eru til sölu og fengið SMS ef ný tilboð berast.

Veflausn KOT er ætluð til þess að hjálpa þeim sem eru að selja stór nýbyggingaverkefni að halda utan um söluferlið.
Veflausn KOT er ætluð til þess að hjálpa þeim sem eru að selja stór nýbygg­inga­verk­efni að halda utan um sölu­ferlið. Mynd: Reykjavíkurborg

Sprota­fyrirtækið KOT var stofnað á síðasta ári, með það að markmiði að bjóða upp á veflausn fyrir sölu stærri fasteigna­verkefna sem væri leiðandi þegar kæmi að skilvirkni, yfirsýn og gagn­virkni. Í vikunni sem var að líða komu tugir nýrra íbúða sem verktaka­fyrirtækið ÞG Verk hefur til sölu í Vogabyggð í Reykjavík inn á vef fyrir­tækisins, sem lýsir lausn sinni sem nokkurs konar heima­banka fyrir fasteigna­viðskipti.

Róbert Helgason framkvæmda­stjóri KOT segir í samtali við Kjarnann að það sem fyrir­tækið vilji koma til móts við sé hið mikla utan­umhald sem fylgi sölu íbúða í stærri fasteigna­verkefnum. Í dag sé staðan þannig að það sé ofboðs­lega mikið af tölvu­póstum með skjölum á .pdf-formi sem þurfi að vera á flugi á milli seljanda og fasteigna­sala og til og frá kaupendum sömuleiðis, með tilheyrandi villu­hættu.

„Það hefur vantað í þennan geira það sama og er á fjármála­markaði, heimabanka­aðgang, þannig að notendur geti skráð sig inn og séð sín skjöl og stöðu mála á einum stað,“ segir Róbert í samtali við blaðamann, beðinn um að útskýra hvaða þörfum KOT sé að mæta.

Hann segir hugmyndina að KOT hafa kviknað vegna fyrri reynslu af fasteigna­viðskiptum, þar sem aðgengi að gögnum hafi ekki verið nægilega gott, en auk Róberts voru stofn­endur KOT þeir Sveinn Rúnar Sigurðsson, Rólant Dahl Christiansen og Vífill Harðarson.

Hægt að fá SMS þegar tilboð berast í eignir

Einstaklingar sem eru í fasteigna­hugleiðingum geta skráð sig inn á vefinn og skoðað íbúðir sem þar eru í boði, en sem stendur eru það nokkrir tugir íbúða í nýjum fjölbýlis­húsum í Vogabyggð.

Hægt er að merkja eignir sem eru til sölu sem „uppáhalds“ og fá í kjölfarið SMS þegar tilboð berast í eignirnar. Einnig er hægt að sjá hversu hátt hæsta boð er, sem er nýlunda á íslenskum fasteigna­markaði.

Róbert segir að þetta sé að norrænni fyrirmynd – og að þar tíðkist í fasteigna­viðskiptum að fjárhæðin sem þurfi að setja fram til að vera með hæsta boð liggi öllum ljós fyrir. Ekki verður þó hægt að sjá hvernig samsetning tilboð­anna er.

Rafrænt söluferli

Á vef KOT eru tilboð gerð rafrænt og hægt að hafa yfirsýn yfir stöðu mála í rauntíma, auk þess sem undir­ritanir fara fram með rafrænum skilríkjum. KOT heldur einnig utan um kaup­ferlið og uppgjör með rafrænum hætti.

Fasteigna­sölurnar Lind og Miklaborg þjónusta sölu­ferlið á íbúðunum sem nú má finna á vef KOT og segir Róbert að allir aðilar séu áhuga­samir um þessa nýju lausn á fasteigna­markaðnum, sem sé til þess fallin að auðvelda seljendum fasteigna­verkefna yfirsýn og umsýslu sem fylgi því að selja tugi eða hundruð íbúða á skömmum tíma.

„Það eru allir með sama markmið, að ná fram góðu söluferli,“ segir Róbert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár