Sextán handteknir í Frakklandi - Fordæmalausar lögregluaðgerðir í gangi

Gríðar­legur viðbúnaður er víða í Evrópu vegna hættu sem talin er vera á hryðjuverka­árásum íslamska ríkisins í álfunni.

Franska lögreglan hefur handtekið sextán manns vegna rann­sóknar á hryðju­verkunum í París á föstudags­kvöld, en í þeim létust 129 og 352 særðust, og af þeim eru um 80 enn á gjörgæslu. Húsleitir hafa verið gerðar á 104 stöðum og sext vopn hafa verið haldlögð, segir í frétt Reuters, en tveir til viðbótar voru síðan hand­teknir skammt frá Aachen, nálægt landa­mærum Þýska­lands og Belgíu, en það var þýska lögreglan sem stóð að þeim aðgerðum. Samtals hafa sjö verið handtekin í Þýska­landi vegna gruns um að koma að skipulagningu hryðju­verka, af því er segir í frétt Reuters.

Aðgerðir frönsku lögreglunnar í landinu eru sagðar fordæma­lausar að umfangi, en hluti sérsveita hersins hefur aðstoðað sérsveitir lögreglunnar við að elta vísbendingar sem upplýsa málin. Þá er einnig talin mikil hætta á frekari árásum, samkvæmt fréttum.

Frakkar og Rússar hafa nú tekið höndum saman um hernaðar­aðgerðir gegn íslamska ríkinu, en í tveimur árásum sem beindust að rússneskum og frönskum borgurum létust samtals 353. Rússnesk farþega­flugvél í Egypta­landi fórst eftir að hún var sprengd í loft upp, og allir sem voru um borð, 224 að tölu, létu lífið. 

Vladímir Pútín, forseti Rússlands, og Francois Hollande, forseti Frakk­lands, hafa báðir sagt að samtökunum verði engin miskunn sýnd, og hafa heitið því að herða aðgerðir gegn samtökunum, einkum með loft­árásum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár