Flugslys í Frakklandi: flugritinn fundinn

Búið er að finna flug­rita Airbus A320 þot­unnar sem fórst í frönsku ölp­unum fyrr í dag. Þetta segir franski inn­an­rík­is­ráð­herr­ann. Aðstæður á svæð­inu eru mjög erf­iðar, eins og sjá má á mynd­unum hér að neðan. Myndin sýnir brak úr vél­inni, en stærsti hluti vél­ar­innar sem hefur fund­ist í heilu lagi er á stærð við lít­inn bíl. Frönsk yfir­völd hafa af þessum sökum úti­lokað að nokkur hafi lifað slysið af.

BREAKING PHOTO: Rescue helicopter directly above the crash site of #Germanwings flight #4U9525 pic.twitter.com/grk7buXP8u

— News_Executive (@News_Executive) March 24, 2015

First image of Germanwings crash site revealed. Latest updates: http://t.co/q1I8tkghmf pic.twitter.com/zE6aUEFMPZ — The Tel­egraph (@Telegraph) March 24, 2015

Þá hafa frönsk flug­mála­yf­ir­völd stað­fest að vélin sendi aldrei frá sér neyð­ar­kall, eins og greint hafði verið frá fyrr í dag. Samband við vél­ina rofn­aði klukkan 10.30 að stað­ar­tíma. Vegna þess og þess að vélin missti hæð á miklum hraða var lýst yfir neyð­ar­á­standi. Flugmenn vél­ar­innar gerðu það hins vegar ekki.

Smátt og smátt er að koma í ljós hverjir voru um borð í vél­inni sem fórst á leið sinni frá Barcelona á Spáni til Dus­seldorf í Þýska­landi. Meðal ann­ars hefur verið greint frá því að tvö unga­börn hafi verið meðal hinna látnu, og að sextán ung­lingar og tveir kenn­arar þeirra voru um borð. Ung­ling­arnir höfðu verið í skóla­ferð á Spáni ásamt kenn­urum sínum, en þau voru öll frá Haltern, norð­austur af Dus­seldorf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár