Biðlað til fólks að halda aftur af svívirðingunum á Twitter í kvöld

Þegar sjónvarps­viðburður á borð við Óskars­verðlaunin, sem afhent verða við hátíðlega athöfn vestan hafs í nótt, á sér stað taka svívirðingar að streyma inn á samfélags­miðla þar sem „sófa­sérfræðingar“ heimsins víla ekki fyrir sér að gagnrýna útlit þeirra sem bregða fyrir á sjónvarps­skjánum. Oftar en ekki verða kvenmenn hvað harðast fyrir barðinu frá illum tungum og þá í flestum tilfellum frá kynsystrum þeirra sem finna þeim allt til foráttu.

Samfélags­miðillinn Twitter og Dove snyrtivöru­fyrirtækið hafa nú hrundið af stað átaki til að sporna gegn neikvæðri umræðu á netinu. Fyrir­tækin biðla til fólks að halda aftur af neikvæðninni í kvöld þegar Óskars­verðlauna­afhendingin fer fram og verður sérstök sjónvarps­auglýsing vegna vitundar­vakningarinnar sýnd í aðdrag­anda hátíðarinnar, þegar fræga fólkið er að ganga á rauða dreglinum. Átakið snýst ekki síst um að fólk hætti líka að skrifa af neikvæðni um útlit sitt og líkams­byggingu.

Þeir sem vilja taka þátt í átakinu og „byltingunni“ geta notað #SpeakBeautiful á samfélags­miðlum, og þá hafa Twitter og Dove ráðið til starfa hóp af sjálfs­styrkingar-sérfræðingum sem munu bregðast við neikvæðum færslum á Twitter í kvöld.

Fyrir­tækin vilja beina þeim skila­boðum til fólks að það hætti að gagnrýna fræga og fína fólkið á rauða dreglinum og það hætti sömuleiðis að hata sjálft sig fyrir að vera með appelsínuhúð. Þá ætti fólk að hætta að vera svo gagnrýnið á útlit kvenna, og einbeita sér þess í stað að hrósa þeim fyrir hæfileika þeirra, greind og styrk­leika.

Hægt er að sjá auglýsinguna frá Twitter og Dove, sem verður sýnd í tengslum við Óskars­verðlauna­afhendinguna í kvöld, hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár