Ólafur kemur fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í næstu viku

Ólafur Ólafsson mun koma fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis á mið­viku­dag.

Ólafur Ólafsson
Ólafur Ólafsson Mynd: RÚV/Skjáskot.

Ólafur Ólafsson mun koma á fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis á mið­viku­dag í næstu viku. Þetta stað­festir Jón Steindór Valdi­mars­son, fram­sögu­maður nefnd­ar­innar, við RÚV.

Fund­ur­inn verður opinn fjöl­miðlum, en nefndin ákvað það á fundi sínum í síð­ustu viku. Ólafur óskaði form­lega eftir því að mæta á fund nefnd­ar­innar vegna umfjöll­unar hennar um skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis á einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans á sínum tíma. Í erindi sínu gaf hann til kynna að hann gæti varpað frekara ljósi á mála­vexti og stutt það mál með gögnum, og því var ákveðið að leyfa honum að koma fyrir nefnd­ina.

Nefndin sem rann­sak­aði aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á stórum hlut í Bún­að­ar­bank­anum árið 2003 skil­aði skýrslu sinni 29. mars síð­ast­lið­inn. Í nið­ur­stöðum hennar segir að sann­reynt hafi verið með ítar­legum skrif­legum gögnum að Ólafur Ólafs­son, sam­starfs­menn hans, stjórn­endur hjá Kaup­þingi og nokkrir erlendir sam­starfs­menn, meðal ann­ars innan Hauck & Auf­häuser, hefðu hannað fléttu sem sett var á svið í kringum kaup­in. Í henni fólst að Kaup­þing fjár­magn­aði meint kaup Hauck & Auf­häuser á hlut í Bún­að­ar­bank­an­um, end­an­legur eig­andi þess hlutar var aflands­fé­lagið Welling & Partners á Bresku Jóm­frú­areyj­unum og bak­samn­ingar tryggðu Hauck & Auf­häuser algjört skað­leysi af aðkomu sinni. Slíkir samn­ingar tryggðu einnig að allur ávinn­ingur af flétt­unni, sem varð á end­anum yfir 100 millj­ónir dala, skipt­ist á milli aflands­fé­lags Ólafs Ólafs­sonar og aðila sem tengd­ust Kaup­þingi. Á gengi árs­ins 2005 nam sú upp­hæð 6,8 millj­örðum króna. Í dag er hún um 11 millj­arðar króna. Ekki var greint frá neinu ofan­greindu opin­ber­lega heldur því haldið fram að þýski bank­inn væri raun­veru­lega að kaupa hlut­inn og hefði fjár­magnað kaupin sjálfur. Með flétt­unni voru stjórn­völd, fjöl­miðlar og almenn­ingur blekktir.

Fjórir lyk­il­menn í mál­inu voru boð­aðir til skýrslu­töku fyrir nefnd­ina á meðan að vinnu hennar stóð, en neit­uðu að mæta. Um er að ræða Ólaf Ólafs­son, Guð­mund Hjalta­son, Hreiðar Már Sig­urðs­son og Sig­urð Ein­ars­son. Þegar rann­sókn­ar­nefndin beindi því til Hér­aðs­dóms Reykja­víkur að boða þá kröfð­ust þrír þeirra þess að dóm­ari viki sæti í mál­inu. Þeirri beiðni var hafn­að.

Þegar beiðni rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar var tekin aftur fyrir í byrjun des­em­ber 2016 báru bæði Ólafur og Guð­mundur brigður á að þeim væri skylt að svara spurn­ingum nefnd­ar­inn­ar. Þessu var hafnað af Hæsta­rétti 17. jan­úar 2017. Skýrslur voru loks teknar af mönn­unum í lok jan­úar og byrjun febr­ú­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár