Áhrifamestu myndirnar: Ótrúlegt haglél og hörmungar víða

Tímartið Time tók saman lista yfir tíu áhrifamestu myndir ársins 2014, ásamt því að ljós­myndararnir segja söguna að baki myndunum. Þeir eru sumir hverjir atvinnu­ljós­myndarar á meðan aðrir náðu að fanga augna­blikið fyrir tilviljun. Það gerði meðal annars tvítug stúlka í Síberíu, Nikita Dudnik, sem náði mögnuðum myndum af stór­hættulegu hagléli sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti á óvenju­heitum degi í sumar í Síberíu. Fólk sést á myndinni reyna að forða sér í skjól af baðströnd, en hún stóð sjálf undir járnbraki og myndaði.

https://www.youtube.com/watch?v=ZupxB6JKdn8

Á listanum eru líka áhrifa­miklar myndir sem náðust af hörmungar­atburðum í Afríku, þar sem ebólu­faraldur lagði líf fólks í rúst. Þá eru einnig myndir af átökum við liðsmenn Íslamska ríkisins, þar sem ljós­myndarar voru sjálfir í stórhættu með hermönnum á vettvangi, af Gaza-svæðinu og af bátum flótta­manna frá Afríku úti fyrir strönd Ítalíu.

Í listanum er síðan fræg „selfie“ mynd sem leikarinn Bradley Cooper tók á Óskars­verðlauna­hátíðinni.

TIME picks the top 10 photos of 2014 http://t.co/XlrvpVRCri Photo: Massimo Sestini—Polaris pic.twitter.com/6M0QEIw7lu

— TIME.com (@TIME) December 26, 2014

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár