Færri feður fara í fæðingarorlof nú en fyrir hrun

Hlutfall feðra sem tekur fæðingar­orlof hefur farið lækkandi frá hruni og nú stefnir í að hlutfall feðra sem tóku fæðingar­orlof árið 2013, verði með því lægsta í yfir áratug. Frétta­blaðið greinir frá málinu á forsíðu blaðsins í dag.

Níu af hverjum tíu feðrum tóku fæðingar­orlof árið 2009, en á síðasta ári lítur út fyrir að hlut­fallið hafi lækkað um þrettán prósent og verði um 77 prósent. Í frétt Frétta­blaðsins er haft eftir Eygló Harðar­dóttur velferðar­ráðherra að ástand á vinnu­markaði gæti skýrt þróunina, tekju­lágir feður séu hræddari um störfin sín. Þá sé mikilvægt að aðilar vinnu­markaðarins séu með í ráðum hvað þetta varði.

Kristín Ástgeirs­dóttir jafnréttis­stýra segir að glögglega hafi mátt sjá breytingar á fæðingar­orlofi karla á síðustu árum, í samtali við Frétta­blaðið. Þróunin sé afleiðing efnahags­hrunsins sem Ísland gekk í gegnum. Hún telur eðlilegt að staldra við og íhuga hvað sé hægt að gera til að hækka hlutfall karla sem taki fæðingar­orlof, og vill sjá greiningu á því hvers konar feður taka ekki fæðingar­orlof. Hún hefur áhyggjur af því að sá ávinningur sem náðist með fæðingar­orlofinu sé að einhverju leyti að ganga til baka.

Velferðar­ráðherra segir málið alvarlegt og vill fá breiða sátt um að bæta úr stöðunni. „Fæðingum hefur fækkað og lægra hlutfall feðra tekur fæðingar­orlof. Ég hef sett á fót starfshóp um framtíðar­skipan fæðingar­orlofs. Ég tel mikilvægt að bæta stöðuna. Fæðingar­orlof á Íslandi er styttra en á hinum Norður­löndunum. Það sem skiptir máli er að aðilar vinnu­markaðarins komi að borðinu og þetta verði hluti af samninga­viðræðum við nýja kjara­samninga eftir áramót,“ er haft eftir Eygló Harðar­dóttur í Frétta­blaðinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár