Mynd: Heiða Helgadóttir

Orð sem meiða og mynda sár sem seint gróa

Andlegt ofbeldi fylgir gjarnan líkamlegu ofbeldi og kynferðis­ofbeldi. Konur segja hér frá orðum sem voru látin falla á meðan þær voru beittar ofbeldi, orð sem hafa setið eftir í hugum þeirra og eitrað út frá sér. Orð sem fela í sér sársauka og minna stöðugt á ofbeldið. Samkvæmt sérfræðingum hefur andlega ofbeldið jafnvel verri áhrif á líf og sálar­heill þolenda heldur en sár sem gróa því áhrif þess eru svo lúmsk, lang­varandi og víðtæk. Engu að síður hafa þessi orð fengið lítið vægi við meðferð mála í réttar­vörslu­kerfinu. Margar þessara kvenna eru að endur­segja orðin í fyrsta sinn. Eins og ein orðaði það: „Megi þessi orð rotna annars staðar en í maganum á mér.“

Orð sem eru látin falla á meðan ofbeldi er beitt geta setið lengi eftir í huga þeirra sem fyrir þeim verða. Orðin sem meiða hafa jafnvel verri áhrif heldur en líkamlega ofbeldið, því á meðan sárin gróa situr lítilsvirðingin eftir, tilraunin til að svipta þolendur mennsk­unni. Orð sem geta verið sem brenni­merkt í huga þolenda, endurómað þar og kallað fyrirvara­laust fram bæði endurlit af ofbeldinu og neikvæðar tilfinningar. Orð sem hafa áhrif á sjálfs­mynd þolenda og öryggis­kennd. Þessu lýsa konur sem hafa verið í ofbeldis­aðstæðum og segja hér frá því hvaða orð sitja eftir, hvers vegna og hvaða skaða þau hafa valdið. Orðin eru ekki aðeins meiðandi heldur afhjúpa þau hugar­ástand gerenda, hvort sem um er að ræða afneitun þeirra, tilraunir til að bregðast við rofi á milli þess sem þeir vilja vera og þeir sem þeir eru, og í sumum tilfellum einlægan ásetning til að valda þolendum sínum sársauka. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár