Starfsfólk Netflix fær ótakmarkað fæðingarorlof fyrsta árið eftir að barn fæðist

Bandaríska streymi­þjónustan Netflix tilkynnti í gær að starfs­fólk hennar geti tekið ótakmarkað fæðingar­orlof á fullum launum innan fyrsta árs frá því að barn fæðist eða er ættleitt. Sömuleiðis er þeim foreldrum sem starfa hjá Netflix gert kleift að koma og fara úr vinnu á þessu tímabili eins og þeim sýnist. Fæðingar­orlofið stendur báðum kynjum til boða.

Í tilkynningu frá Netflix vegna þessa kemur fram að fyrir­tækið vilji að starfs­menn þess hafi sveigjanleika og sjálfs­traust til þess að finna jafnvægi milli þarfa stækkandi fjöl­skyldu sinna án þess að hafa áhyggjur af vinnu eða fjármálum. „Áfram­haldandi árangur Netflix byggir á því að við getum keppt um og haldið hæfileika­ríkustu einstaklingununum á hverju sviði fyrir sig. Reynslan sýnir að einstaklingar standa sig betur í vinnu þegar þeir hafa ekki áhyggjur af heimilis­lífinu,“ segir einnig í tilkynningunni.

Netflix vill að starfs­fólk sitt þurfi ekki að hafa áhyggjur af vinnu eða fjármálum á meðan að það er í fæðingar­orlofi.

Færri feður í orlof á Íslandi en fyrir hrun


Á Íslandi leggur hið opin­bera lín­urnar varð­andi fæð­ing­ar­or­lof, þótt sum fyr­ir­tæki hafi tekið upp þá stefnu að greiða starfs­mönnum sínum við­bót­ar­greiðslur á meðan að þeir taka slíkt orlof. Eftir banka­hrun hefur hlut­fall feðra sem taka fæð­ing­ar­or­lof hríð­fallið og hlut­fall feðra sem tóku fæð­ing­ar­or­lof árið 2013 var það lægsta í yfir ára­tug.

Netflix vill að starfsfólk sitt þurfi ekki að hafa áhyggjur af vinnu eða fjármálum á meðan að það er í fæðingarorlofi.
Netflix vill að starfs­fólk sitt þurfi ekki að hafa áhyggjur af vinnu eða fjár­málum á meðan að það er í fæð­ing­ar­or­lofi.

Í frétt Kjarnans frá því í nóvember 2014 sagði að níu af hverjum tíu feðrum hafi tekið fæðingar­orlof árið 2009, en á árinu 2013 hafi hlut­fallið hafi lækkað um þrettán prósent og verið um 77 prósent.

Um þessar mundir er starfandi starfs­hópur um framtíðar­skipan fæðingar­orlofsmála, sem Eygló Harðar­dóttir félagsmála­ráðherra skipaði í lok síðasta árs. Ein ástæðan var einmitt sú að sögn ráðherrans að foreldrar hér á landi þurfi að brúa lengsta bilið frá þeim tíma sem fæðingar­orlofi lýkur þar til leik­skólaganga hefst. Sú ákvörðun síðustu ríkis­stjórnar að lækka hámarks­greiðslur úr sjóðnum hafði líka mjög slæm áhrif, sérstak­lega á töku feðra á fæðingar­orlofi, sem er mikið jafnréttismál.

Mjög vinsælt á Íslandi þrátt fyrir að vera ekki í boði


Netflix er streymi­þjón­usta þar sem hægt er að nálg­ast mikið magn kvik­mynda, sjón­varps­þátta, barna­efnis, heim­ild­ar­mynda og ann­ars áhorf­an­legs efnis. Þjón­ustan hefur þann aug­ljósa kost fram yfir línu­lega sjón­varps­dag­skrá að not­endur geta horft á það efni sem þeir vilja þegar þeir vilja í nán­ast hvaða tæki sem þeir vilja. Áskrift að Netflix er auk þess mun ódýr­ari en áskrift að þeim sjón­varps­stöðum sem hægt er að ger­ast áskrif­andi að á Íslandi.

Þrátt fyrir að þjónusta Netflix sé ekki í boði hérlendis er samt sem áður talið að yfir 20 þúsund íslensk heimili séu með aðgang að veitunni. Þjónustan hefur notið sívaxandi vinsælda síðustu ár, ekki síst eftir að fram­leiðsla á eigin efni hófst. Þáttaraðirnar House of Cards, Orange is the New Black og fjórða serían af Arrested Development eru allar dæmi um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár