Stærstu bruggfyrirtæki heims sameinast í þrettán þúsund milljarða yfirtöku

SABMiller hefur samþykkt sölu fyrir­tækisins til Anheuser-Busch InBev (AB InBev) fyrir 104 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem samsvarar um þrettán þúsund milljörðum íslenskra króna. Ef af verður munu viðskiptin vera stærsta yfirtaka á bresku fyrirtæki nokkru sinni.

Með samrunanum verður til bruggrisi sem fram­leiðir um einn þriðja af öllum bjór í heiminum. AB InBev var þegar stærsta brugg­fyrirtæki heimsins, og SABMiller er helsti keppinauturinn. Stjórnir fyrir­tækjanna tveggja segja nú að þær hafi náð samkomu­lagi í megin­atriðum um mögulega sölu, en málið hefur verið í vinnslu um nokkra hríð. Þetta er sjötta tilraun AB InBev til að kaupa keppinautinn, en þeirri síðustu var hafnað í gær. Samkvæmt SABMiller hafa nú verið boðin 44 bresk pund fyrir hlut, sem er 50% meira en virði bréfa í fyrir­tækinu var metið á um miðjan september.

Samhliða þessum vendingum var ákveðið að fram­lengja frest sem AB InBev hefur til þess að gera formlegt tilboð til 28 október næst­komandi, en fresturinn átti að renna út á morgun. Með þessu móti geti félögin komist að nánara samkomu­lagi. Einnig hefur verið ákveðið að AB InBev greiði þriggja milljarða dala gjald ef samruninn verður ekki, ýmist vegna samkeppnis­sjónarmiða eða vegna þess að hluthafar í ABInBev setji sig upp á móti kaupunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár