Bandaríkin: Neikvæðni Rússa rýrir mátt Öryggisráðsins

Banda­ríkin hafa varað Rússa við því að haldi þeir áfram að beita neitunar­valdi sínu í Öryggis­ráði Sameinuðu þjóðanna muni það setja lögmæti ráðsins í hættu. Vestur­veldin muni á endanum sniðganga það við mikil­vægar ákvarðanir. The Guardian greinir frá þessu.

Öryggis­ráðið á í miklum vandræðum með að afgreiða mögulegar aðgerðir í Sýrlandi. Í því máli er ráðið lamað og getur ekki samþykkt ígrip Sameinuðu þjóðanna til að koma í veg fyrir frekari blóðsút­hellingar. Síðan átökin brutust út í Sýrlandi fyrir nærri fimm árum hafa í það minnsta 220 þúsund manns fallið og meira en ellefu milljón manns hefur séð sig knúið til að flýja.

Rússland hefur beitt neitunar­valdi sínu fjórum sinnum til þess að koma í veg fyrir að Öryggis­ráðið samþykki ályktanir um Sýrland. Stjórn­völd í Moskvu hafa ætíð verið hliðholl stjórn Bashar al-Assads í Sýrlandi og segja fram­lagðar ályktanir veikja bandamann sinn í Sýrlandi. Sömu sögu er að segja um átökin í Úkraínu. Rússar hafa hindrað framgöngu Sameinuðu þjóðanna þar, enda eru stjórn­völd í Kreml aðili máls eftir að hafa innlimað Krímskaga frá Úkraínu og að öllum líkindum tekið beinan þátt í baráttu aðskilnaðar­sinna gegn stjórnarher Úkraínu.

The Guardian hefur eftir fasta­fulltrúa Banda­ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, Samantha Power, að Banda­ríkin og önnur lönd hafi vísvitandi leitað annað til að fá grimmdar­verk rannsökuð. „Þetta er Darwinískur raun­veruleiki,“ segir hún. „Ef þetta mun henda í fleiri málum en þau er snerta Sýrland og Úkraínu þá munum við horfa upp á algera lömun … Það mun sannarlega setja stöðu og trúverðug­leika Öryggis­ráðsins í hættu.“

Matthew Rycroft, sendi­herra Bretlands hjá Sameinuðu þjóðunum, segir málefni Sýrlands vera ljótan blett á samvisku ráðsins. „Ég er þeirrar skoðunar að þetta séu mestu mistök ráðsins síðustu ár og þetta mun örugglega hafa afleiðingar fyrir stöðu Öryggis­ráðsins og jafnvel Sameinuðu þjóðirnar í heild.“

Fundur Öryggis­ráðsins í höfuð­stöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York.

Fundur Öryggisráðsins í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York.
Fundur Örygg­is­ráðs­ins í höf­uð­stöðvum Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York.

Banda­ríkin hafa notað neitunar­vald sitt þrisvar síðasta áratug, í öll skiptin til þess að koma banda­mönnum sínum í Ísrael hjá ávítum eftir að hafa beitt hermætti sínum í Palestínu. Kína hefur beitt neitunar­valdinu sex sinnum, allt í takt við Rússland sem alls hefur notað neitunar­valdið tíu sinnum á síðustu tíu árum.

Banda­ríkin hafa á sama hátt beitt hermætti sínum utan landamæra sinna án þess að fá fyrir því samþykki Öryggis­ráðsins. Það var þegar Banda­ríkin töldu sig fullviss um að kjarna­vopn væri að finna í Írak, þrátt fyrir að fulltrúar Sameinuðu þjóðanna hefðu ekkert fundið í eftirlits­ferðum. Úr varð að Banda­ríkin ásamt banda­mönnum þeirra og stuðnings­mönnum, þar á meðal Ísland, réðust inn í Írak í mars 2003.

Til að koma í veg fyrir að Öryggis­ráðið verði lamað í aðstæðum eins og í Sýrlandi, þar sem mannleg neyð er gríðar­lega mikil og vísbendingar um að þjóðar­morð hafi verið framin eða gríðarleg grimmdar­verk, hefur Frakkland lagt til að neitunar­vald fasta­fulltrúanna fimm verði ógilt. „Framtak okkar er byggt á þeirri hugmynd að neitunar­valdið séu ekki forréttindi heldur ábyrgð,“ sagði François Delattre, sendi­herra Frakka. Tillagan hefur hlotið mikið lof í Allsherjar­þingi Sameinuðu þjóðanna en Rússar hafa tekið einarða afstöðu gegn henni. Fasta­fulltrúi Rússlands, Vitaly Churkin, segir þetta fyrir­komulag vera auðvelt að misnota.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er skipað fulltrúum 15 ríkja og hafa öll ríkin eitt atkvæði. Þar af hafa fimm ríki fast sæti í ráðinu og um leið neitunar­vald. Það eru Banda­ríkin, Rússland, Bretland, Kína og Frakkland. Markmið ráðsins er að viðhalda friði í heiminum og samþykkja nýja meðlimi í Sameinuðu þjóðunum. Ráðið fundaði fyrst í janúar 1946 í London, nokkrum mánuðum eftir að stofnskrá Sameinuðu þjóðanna var samþykkt árið 1945. Þá gáfu löndin fimm sér neitunar­vald enda voru þau sigurveg­arar Seinni heim­styrjaldarinnar sem þá var nýafstaðin.

Nú, réttum 70 árum eftir að Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar, eru fasta­fulltrúarnir í Öryggis­ráðinu ósamstæður hópur og ekki lýsandi fyrir dreifingu fólks­fjölda eða efnahagslegra umsvifa í heiminum. Þess vegna hafa nútímaöfl á borð við Þýskaland, Indland, Brasilíu og Japan barið þétt á dyrnar í nærri áratug og óskað eftir meiri völdum í Öryggis­ráðinu.

„Það eru heilu heims­álfurnar sem eiga sér engan málssvara meðal fasta­fulltrúa í Öryggis­ráðinu,“ segir Antonio Patriota, sendi­herra Brasilíu. Hópur veldanna sem ekki hefur neitunar­valdið vill einnig að Afríka fái sinn fulltrúa. „Það er varla sann­gjarnt gagnvart heilli heimsálfu að eiga ekki fulltrúa í Öryggis­ráðinu. Ef umræðurnar í ráðinu eru skoðaðar má sjá að þær eru nær allar um Afríku — 80, 85, 90 prósent allra umræðna,“ segir Kingsley Mamabolo, fastafulltúi Suður-Afríku hjá Sameinuðu þjóðunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár