Formaður Eflingar lýsir yfir stuðningi við formannsframboð Ólafar Helgu

Ólöf Helga Adolfs­dóttir, vara­formaður Eflingar, hefur ákveðið að sækjast eftir formanns­sæti í stéttar­félaginu. Núverandi formaður, Agnieszka Ewa Ziólkowska, lýsir yfir stuðningi við hana.

Vill stólaskipti
Vill stóla­skipti Ólöf Helga er núver­andi vara­for­maður Eflingar og sæk­ist eftir að fá sæti Agnieszku Ewu for­manns, sem lýsir yfir stuðn­ingi við fram­boðið. Mynd: efling.is

Ólöf Helga Adolfs­dóttir, vara­formaður Eflingar, býður sig fram til formanns í stéttar­félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá henni. Í samtali við Stundina lýsir Agnieszka Ewa Ziólkowska, núverandi formaður Eflingar, yfir stuðningi við framboð Ólafar Helgu. Sjálf vill hún aftur verða vara­formaður Eflingar. „Ég mun stíga niður í vara­formanns­stólinn og ég lýsi fullum stuðningi við framboð Ólafar af því við erum frábært teymi. Ég er mjög bjartsýn gagnvart þessu,“ segir Agnieszka við Stundina. 

HættiSólveig Anna Jóns­dóttir sagði af sér sem for­maður Eflingar á síð­asta ári.

Kosið verður í embættið í febrúar næst­komandi, fyrr en áætlað var vegna óvæntrar afsagnar Sólveigar Önnu Jóns­dóttur á síðasta ári. Gera má ráð fyrir að átök verði á vinnu­markaði á komandi mánuðum en lífs­kjara­samningurinn svokallaði rennur út á árinu. Ólöf Helga segir í tilkynningu sinni að hún vilji leiða viðræður um nýja kjara­samninga ásamt stjórn, samninga­nefnd og kjararáði. 

„Ég vil leggja mitt af mörkum til að styrkja stöðu trúnaðar­manna og efla þá í starfi.  Ég vil halda áfram því öfluga starfi sem Efling hefur unnið að síðustu ár og lýtur m.a. að þjónustu við erlenda félags­menn og þátttöku þeirra í starfi hreyfingarinnar. Ég vil takast á við vanda ungs fólks á vinnu­markaði og þeirra sem eru utan náms og vinnu af fullum þunga. Síðast en ekki síst vil ég vinna að því ásamt stjórn og skrif­stofu að efla þjónustu við félags­menn enn frekar, byggja upp fræðslu­starf, auka lýðræði innan félagsins og tryggja aðgengi félaga að upplýsingum um starfsemi Eflingar,“ segir hún ennfremur. 

Ólöf Helga hefur setið í stjórn Eflingar frá árinu 2019 og sem vara­formaður undan­farna mánuði. Hún og stéttar­félagið hafa staðið í deilum við Icelandair eftir að henni var sagt upp sem hlaðmanni á Reykja­víkur­flugvelli á meðan hún var trúnaðar­maður Eflingar á vinnu­staðnum. 

„Ég þekki því af eigin raun hversu mik­il­væg öflug og skipu­lögð verka­lýðs­hreyf­ingin er launa­fólki and­spænis ægi­valdi fyr­ir­tækja og sam­taka atvinnu­rek­enda.“
Ólöf Helga Adolfs­dóttir

„Það er erfitt að missa vinnuna og fram­færsluna, ekki síst fyrir okkur sem höfum eingöngu starfað í láglauna­störfum og eigum því ekki borð fyrir báru þegar í harðbakkann slær. En það er líka sárt að vera vísað á dyr af óljósum ástæðum, sem virðast ekki vera aðrar en þær að ég sinnti hlutverki trúnaðar­manns af alúð á tímum þar sem vegið var að kjörum og réttindum starfs­fólks. Við þessar aðstæður átti ég skjól hjá mínu stéttar­félagi sem reis upp mér til varnar. Ég þekki því af eigin raun hversu mikilvæg öflug og skipulögð verkalýðs­hreyfingin er  launa­fólki andspænis ægivaldi fyrir­tækja og samtaka atvinnu­rekenda,“ segir hún í tilkynningu sinni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Óskarsdóttir skrifaði
    Mikið vona ég að þessi unga kona verði nærsti formaður, frekar en herramaðurinn sem gerði allt sem hann gat til að velta Sólveigu Önnu úr sæti. Sólveig Anna og Ragnar eru búin að sýna hvað alvöru kjarabarátta er mikilvæg. Þau hafa haft áhrif langt út yfir mörk eigin félaga.
    0
  • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
    Ef mér skjátlast ekki því meir, þá eru þetta frambjóðendur hins vinsæla skrifstofufólks Eflingar, kontóristanna. Það gefur ekki beinlínis góð fyrirheit, a.m.k. ekki fyrir almenna verkamenn félagsins.
    0
  • Óskar Guðmundsson skrifaði
    Á formaðurinn ekki að vera hlutlaus?
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Er fiskur undir þessum steini?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár