Sýning sem þjóðin þarf að sjá!

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fór að sjá Súper eftir Jón Gnarr í Þjóð­leikhúsinu.

Þjóðleikhúsið: Súper

Höfundur: Jón Gnarr

Leik­stjóri: Benedikt Erlingsson

Leikmynd: Grétar Reynisson

Búningar: Fillippía I. Elís­dóttir

Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson

Hljóðmynd: Aron Þór Arnarsson

Leikendur: Arnmundur Ernst Backman, Snæfríður Ingvars­dóttir, Sólveig Arnars­dóttir, Vigdís Hrefna Páls­dóttir, Hall­grímur Ólafsson, Jón Gnarr, Edda Björgvins­dóttir, Eggert Þorleifsson.

Rétt eins og Shakespeare mun hafa sagt að öll veröldin væri leiksvið gæti Jón Gnarr hugsanlega staðhæft að allt Ísland sé kjörbúð. Súper heitir ekki aðeins í höfuðið á nýrri kjörbúð á höfuð­borgar­svæðinu, verkið gerist í kjörbúð, sem í mynd Grétars Reynis­sonar er einna líkast fangelsi sem ekki verður úr komist fyrr en fundist hefur maður sjálfur, vitund manns, tilgangur lífsins og ekki síður allt það annað sem vantar til að fullkomna þetta jarðlíf – hvort sem þar um ræðir mánaðar­skammtinn til heimilisins eins og sveitahjúin Bjössi og Gugga koma til að sækja eða pulsurnar í kósíkvöld barnanna með ömmunni eins og einstæða móðirin Elín. Nú eða þá bara drátt af því að kynhvötin reynist vera óseðjandi og það verður að taka á því. Enda eru einkunnarorð Súper: “þar sem kjöt snýst um fólk” – og mannlegra getur það varla orðið. Eða?

Við kynnumst eins konar meðal­úrtaki þjóðarinnar, sem á leið í kjör­búðina Súper til að afla sér matar og lífs­innihalds – þarna eru ungu hjónin Einar og Guðrún, leikin af Arnmundi Ernst Backman og Snæfríði Ingvars­dóttur sem eru á öndverðum meiði varðandi barn­eignir og áhuga á kynlífi, þá er hann Hannes sem býr einn með móður sinni eftir að faðir hans dó, sem varð til þess að hann gekk sjálfum sér í föður stað sem og móður sinni í eigin­manns stað, þarna er Elín sem hefur ákveðnar skoðanir á því hvers konar kynlíf hún vill og undir hlé birtast þau Bjössi og Gugga, leikin af Eddu Björgvins­dóttur og Eggerti Þorleifs­syni. Í miðpunkti kjör­búðarinnar Súper er svo að finna Kristján kaupmann sem leikinn er af höfundi sjálfum, Jóni Gnarr.

Upphaf verksins er undir sterkum áhrifum frá einum af meisturum absúrdismans, Ionesco og verki hans, Sköllóttu söng­konunni; persónur leiksins rjúfa fjórða vegginn milli sviðs og salar, tala við áhorf­endur og gera grein fyrir sjálfum sér, hverjar þær eru, hvað þær vilja og við hverju þær búast af lífinu. Eins og vænta má af jafn satírískum höfundi og Jón Gnarr er sjálfs­mynd hvers einasta karakters í tómu tjóni, en járna­bindingin er hin sama hjá öllum og tengir persónurnar: þær leggja ofuráherslu á að þær eru íslenskar og trúa og treysta á allt það sem íslenskt er. Þetta er ósvikin háðsádeila á hin íslensku, íhalds­sömu og borgara­legu gildi, þau hin sömu og ráku okkur til sjálf­stæðis á veikum grunni verslunar­frelsis án þess að litið væri til hinna andlegu gilda og æðri verðmæta – sem gætu hugsanlega veitt svör við því hvað það er sem raun­verulega tengir okkur saman sem þjóð.

Þarna er Jón Gnarr á heima­velli, hann sýnir í höfundar­verki sínu að hann er absúrdisti – og satíríker! – fram í fingurgóma. Textinn er hittinn og hnyttinn og vekur oftar en ekki hlátur sem á endanum stendur í manni af því verandi Íslend­ingur verður manni fátt um svör – enda nú eru upp runnir tímar glóbalisma, gömul og íhaldsöm gildi eiga alls ekki lengur við, tíminn löngu hlaupinn framúr okkur hvað það varðar: slagorðið gamla, sem markaði upphaf lýðræðis: frelsi, jafn­réttir og bræðralag hefur öðlast nýja merkingu þar sem einstaklingurinn einn og sjálfur en ekki samfélags­veran sem hluti af þjóð fær það verkefni að aðlaga sig að nýjum veruleika og nýjan veruleika að sér. Þessi dýnamík er kannski torskilin en Jón Gnarr er á heima­velli, hann hefur fattað djókið og gerir sér óspart mat úr því. Og séð frá hans sjónar­hóli verður það eitthvað svo út í hött, svo ámátlegt að deila um það hver munurinn sé á pólskum pylsum og íslenskum. Hvað gerir pylsu pólska? Hvað gerir hana íslenska? Hvað gerir mann að karli eða konu? Er það í lagi – eða ekki – að kona sækist eftir óheftu kynlífi á hennar eigin forsendum. Jón Gnarr er ekki einasta á heima­velli, hann er í essinu sínu og leikur af öryggi á fyrirbæri eins og þjóðar­tilfinningu, samhug þjóðar, þjóðarsál og skilning þjóðar á sjálfri sér.

Jón Gnarr er að kalla þjóðina til samtals og íhugunar og hann gerir það bara býsna vel. Það er fátt sem vekur ekki til umhugsunar hér og átaka­flöturinn er fjöl­breytilegur og marg­slunginn og texti sýningarinnar situr í manni löngu eftir að sýningu lýkur. Kannski – vonandi! – er hér á ferðinni verk sem má kalla lykil að ástandinu í Lýðveldinu Íslandi og sem slíkt lykilverk á það erindi við unga sem aldna sem mega svo vel velta því fyrir sér hvort við höfum gengið til góðs hingað til og hvert við ætlum að ganga til framtíðar og í hvaða takti. Það er ekki á hverjum degi sem færi gefst á að gera það þar sem hárbeittur húmor og vel grundaður skilningur fer saman og gefur tóninn.

Leik­stjóri og leikhópur nálgast viðfangs­efnið á ákaflega realískan máta en um leið stílíseraðan. Realískan í þeim skilningi að hvert andartak á sér rætur í raun­veruleika sem við þekkjum og hvað það varðar vottar hvergi fyrir mála­miðlunum – hér á sér stað miskunnar­laus krufning á samfélags­ástandi og hún er ýkt, gerð skýrari með því að fært er í stílinn, endur­tekið, talað hraðar, meira að segja æðibunu­lega og öllum brögðum hins óvænta húmors beitt þannig að jafnvel það sem virðist í fyrstu vera aulahúmor og við hlæjum að og teljum okkur þekkja snýst við og hláturinn stendur í okkur af því aula­húmorinn hittir okkur fyrir þar sem verst svíður.

Ádeilan verður þó aldrei grimm. Jón Gnarr er enginn Artaud, hann er umburðar­lyndari en Artaud og þykir vænna um okkur en svo að hann vilji særa okkur – það hefðu enda verið svik í þessu samhengi. Jón Gnarr er góðlát­legur gagn­rýnandi og það er frekar eins og hann vilji spyrja okkur, hvort það sé nú raun­verulega svona sem við viljum hafa hlutina? Gagnrýni borin fram af kærleik og væntumþykju – en engu að síður hárbeitt og hittin.

Leik­stjórinn Benedikt Erlingsson er ekki síður á heima­velli staddur þegar um ádeilu af þessu tagi er að ræða, enda hafa þeir Jón Gnarr iðulega unnið saman á liðnum árum og þarf ekki að fjölyrða um það. Leikstjórnarlega og reyndar leiklega líka er sýningin í óaðfinnanlegu samræmi við hugmynd og handrit.

Leik­ararnir, allir með tölu, ná að samsama sig svo fullkomlega karakterum sínum að það er eins og verkið sé skrifað ofan í þá og skýrir og stíl­hreinir búningar Fillippíu I. Elís­dóttur leyfir hverjum og einum að blómstra á sínum eigin forsendum. Hvað sem líður stílíseringu koma persónur Súper fyrir sem ekta af holdi og blóði, þær gætu verið kunningjar manns eða vinir, þær gætu verið nágranninn. Hver og ein þeirra gæti verið við sjálf!

Þessi gagnrýni birtist á síðustu stundu. Þjóð­leikhúsið hefur auglýst síðustu sýningu og við því verður ekki brugðist nema fara þess á leit að leikhúsið endur­skoði þá afstöðu – þetta er sýning, sem fleiri eiga eftir að sjá – sem þjóðin þarf að sjá!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár