Vogunarsjóðsstjóri skotinn til bana í New York

Thomas Gilbert, stofnandi vogunar­sjóðs sem á eignir upp á um 25 milljarða króna, um 200 milljónir Bandaríkja­dala, fannst látinn í íbúð sinni á Manhattan í morgun. Samkvæmt upplýsingum sem breska ríkis­útvarpið BBC vitnar til, var hann skotinn til bana. Hann var sjötugur að aldri og virtur fyrir störf sín á fjármála­markaði.

Sjóðurinn, Wainscott Capital Partners, var stofnaður árið 2011. Enginn hefur verið hand­tekinn ennþá, samkvæmt frásögn BBC, en lögreglan er að rannsaka málið og er að reyna að ná tali af syni Gilberts, en hann er talinn vera sá síðasti sem sá hann á lífi, samkvæmt því sem talsmaður lögreglunnar í New York, John Grimpel, segir í viðtali við BBC.

Wainscott Capital Partners einblíndi öðru fremur á fjár­festingar­tækifæri í heilbrigðis­geiranum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár