Byssumaður tekur fólk í gíslingu á kaffihúsi í Sidney

Í það minnsta einn maður vopnaður skotvopni hefur tekið gesti á kaffihúsi í gíslingu í Sidney, samkvæmt frásögn breska ríkis­útvarpsins BBC. Samkvæmt frásögn BBC standa þrír einstaklingar við glugga á kaffi­húsinu og er svartur fáni með arabísku letri í glugganum.

Mikill viðbúnaður er í borginni vegna þessa og hafa mörg hundruð lögreglu­menn hafa girt af Martin Place og nágrenni í Sidney auk þess sem vinsælir ferðamanna­staðir, eins og Óperu­húsið í Sidney, hafa verið rýmdir.

Þá hefur lofthelgi yfir Sidney einnig verið stýrt með þeim hætti, og flug­umferð er ekki leyfileg yfir borginni.

Fréttin verður uppfærð eftir því sem upplýsingar berast í gegnum stað­festar fréttir erlendra fjölmiðla.

Uppfært: Forsætis­ráðherra Ástralíu, Tony Abbott, segir að stjórn­völd séu í viðbragðs­stöðu vegna hryðjuverka­ógnar og að alþjóðlegt samstarf um að ná með sem bestum hætti utan um það sem hefur gerst sé þegar komið af stað. Þá bað hann Ástrala um að halda ró sinni, allt yrði gerð til þess að frelsa gíslana. Um 20 manns eru inn á kaffi­húsinu, Lindt Chocalet Coffee, en það er nærri ýmsum opinberum byggingum, þar á meðal skrif­stofum þingmanna og þing­húsinu sjálfu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár