Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur reglulega saman yfirlit yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum nákvæmlega núna. Það er ágætt fyrir Íslendinga að taka sér frí frá þrasi um pólitískan ómöguleika, enda­lausan misskilning og karpi um hvort Evrópu­sambands­umsókn sé enn skrásett eða ekki og horfa á allt hitt sem er að eiga sér stað í hinum stóra heimi.

Tíu mikil­vægustu hlutirnir í heiminum í dag eru:


  1. Það er búið að finna flug­ritann, hinn svokallaða svarta kassa, úr Airbus 320 vél Germanwings flug­félagsins sem hrapaði í frönsku ölpunum í gærmörgun. 150 manns er taldir af eftir slysið, en vélin var að fljúga frá Barcelona til Dusseldorf.

  2. Brasilíska fjár­festinga­félagið 3G Capital er í viðræðum um að kaupa Kraft Foods, sem er rista­stórt bandarískt matvöru­framleiðslu­fyrirtæki. Á meðal vöru­merkja Kraft Foods eru Kool Aid og Philadelphia smur­osturinn.

  3. Svíar stöðvuðu fjórar rússneskar herflugvélar sem flugu yfir Balkan­löndin með slökkt á sendum sínum.

  4. Jeremy Clarkson verður að öllum líkindum rekinn úr Top Gear-þáttunum vegna stympinga sem áttu sér stað milli hans og eins fram­leiðenda þáttanna.

  5. Sádí Arabía er að auka hernaðar­styrk sinn við landamæri Jemen. Talið er að aðgerðin sé til þess að auka varnir gegn hinum herskáu Houthi sjítum, sem studdir eru af írönskum stjórn­völdum.

  6. Ihor Kolomoisky, sem var lands­stjóri í iðnaðar­héraðinu Dnipropetrovsk í Úkraínu, og þykir hafa leikið lykil­hlutverk í að stöðva framgang aðskilnaðar­sinna í austur­hluta landsins, hefur verið rekinn af Petro Poroshenko, forseta landsins. Kolomoisky er einn ríkasti maður landsins.

  7. Þúsundir Singapúr-búa horfðu á þegar vopnað fylgdarlið færði lík Lee Kuan Yew, fyrrum forsætis­ráðherra landsins, í þinghús borg­ríkisins. Þar mun hann liggja til sýnis fram á laugardag.

  8. Embættis­menn í Delí, næst­stærstu borg Indlands, hafa biðlað til upplýsinga­tækni­iðnaðarins í landinu um að blokka Uber-appið og indverskan samkeppnis­aðila þess, Ola.

  9. Fyrir­tækið sem stendur á bakvið Hyperloop, háhraða samgöngu­kerfi sem runnið er undan rifjum frumkvöðulsins Elon Musk, er byrjað að ráða starfs­fólk og leigja sér skrifstofu­rými í miðborg Los Angeles.

  10. Kína hefur látið bandarískum stjornvöldum í té lista yfir „efnahags­lega flótta­menn“, sem mögulega hafa flúið alþýðu­lýðveldið og sest að í Banda­ríkjunum. Margir þeirra eru spilltir fyrrum embættis­menn.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár