Efnahagslegar áhyggjur vegna faraldursins aldrei meiri en ótti við að smitast minnkar

Efna­hags­legar áhyggjur vegna áhrifa COVID-19 hafa aldrei verið meiri og færri treysta ríkis­stjórninni til að takast á við efnahagsleg áhrif faraldursins. Á sama tíma óttast færri að smitast af veirunni.

Efnahagslegar áhyggjur vegna COVID-19 hafa aldrei verið meiri samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup.
Efna­hags­legar áhyggjur vegna COVID-19 hafa aldrei verið meiri sam­kvæmt nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup. Mynd: Bára Huld Beck

Dagleg smit af völdum COVID-19 smita hafa skipt hundruðum frá því í desember en samt sem áður óttast færri að smitast af veirunni. Á sama tíma fjölgar þeim sem telja almanna­varnir og heilbrigðis­yfirvöld vera að gera of mikið til að bregðast við faraldrinum. Áhyggjur vegna efnahagslegra áhrifa kórónu­veiru­faraldursins hafa aldrei mælst meiri og þeim fækkar sem treysta ríkis­stjórninni til að takast á við efnahagsleg áhrif faraldursins samkvæmt nýjasta Þjóðar­púlsi Gallup.

Gallup hefur í gegnum far­ald­ur­inn safnað gögnum um við­horf og líðan Íslend­inga vegna veiru­far­ald­urs­ins með reglu­legum net­könn­un­um, sem sendar eru út til ein­stak­linga 18 ára og eldri sem eru í svoköll­uðum við­horfa­hópi fyr­ir­tæk­is­ins.

Nýjasta mælingin var gerð var dagana 14. - 27. janúar, áður en afléttingar­áætlun stjórn­valda var kynnt. Samkvæmt henni minnkar hlutfall þeirra sem óttast frekar mikið að smitast af COVID-19 úr 24 prósentum í 19 prósent, saman­borið við síðustu mælingu sem gerð var í lok desember. Hlutfall þeirra sem óttast mjög mikið að smitast stendur í stað og er áfram fimm prósent. Þá hefur þeim sem óttast frekar lítið eða mjög lítið fjölgað úr 36 prósentum í 43 prósent. Fólk 60 ára eða eldri óttast mest að smitast, eða 29 prósent, en fólk yngra en 30 ára óttast minnst að smitast, eða 51 prósent.

56 prósent hafa mjög miklar eða frekar miklar áhyggjur af efnahagslegum áhrifum COVID-19

16 prósent hafa mjög miklar áhyggjur af efnahags­legum áhrifum faraldurins og hafa aldrei verið fleiri. 40 prósent hafa frekar miklar áhyggjur. Hlut­fallið mældist lægst í júlí í fyrra þegar aðeins fimm prósent höfðu mjög miklar áhyggjur af efnahags­legum áhrifum faraldursins og 32 prósent frekar miklar.

Hlutfall þeirra sem telja ríkis­stjórnina gera of lítið til að bregðast við neikvæðum efnahags­legum áhrifum tengdum faraldrinum hefur sömuleiðis aldrei verið hærra eða 45 prósent. Samkvæmt mælingunni telja 17 prósent ríkis­stjórnina gera allt of lítið og 28 prósent aðeins of lítið. 44 prósent telja hana gera hæfilega mikið, átta prósent aðeins of mikið og þrjú prósent allt of mikið.

Færri treysta ríkisstjórninni til að takast á við vandann

Þá fækkar þeim sem treysta ríkis­stjórninni til að takast á við efnahagsleg áhrif faraldursins. Tíu prósent svarenda treysta ríkis­stjórninni fullkomlega til að takast á við efnahagsleg áhrif COVID-19 og 16 prósent mjög vel, heldur lægra en í síðustu mælingu þegar 11 prósent treystu ríkis­stjórninni fullkomlega en 21 prósent mjög vel. 13 prósent treysta ríkis­stjórninni frekar illa, níu prósent mjög illa og fjögur prósent alls ekki. Samkvæmt mælingunni eru því 26 prósent sem treysta ríkis­stjórninni frekar illa, mjög illa eða alls ekki til að takast á við efnahagsleg áhrif COVID-19 og hefur aldrei mælst hærra.

Traustið fer minnkandi eftir því sem fólk er yngra. Þannig treysta 69 prósent, 60 ára eða eldri, ríkis­stjórninni vel til að takast á við efnahagsleg áhrif COVID-19 en 36 prósent þeirra sem eru 30 ára eða yngri. 16 prósent þeirra sem eru 60 ára eða eldri treysta ríkis­stjórninni illa en 42 prósent þeirra sem eru 30 ára eða yngri.

Fleiri telja almannavarnir vera að gera of mikið

Þegar kemur að viðbrögðum almanna­varna og heilbrigðis­yfirvalda við faraldrinum hefur hlutfall þeirra sem telja aðgerðirnar of miklar aukist úr 18 prósentum í 24 prósent og hefur aldrei verið hærra.

Eftir því sem svarendur eru yngri telja þeir almanna­varnir og heilbrigðis­yfirvöld vera að gera of mikið. Þannig telja 24 prósent yngri en 30 ára að of mikið sé gert til að bregðast við faraldrinum en 13 prósent 60 ára og eldri.

Traust til almanna­varna og heilbrigðis­yfirvalda eykst hins vegar lítillega milli mælinga. 36 prósent bera fullkomið traust til almanna­varna og heilbrigðis­yfirvalda til að takast á við faraldurinn, saman­borið við 30 prósent í síðustu mælingu. Aðeins tvö prósent treysta almanna­vörnum og heilbrigðis­yfirvöldum mjög illa og sama hlutfall alls ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár