Hrun Líbanons sagt ógna Evrópu

Líbanska ríkið er að hruni komið eftir röð áfalla og skot­bar­dagar sjást á götum höf­uð­borg­ar­innar í fyrsta sinn í meira en þrjá ára­tugi. Leið­togar ESB ríkj­anna ótt­ast að millj­ónir flótta­manna leggi land undir fót og stefni vestur. Efna­hags­hrun, land­læg spill­ing, risa­vaxin spreng­ing í höf­uð­borg­inni og end­ur­nýjuð átök vopn­aðra trú­ar­hópa hafa grafið undan öllum vonum Líbana um betri tíma.

Fallnir félagar heiðraðir
Fallnir félagar heiðraðir Meðlimur í Hezbollah-sam­tök­unum skýtur af byssu við jarð­ar­för þeirra sem féllu í átök­unum í Tayouneh hverfi í Beirút þann 14. októ­ber. Mynd: IBRAHIM AMRO / AFP

Það virt­ist sem ástandið gæti hrein­lega ekki orðið verra en það var í Líbanon þegar nýr for­sæt­is­ráð­herra, Najib Mikati, tók við í sept­em­ber. Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður höfðu þá tekið rúma þrettán mán­uði, allt log­aði í deilum vegna rann­sóknar á mann­skæðri spreng­ingu í Beirút í fyrra og ný stjórn stóð frammi fyrir verstu efna­hag­skreppu síðan í lok borg­ara­stríðs­ins mann­skæða í byrjun tíunda ára­tugar síð­ustu aldar. 

Mikil upp­bygg­ing átti sér stað eftir það stríð, mennt­un­ar­stigið var og er hátt miðað við mörg grann­ríki og um tíma ríkti nokkur bjart­sýni um fram­tíð Líbanons. Höf­uð­borgin, Beirút, hefur stundum verið kölluð París Mið-Aust­ur­landa. Innviðir rík­is­ins voru byggðir upp á ný með erlendri fjár­fest­ingu, ferða­manna­iðn­að­ur­inn blómstr­aði og mats­fyr­ir­tæki og alþjóða­bankar jusu lofi á hag­stjórn rík­is­ins.

Bankar lands­ins stóðu til dæmis vel af sér alþjóð­legu fjár­málakrepp­una árið 2008 þegar hluta­bréfa­mark­að­ur­inn í Líbanon óx um meira en 50%, aðeins sex önnur lönd í heim­inum gátu státað af hækkun …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár