Auðsöfnun einstaklinga vex hraðar en nokkru sinni fyrr

Auðsöfnun einstaklinga í heiminum eykst hraðar um þessar mundir en nokkru sinni fyrr, segir í árlegri skýrslu svissneska bankans Credit Suisse um auðsöfnun í heiminum. Stór hluti þessarar miklu aukningar dreifist hins vegar lítið og fer til tiltölu­lega fárra einstaklinga.

Banda­ríkin eru sér á báti hvað þetta varðar, að því er fram kemur í skýrslu Credit Suisse. Auður einstaklinga hefur aukist mest þar og milljónamæringum, mælt í milljónum Bandaríkja­dala(Dalurinn á 112 íslenskar krónur), hefur fjölgað mest þar frá því um mitt ár 2013. Samtals hafa 1,6 milljónir einstaklinga í Banda­ríkjunum bæst í hóp þeirra sem eiga yfir eina milljón Bandaríkja­dala. Næst þar á eftir kemur Bretland en þar hafa 478 þúsund milljónamæringar bæst í hóp þeirra sem fyrir voru frá því um mitt ár í fyrra.

Helstu ástæðurnar fyrir þessari fjölgun eru fyrst og síðast skörp hækkun hluta­bréfa frá því í fyrra og á fyrri hluta þessa árs.

Í nokkrum löndum fækkað einstaklingum sem teljast til milljónamæringa, þar á meðal í Rússlandi. Þar fækkaði milljónamæringum um 12 þúsund, og í Indónesíu fækkaði þeim um fimmtán þúsund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár