Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir minni hagvexti í Noregi en áður

Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn telur að gangur efnahags­mála í Noregi verði erfiðari en fyrri spá sjóðsins, frá því í apríl, gerði ráð fyrir. Þetta kemur fram á vef Dagen Næringsliv, en samkvæmt spánni verður hagvöxtur í Noregi í ár 0,9 prósent en fyrri spá gerði ráð fyrir rúmlega eitt prósent hagvexti. Þó 0,1 prósent virðist ekki mikið, fljótt á litið, þá munar um það í stöðugu hagkerfi eins og því norska, en á undan­förnum árum hefur mikill uppgangur verið í Noregi, ekki síst meðan olíuverð hélst hátt, eða yfir 100 Bandaríkja­dölum og tunnuna. Það hefur að undan­förnu sveiflast í kringum 50 Bandaríkja­dali.

En undan­farið ár, samhliða miklum verð­lækkunum á olíu, hefur verið erfitt fyrir norskan efnahag. Samkvæmt spá Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins er reiknað með meiri samdrætti í olíu­tengdum verkefnum heldur en fyrri spá gerði ráð fyrir.

Mikill fjöldi Íslendinga hefur flutt til Noregs á unda­förnum árum, ekki síst til að starfa við tækni- og iðngreinar af ýmsu tagi, og einnig heilbrigðis­þjónustu. Meira en tíu þúsund Íslendingar búa nú í Noregi, og þar af eru um fimm þúsund á Rogalandssvæðinu, þar sem Stavanger er stærsta borgin, en oft er um hana talað sem höfuðborg olíu­iðnaðarins í Noregi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár