Utanríkisráðherra: Ísland vill ekki gerast aðili að Evrópusambandinu

Utan­ríkis­ráðherra í ríkis­stjórn flokka sem boðuðu framhald aðildar­viðræðna við Evrópu­sambandið fyrir kosningar segir að umræðan sé „að mestu laus úr viðjum kröfunnar um aðild að Evrópu­sambandinu“. Hann fullyrðir að Ísland vilji ekki ESB-aðild.

Guðlaugur Þór Þórðarson utan­ríkis­ráðherra segir að umræðan um viðskipta­stefnu Íslands sé nú að mestu „laus úr viðjum kröfunnar um aðild að Evrópu­sambandinu“. Ísland vilji ekki aðild að Evrópu­sambandinu. 

Þetta kemur fram í skýrslu ráðherra um utanríkis- og alþjóðamál sem lögð var fram á þingi í dag. Alþingi samþykkti þings­ályktun um aðildar­umsókn að Evrópu­sambandinu árið 2009, en viðræðunum var slitið án samráðs við Alþingi á síðasta kjör­tímabili. Þetta ýtti meðal annars undir stofnun Viðreisnar, samstarfs­flokks Guðlaugs Þórs í ríkis­stjórn.

Bæði Björt framtíð og Viðreisn settu framhald aðildar­viðræðna við Evrópu­sambandið sérstak­lega á oddinn í aðdrag­anda síðustu þing­kosninga. Þeirri kröfu var hins vegar ekki fylgt eftir í stjórnar­sáttmála flokkanna við Sjálfstæðis­flokkinn. Þar skuld­binda allir þrír flokkarnir sig til að koma í veg fyrir að að þingmál um þjóðar­atkvæða­greiðslu um aðildar­viðræður við Evrópu­sambandið nái fram að ganga nema hugsanlega undir lok kjör­tímabilsins. 

„Ísland sem hefur mikla hagsmuni í Evrópu­sambandinu en vill ekki gerast aðili að því“

Í skýrslu Guðlaugs Þórs um utan­ríkismál er fjallað um stöðu Íslands í Evrópu. Þar segir meðal annars:

„Nú, þegar umræðan hér á landi um viðskipta­stefnuna er að mestu laus úr viðjum kröfunnar um aðild að Evrópu­sambandinu, er full þörf á að styrkja starf okkar innan EFTA og EES. EES-samningurinn hefur augljósa kosti fyrir ríki, eins og Ísland, sem hefur mikla hagsmuni í Evrópu­sambandinu en vill ekki gerast aðili að því. Samningurinn hefur virkað vel, bæði fyrir þau EFTA-ríki, sem eiga aðild að honum, og ESB.“

Fram kemur að nýta þurfi möguleika EES-samningsins til að hafa áhrif á mótun ákvarðana þegar þær eru á undir­búnings­stigi hjá framkvæmda­stjórn ESB og skoða betur allt ferlið þar til þær eru felldar í íslensk lög. „Samstarfið innan EFTA er grundvallar­þáttur í viðskipta­stefnu Íslands. EES-samningurinn og þátttakan í innri markaðinum gerir ekki aðeins íslenskum fyrir­tækjum kleift að stunda starfsemi sína hindrunar­laust hvarvetna á Evrópska efnahags­svæðinu heldur hefur hann einnig auðveldað Íslendingum að afla sér menntunar eða leita sér starfa í öllum ríkjum EES, auk þess sem hann opnar möguleika fyrir íslenska vísinda- og fræðimenn til að taka þátt í rannsóknar­starfsemi með samstarfs­aðilum hvaðanæva af Evrópska efnahags­svæðinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár