Skotárás í Köben: Tveir menn á flótta í dökkum Volkswagen Polo

Tveir menn, sem taldir eru hafa framið skotárás í Kaupmanna­höfn í dag, ganga enn lausir. Samkvæmt vef Berlinske eru þeir dökk­klæddir, tala dönsku og lögðu á flótta á dökkri Volkswagen Polo bifreið. Skotum var hleypt af við menningar­húsið Krudttønd­en á Aust­ur­brú í Kaup­manna­höfn fyrir skemmstu. Þrír lögreglu­menn og einn borgari eru slasaðir, samkvæmt fréttum danskra fjölmiðla. Ekki liggur fyrir hversu alvarlega.

Gríðar­lega umfangs­mikil leit stendur nú yfir af mönnunum í Kaupmanna­höfn. Talið er að þeir hafi skotið að minnsta kosti 40 skotum úr sjálf­virkum rifflum.

Samkvæmt frétt Berlinske var árásinni mögulega beint að sænska skop­teiknaranum Lars Vilks, sem hefur teiknað skop­myndir af Múhammeð spámanni, en í menn­ing­ar­hús­inu fer í dag fram ráðstefna sem fjall­ar meðal annars um tjáningar­frelsi. Vilks er ómeiddur.

Umsvifa­miklar lögreglu­aðgerðir standa nú yfir í Kaupmanna­höfn vegna skot­árásarinnar.

Shots fired and wounded several people at a meeting in Copenhagen
Shots fired and wounded several people at a meeting in Copenhagen

Samkvæmt fréttum Jyllands-Posten fóru ódæðis­mennirnir í gegnum málm­leitartæki áður en þeir hófu skot­hríðina. Þeir komust ekki að Vilks áður en þeir flýðu út úr ráðstefnu­salnum. Ekstra Bladet segir að danska lögreglan líti á árásina sem hryðju­verk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár