Nýju Tarantino-myndinni lekið á netið áður en hún er frumsýnd

Nýjasta stórmynd leik­stjórans Quentin Tarantino, The Hateful Eight, verður frumsýnd í kvikmynda­húsum í Banda­ríkjunum á morgun, föstudag. Þrátt fyrir það er þegar búið að leka myndinni í góðum gæðum á internetið og hægt er að horfa á hana eða niðurhala á flestum ólöglegum streymi- eða niðurhals­síðum netheima.

Það er vert að velta fyrir sér hvernig það getur gerst að kvik­myndir leka áður en þær eru einu sinni frum­sýndar? Hvaðan kemur eintakið af myndinni sem hlaðið er upp á netið? Svarið er einfalt: það er verðlauna­hátíðartíð.

Í aðdrag­anda stærstu verðlauna­hátíða kvikmynda­heimsins (BAFTA, Golden Globe og auðvitað Óskarsins) þá senda kvikmynda­verin þær myndir sem þau telja líklegust til afreka til fjölda aðila sem hafa áhrif á val á tilnefningum til ofan­greindra verðlauna. Á undan­förnum árum hafa þessar útsendingar án undan­tekninga leitt til þess að allar helstu kvik­myndir undan­farins árs, og jafnvel myndir sem enn á eftir að frumsýna, verða skyndi­lega aðgengilegar á netinu í góðum gæðum.

Á síðu Business Insider er greint frá því að The Hateful Eight hafi fyrst verið deilt á netinu af hóp sem kallar sig Hive-CM8, en segir að The Hollywood Reporter telji sig hafa borið kennsl á þann sem átti eintakið sem lak. Sá er forstjóri kvikmynda­framleiðslu­fyrir­tækisins Alcon Entertainment, og heitir Andrew Kosove.

Samkvæmt frásögn Business Insider liggur ekkert fyrir hvort Kosove sé ábyrgur fyrir lekanum né að hann hafi í raun gert nokkuð rangt. Raunar er talið að hann sé saklaust fórnar­lamb í málinu. Hann sagði við Hollywood Reporter að hann hefði aldrei séð diskinn með myndinni og aldrei fengið hann í hendur. Kosove sagði að fyrirtæki sitt ætlaði ekki bara að vinna náið með bandarísku alríkis­lögreglunni (FBI) við rannsókn málsins, heldur að framkvæma sína eigin innan­húsrannsókn líka.

Rannsókn FBI beinist að því að einhver hafi komist yfir eintak af DVD-diski með mynd Tarantino sem ætluð var Kosove áður en hún skilaði sér á áfanga­stað. Hvort sá sem hafi stolið henni sé starfs­maður Alcon, dreifingar­aðila myndarinnar The Weinstein Company eða bara einhver allt annar liggur enn ekki fyrir. Ljóst er þó að skaðinn er skeður og fjárhagslegt tjón fram­leiðenda myndarinnar verður gríðarlegt.

Það var í raun ekki flókið ferli að rekja hvaða eintaki hefði verið lekið. Þegar eintök af kvik­myndum sem vonast er til að hljóti náð fyrir valnefndum stærstu verðlauna­hátíðanna þá er hvert eintak merkt með sérstöku vatns­merki. Þannig er samstundis hægt að átta sig á hvaða eintaki var lekið. Hóparnir sem stunda það að stela kvik­myndum sem þessum eru hins vegar orðnir nokkuð sjóaðir í að fjarlægja þessi vatns­merki. Í þessu tilfelli hefur þeim ekki tekist að gera það nægjanlega vel.

Yfir­vofandi rannsókn FBI virðist ekki ætla að hræða Hive-CM8 frá því að halda ótrauður áfram starfsemi sinni. Hópurinn segist vera með undir höndum um 40 myndir sem hann eigi eftir að leka út á netið. Fyrst verði þær myndir sem mest eftir­vænting hefur verið eftir, eins og The Hateful Eight, lekið út og svo verði hinum mjatlað út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár