Barnaspítali Hringsins óttast að verið sé að misnota nafn sitt í kynningu á Sumargleðinni

Eigendur viðburðar­fyrir­tækisins Basic House Effect sögðust ætla að halda styrktar­ball fyrir unglinga, Sumar­gleðina, þar sem ágóðinn rynni óskertur til Barna­spítala Hringsins eða Rauða krossins. Þar kannast hins vegar enginn við Sumar­gleðina. „Þetta er eitthvað skrítið,“ segir starfs­maður Barna­spítalans.

Basic House Effect
Basic House Effect Bjarni Hall­grimur Bjarna­son, einn eig­anda félags­ins, er fyrir miðju. Á mynd­ina vantar Grím. Aðrir aðilar á mynd­inni tengj­ast frétt­inni ekki að öðru leyti en að hafa spilað á skemmtun á vegum félags­ins.

Viðburðar­fyrirtækið Basic House Effect hefur í ár og í fyrra staðið fyrir grunnskóla­balli sem nefnist Sumar­gleðin. Ballið er ætlað nemendum í 8., 9. og 10. bekk og er eitt stærsta grunnskóla­ball landsins. Í ár fór ballið fram í Kapla­krika þann 11. júní.  

Í fréttum sem birtar voru um ballið og í miðasölu var því haldið fram að allur ágóði af skemmtuninni rynni óskertur til ýmist Barna­spítala Hringsins eða Rauða krossins.

Hins vegar kannast enginn hjá hvorki Barna­spítalanum né Rauða krossinum við viðburðinn, fyrir­tækið eða ábyrgðar­menn þess, Grím Óla Geirsson eða Bjarna Hallgrím Bjarnason.

Félagið lofaði fyrst árið 2012 að gefa Barna­spítala Hringsins fé. Í samtali við Stundina segir Bjarni að tap hafi verið á skemmtuninni í fyrra og því hafi ekkert verið gefið til góðgerða­mála.

„Ég kannast ekki við neitt sem heitir Sumar­gleðin.“

Rauði krossinn kannast ekki við neitt

Stundin ræddi við bæði starfs­mann og nefndar­mann góðgerða­félags Hringsins og hvorugur kannaðist við Sumar­gleðina eða þá Grím eða Bjarna. 

Stundin ræddi auk þess við Jóhönnu Guðbjarts­dóttur hjá Barna­spítalanum. „Ég kannast ekki við neitt sem heitir Sumar­gleðin. Þessir aðilar hafa aldrei gefið neitt. Þetta er eitthvað skrítið. Þetta er það sem við höfum alltaf verið hrædd um, að fólk sé að misnota logoið,“ segir Jóhanna.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár