Salome missti son sinn vegna lyfjamisnotkunar

Mis­notkun sterkra verkja­lyfja hefur auk­ist hjá ungu fólki og dauðs­föll vegna ofneyslu lyf­seð­ils­skyldra lyfja, en róandi lyf eru einnig hluti af neyslu ung­menna. Fjöldi dauðs­falla eru til rann­sóknar. Móðir sem missti son sinn í mars segir það skelfi­lega stað­reynd að ungt fólk noti lyf án þess að þekkja afleið­ing­arnar.

Minnast Bjarna Þórs
Minnast Bjarna Þórs Fjöl­skylda og vinir söfn­uðu yfir hálfri milljón króna í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu til minn­ingar um Bjarna Þór sem lést í mars. Mynd: Salome Tynes

Mis­notkun ungs fólks á lyf­seð­ils­skyldum lyfjum hefur auk­ist á und­an­förnum árum og vís­bend­ingar eru uppi um að and­lát vegna ofneyslu lyfja hafi auk­ist það sem af er ári. Ópíum­far­ald­ur­inn dregur tugi þús­unda til dauða í Banda­ríkj­unum á hverju ári og heyja fjöl­skyldur og vinir ung­menna bar­áttu gegn upp­gangi hans á Íslandi með myllu­merk­inu #ega­bara­eittlif.

„Það er skelfi­leg stað­reynd að ungir krakkar séu að taka inn ein­hverjar töflur og lyf án þess að hafa hug­mynd um afleið­ing­arnar,“ segir Salome Tynes, sem missti son sinn, Bjarna Þór, í mars. Fjöl­skylda hans og vinir söfn­uðu yfir hálfri milljón króna með áheita­söfnun í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu, til styrktar Minn­ing­ar­sjóði Einars Darra ætl­uðum ung­mennum í fíkni­vanda. Á síðu móður hans segir að það þurfi vit­und­ar­vakn­ingu hjá ungu fólki um skað­semi fíkni­efna, það að fikta við lyf sé eins og rúss­nesk rúl­letta. 

Salome setti færslu á Facebook um söfn­un­ina og fékk góð við­brögð, en hún hafði …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár