Starbucks og Fiat skipað að endurgreiða 30 milljónir evra

Evrópu­sambandið hefur fyrir­skipað stjórn­völdum í Hollandi og Lúxemborg að endur­heimta um 30 milljónir evra, tæplega 4,5 milljarða króna, frá alþjóð­legum stór­fyrir­tækjunum Starbucks og Fiat. Ástæðan er sú að fyrir­tækin fengu ólögmæta ríkis­aðstoð frá löndunum tveimur, sem gerði þeim kleift að borga minna í skatt en þau hefðu annars þurft.


Starbucks and Fiat ordered by European Union to repay up to 30m euros received in tax breaks https://t.co/tijGgxxWTX


— BBC Breaking News (@BBCBreaking) October 21, 2015

Boðuð hefur verið víðtæk rannsókn á ríkis­styrkja­fyrir­komulagi í öllum 28 ríkjum Evrópu­sambandsins, þar sem horft verður til þess hvort alþjóðleg fyrirtæki séu að komast upp með að greiða minna í skatt en þau annars þyrftu, með tilheyrandi tekjutapi fyrir ríkis­sjóði. Þá verður einnig horft til þess hvort ríkis­styrkir geti falið í sér brot á samkeppnis­löggjöf.

Evrópu­sambandið hefur þegar byrjað rann­sóknir á viðskipta­háttum Amazon og Apple, og hvort að þau séu að koma sér undan því að greiða skatta, með ólöglegum aðferðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár