Ekki talið hagkvæmt að reisa fleiri álver

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vill að álver rísi í Skaga­byggð. Greiningar­deild Arion banka telur að ný álver borgi sig ekki nema álverð hækki verulega næstu árin. Arður Íslendinga af raforku­framleiðslu hefur verið sára­lítill undan­farna áratugi.

Ný álver á Íslandi munu ekki borga sig nema álverð hækki umtals­vert á næstu árum. Þetta kemur fram í nýjasta markaðs­punkti greiningar­deildar Arion banka þar sem fjallað er um auðlindamál. 

Bent er á að ekkert land í heiminum fram­leiðir jafn mikla raforku og Ísland miðað við höfðatölu, en engu að síður hafi beinn arður Íslendinga af raforku­framleiðslu verið rýr. Þannig hafi stærsti raforku­fram­leiðandi landsins, Lands­virkjun, aðeins greitt ríkinu 15 milljarða í arð undan­farin 50 árin. 

„Nú er þó tækifæri til að snúa þessu við svo að eigendur þessaraauðlinda njóta beins ágóða. Eftir­spurn eftir grænni íslenskri raforku hefur líklega aldrei verið meiri og fer vaxandi,“ segir í markaðs­punkti greiningar­deildarinnar. 

Ekki hagkvæmt að reisa álver

Þá er vikið að áliðnaðinum og bent á að fyrirtæki í þeim geira séu helstu viðskipta­vinir íslenskra orku­fyrirtækja og skapi stóran hluta útflutnings­tekna landsins. Þrátt fyrir það séu ekki forsendur fyrir byggingu nýrra álvera hér á landi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár