Ný á Alþingi og lét þingmenn heyra það

„Það sem ég kalla hins vegar eftir er að við tökum ábyrgð á emb­ætt­is­gjörðum okkar,“ sagði Sigríður María Egils­dóttir, þing­maður Við­reisnar, í fyrstu ræðu sinni á Alþingi.

Sigríður María Egils­dóttir, vara­þing­maður Við­reisnar, nýtti jóm­frú­ar­ræðu sína í ákall til Alþingis um ábyrgð og traust.

„Í nágranna­löndum okkar segja ráð­herrar af sér þegar þeir fóru með ráðu­neyt­is­síma til útlanda án þess að til­kynna það, eða því þeir höfðu ekki greitt útvarps­gjaldið þar­lendis.“

Svo hljóðar í jóm­frú­ar­ræðu Sigríðar Maríu Egils­dóttur, vara­þing­manns Við­reisnar, en hún sat sinn fyrsta þing­fund 24. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Í ræð­unni setur hún sér­staka áherslu á traust. Almenn­ingur hefur lítið traust til Alþingis og er mik­il­vægt að þjóð­kjörnir full­trúar taki ábyrgð á emb­ætt­is­gjörðum sínum, hvort sem það sé með afsögn eða ein­fald­lega með því að játa mis­tök sín. 

Alþing­is­menn hafi fundið sér íslenska þýð­ingu á orð­inu ábyrgð, þeir snúi frekar baki í vind­inn og bíði eftir að hann lægir. „En almenn­ingur vill sjá kjörna full­trúa þurfa að sæta sömu ábyrgð og hann þarf sjálfur að gera í eigin störfum.“ 

Ábyrð­gar­leysi alþing­is­manna gæti orðið til þess að almenn­ingur missi ekki bara traust á þeim, heldur einnig á regl­unum sjálfum sem alþing­is­menn setja. 

Hún lauk ræðu sinni með ákalli til Alþingis, ef þing­menn vilja end­ur­reisa traust fólks á Alþingi, þá verður fólk að taka öðru­vísi á mál­unum.

Lesa má ræðu Sigríðar hér að neðan í heild sinni.

Virðu­legi for­seti. Ég sat minn fyrsta þing­fund í gær og það er ljóst hvað er hv. þing­mönnum ofar­lega í huga þessa dag­ana, traust eða öllu heldur skortur á því. Það er kannski ekki að undra. Traust fólks til stjórn­mála­manna er í sögu­legu lág­marki. Í nágranna­löndum okkar segja ráð­herrar af sér af því að þeir fóru með ráðu­neyt­is­síma til útlanda án þess að til­kynna það eða þeir höfðu ekki greitt útvarps­gjaldið þar­lendis.

Hér á landi virð­ast hins vegar þjóð­kjörnir full­trúar geta keyrt því sem nemur 36 sinnum hring­inn í kringum landið á kostnað skatt­greið­enda, haldið þjóð­há­tíð­ar­fundi sem fara 100% fram úr kostn­að­ar­á­ætlun, orðið upp­vísir að því að brjóta lög við skipun dóm­ara án þess að svo mikið sem biðj­ast afsök­unar. Ekki mis­skilja mig þó, ég býst ekki við hóp­upp­sögnum að ræðu minni lok­inni en það er heldur ekki ætl­unin með henni.

„Hugtakið ábyrgð virð­ist hins vegar hafa tekið sér alveg sér­ís­lenskt form.“

Það sem ég kalla hins vegar eftir er að við tökum ábyrgð á emb­ætt­is­gjörðum okkar. Sú ábyrgð getur tekið sér mörg form, hvort sem það er með afsögn eða með því að játa mis­tök og sýna iðrun. Hugtakið ábyrgð virð­ist hins vegar hafa tekið sér alveg sér­ís­lenskt form. Hér hefur mynd­ast sú hefð að snúa ein­fald­lega baki í blásandi vind­inn og bíða síðan þegj­andi þar til vind­inn lægir. En almenn­ingur vill sjá kjörna full­trúa þurfa að sæta sömu ábyrgð og hann þarf sjálfur að gera í eigin störfum og end­ur­nýjað umboð er ekki hvít­þvottur. Það sýnir dvín­andi traust á Alþingi, lög­gjaf­anum sjálfum sem setur hér leik­regl­urnar, dvín­andi traust sem leiðir að lokum til þess að fólk missir traust á sjálfum regl­unum sem við reynum að setja hér.

Ef við viljum virki­lega end­ur­reisa traust fólks á Alþingi og fram­kvæmd­ar­vald­inu þurfum við að taka öðru­vísi á mál­unum. Það er ein­ungis þegar við sjálf förum að sýna starfi okkar og stöðu til­hlýði­lega virð­ingu sem við getum farið að kalla eftir trausti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár