Konum hleypt inn í golfklúbbinn eftir 260 ára karlaveldi

Konur hafa fengið inngöngu í einn elsta og virtasta golfklúbb í heimi, The Royal and Ancient Golf Club of St Andrews í St Andrews í Skotlandi. Frá stofnun klúbbsins árið 1754 og þangað til fyrr í þessari viku höfðu eingöngu karlar fengið að vera meðlimir í klúbbnum. Konur máttu spila golf á golf­vellinum, en máttu ekki koma inn í golf­skálann.

Í september í fyrra greiddu meðlimir klúbbsins atkvæði um það hvort leyfa ætti konum aðgang að honum, og það var samþykkt með yfir­gnæfandi meirihluta, eða 85 prósentum atkvæða.

Í tilefni af þessu voru sjö konur gerðar að heiðurs­meðlimum í klúbbnum. Sex þeirra eru þekktir golfarar og meðal bestu kven­golfara heims, og sú sjöunda er Anna prinsessa í Bretlandi.

Anna prinsessa á Ólympíu­leikunum í London árið 2012.

Anna prinsessa á Ólympíuleikunum í London árið 2012.
Anna prinsessa á Ólymp­íu­leik­unum í London árið 2012.

Laura Davies er talin besti kven­golfari Bretlands og hefur sigrað á fjöldamörgum stórmótum. Renée Powell var önnur blökku­konan til að spila á atvinnu­mannamóti, hefur keppt í yfir 250 golfmótum og varð fyrsta konan til að stýra golfvelli í Bretlandi. Belle Robertsson er talin einhver besti kven­golfari Skotlands. Lally Segard er einn fremsti kven­golfari Frakk­lands og Louise Suggs var frumkvöðull í golfi og stofnaði meðal annars LPGA, samtök atvinnu­kvengolfara í Banda­ríkjunum. Annika Sorenstam er einn fremsti golfari heimsins og sigraði á 89 mótum um allan heim áður en hún hætti keppni árið 2008 til þess að stofna akademíu og styrktar­sjóð fyrir unga golfara.

Anna prinsessa hefur mikla tengingu við Skotland og við íþrótta­hreyfinguna. Hún keppti í hesta­íþróttum á Ólympíu­leikunum í Montréal árið 1976 og á Evrópu­mótum. Hún hefur einni

„Þetta er sögulegur dagur fyrir klúbbinn og við gætum vart verið stoltari yfir því að bjóða velkomnar konur sem hafa verið virtar í golfi í mörg ár og hafa verið frábærir spilarar og meistarar. Þær eru einstak­lega góð viðbót við hóp heiðurs­meðlima okkar og verða sendi­herrar klúbbsins eins og þær hafa verið fyrir golf­íþróttina alla sína ferla,“ sagði George Macgregor, forseti klúbbsins, við tilefnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár