„Ég er að hóta þér. Þú munt ekki yfirgefa mig.“

Hann gekk svo langt að hóta að grafa upp afa sambýlis­konu sinnar og lýsti ítarlega áformum um ofbeldi, en þarf ekki að afplána refsingu.

Ofbeldi
Ofbeldi Ofbeldi maka getur magn­ast upp við skilnað, en mik­il­vægt er að finna leið­ina út. Myndin er svið­sett. Mynd: Sviðsett / Pexels

Kona sem reyndi að slíta sambandi við sambýlis­mann sinn varð fyrir alvarlegum og lang­varandi hótunum mannsins, sem nú hefur verið dæmdur í skilorðs­bundið fangelsi, án þess að þurfa að afplána dóminn.

Dómsmálið sýnir hversu langt andlegt ofbeldi getur teygt sig og svo hversu takmörkuð refsing er við athæfinu. 

Langvarandi hótanir

Það var skömmu fyrir jólin 2023 sem konan fór að fá alvarlegar hótanir frá manninum, sem hún vildi slíta sambandi við.

Hann hótaði í smáskilaboðum bæði henni dauða og svo sjálfs­vígi.

„Ég er að hóta þér. Þú munt ekki yfirgefa mig. Bara dauð eða dauður, ég,“ skrifaði hann.

Sama dag endurtók hann hótanir sínar. „„Ég drep þig [...], ég drep þig [...],ég drep þig.“

Hann víkkaði síðan út hótanirnar. „Ég er að hóta þér, A, fjöl­skyldu þinni og öllum. Þú munt ekki yfirgefa mig svona, nei.“

Lýsingar ofbeldis

Nokkrum mánuðum síðar, í maí í ár, fóru hótanirnar yfir á næsta stig. Hann sendi konunni, sem hafði slitið samvistum við hann, hljóð­skilaboð með ítarlegum lýsingum á fyrir­ætlunum sínum. 

„Þú munt sjá, sjáðu, ef ég ekki ríf þig í tvennt, opna ég magann á þér, tek  magann  þinn  út.  Spýttu  framan  í  mig,  bíddu  bíddu  svo  þú  sjáir endalok þín, og sjáir hvernig ég ætla að gera það.“

Fimm dögum síðar héldu hótanirnar áfram. „Ég næ í fjöl­skyldu þína lifandi eða dauða,“ sagði hann í hljóð­skilaboðum. „Þú færðir mig hingað aftur, ég ætla að drepa þig tík,“ bætti hann við.

Aðferðir hans til að reyna að kúga konuna til fylgilags við sig snerust þannig ekki aðeins að hótunum heldur tilraunum til að setja hana niður og smána með orðum. 

Hótaði að grafa upp afa hennar

Þegar ekki gekk hjá manninum að ná stjórn á konunni með fyrr­greindum hótunum, bætti hann í þær og reyndi að smána fjöl­skyldu hennar. Hann fór að smána fjöl­skyldu hennar og gekk svo langt að hóta henni að svívirða lík afa hennar, þegar konan lét ekki að stjórn.

„Ef þú ert alvöru, komdu út og segðu það við andlitið á mér tík, [...] Komdu út tík, komdu út, helvítis tík. Mamma þín er tík. Þú ert tík eins og hún,“ sagði hann og hét áfram­haldandi hótunum.

„Sjáðu, ég ætla að grafa upp afa þinn.“
Ofbeld­is­maður
Hótanir til fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu

„Ég ætla ekki að gefast upp. Nú er stríðið hafið. Nú ætla ég að segja þér aðeins, nú ætla ég  að  tala  um  móðurina  sem  fæddi  þig.  Ef  ég  lem  þig  ekki,  ef  ég  brýt  ekki hausinn á þér. Ég brýt hausinn þinn þegar ég sé partana úr afa þínum. [...] Af hverju kemurðu ekki út, tík ? Hóra! Það var gaur sem reið systur þinni. Fjórir gaurar  sem  riðu mömmu  þinni.  [...]Sjáðu,  ég  ætla  að  grafa  upp  afa  þinn. Heyrðu. Þú munt hringja grátandi eftir að ég geri það,  þú ert að neyða  mig núna. Ég lofa þér, áður en þetta klárast, ætla ég að stinga þig og fara í fangelsi. [...] Ég ætla að stinga þig.“

Játaði og iðraðist

Eftir að yfirvöld gripu inn í samskipti hans við fyrr­verandi sambýlis­konuna kaus maðurinn að játa og iðrast. Hann hafði ekki verið dæmdur fyrir brot áður. 

„Ákærða til málsbóta er litið til  þess að hann  játaði  brot sitt skýlaust  og iðraðist háttsemi sinnar,“ segir í dómnum við Héraðsdóm Reykja­víkur, sem féll 8. desember. 

Konan hafði farið fram á bætur upp á 2,5 milljónir króna vegna áreitisins og hótananna. „Verður skýrt ráðið að hún upplifði mikla vanlíðan og óöryggi vegna háttsemi hans,“ segir í dómnum. „Þykir fjárhæð miskabóta hæfilega  ákveðin, með hliðsjón af atvikum, 400.000 krónur,“ segir svo.

Sem fyrr segir mun maðurinn ekki þurfa að afplána 90 daga fangelsisdóm sem hann fékk, brjóti hann ekki af sér á ný.

Langvarandi áhrif andlegs ofbeldis

Sam­kvæmt sér­fræð­ing­um hef­ur and­lega of­beld­ið jafn­vel verri áhrif á líf og sál­ar­heill þo­lenda held­ur en sár sem gróa því áhrif þess eru svo lúmsk, langvar­andi og víð­tæk. Stundin, forveri Heimildarinnar, fjallaði ítarlega um áhrif andlegs ofbeldis með viðtöl við þolendur þess árið 2021. 

Tölfræði Kvenna­athvarfsins sýnir að 94% þeirra sem þangað leita hafa orðið fyrir andlegu ofbeldi. Samkvæmt tölum Evrópu­sambandsins um kynbundið ofbeldi hafa 18% af konum, sem hafa verið í sambandi, upplifað líkamlegt eða kynferðislegt ofbeldi. Hlut­fallið hækkar í 32% ef andlegt ofbeldi er tekið með inn í myndina. Þannig hefur þriðjungur kvenna í ESB átt maka sem beitir ofbeldi.

Hægt er að kynna sér mynstur og aðferðir í ofbeldis­málum og leiðir til að losna, í ofbeldis­gátt á vefnum 112.is. Þar er hægt að fá upplýsingar um muninn á slæmum samskiptum og ofbeldi og fá beina aðstoð.

„Ef þú ert alvöru, komdu út og segðu það við andlitið á mér tík, [...] Komdu út

tík, komdu út, hel
vítis tík. Mamma þín er tík. Þú ert tík eins og hún. Ég ætla
ekki að gef­ast upp. Nú er stríðið hafið. Nú ætla ég að segja þér aðeins, nú ætla
ég að tala um móð­ur­ina sem fæddi þig. Ef ég lem þig ekki, ef ég brýt ekki
haus­inn á þér. Ég brýt haus­inn þinn þega
r ég sé part­ana úr afa þínum. [...] Af
hverju kem­urðu ekki út, tík ? Hóra! Það var gaur sem reið systur þinni. Fjórir
gaurar sem riðu mömmu þinni. [...]Sjáðu, ég ætla að grafa upp afa þinn.
Heyrðu. Þú munt hringja grát­andi eftir að ég geri það, þú ert að n
eyða mig
núna. Ég lofa þér, áður en þetta klár­ast, ætla ég að stinga þig og fara í fang­elsi.
[...] Ég ætla að stinga þig.”

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Hvað er það í okkar yndislega heimi þar sem þjóðarhreinsanir eru viðurkenndar í beinni útsendingu og hatur á allskonar minnihlutahópum gerir yfir 30% karla andlega sjúka ?? Það er kannski það !!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár