Torg tapaði tæplega 600 milljónum á síðasta ári

Aðal­eigandi Torgs, sem gefur meðal annars út Frétta­blaðið, segir að fyrir­tækið sé ekki til sölu. Hann segir jafnframt að tap síðasta árs hafi numið upp undir 600 milljónum króna.

Fjölmiðla­fyrirtækið Torg tapaði upp undir 600 milljónum króna á síðasta ári, að því er fram kemur í frétt Frétta­blaðsins í dag. Torg gefur út Frétta­blaðið, sem og vefmiðlana dv.is, eyjan.is, pressan.is, 433.is, hringbraut.is og frettabladid.is. Fyrir­tækið rekur enn fremur sjónvarps­stöðina Hringbraut.

Helgi Magnússon aðal­eigandi Torgs segir í samtali við Frétta­blaðið að fyrir­tækið sé ekki til sölu en fjöl­miðlar hafa á undan­förnum vikum greint frá því að boðið hafi verið í fyrir­tækið.

Hann segir að þau hafi „fengið fyrir­spurnir og óformleg tilboð í fyrir­tækið eða hluta þess frá nokkrum aðilum að undan­förnu. Þeim hugmyndum hefur öllum verið svarað neitandi og vísað frá með þeim orðum að ekkert sé til sölu hjá okkur.“

Fjármagnað með nýju hlutafé

Helgi segir við Frétta­blaðið að þeir aðilar sem rætt hafi við útgáfu­félagið Torg geri sér ljóst að bjartir tímar geti verið fram undan í þessum rekstri eftir mjög erfiða tíma vegna veiru­faraldursins.

Tap ársins 2020 hafi numið upp undir 600 milljónum króna, eins og áður segir. Hann segir að það hafi allt verið fjár­magnað með nýju hlutafé. „Nú horfir til betri vegar eftir að veiru­vandinn er hættur að hafa áhrif á tekju­öflun fyrir­tækisins og við væntum þess að hagur þess vænkist mjög við eðlilegar aðstæður í viðskipta­lífinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár