Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur saman lista yfir mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag.

  1. Mark Zuckerberg ætlar að gefa 99 prósent af hluta­bréfum sínum í Facebook á meðan að hann lifir. Þetta tilkynnti hann í opnu bréfi til nýfæddrar dóttur sinnar Max.
  2. Kona var handtekin í úthverfi Parísar í gær grunuð um tengsl við millilið við eina manninn sem hefur verið ákærður í tengslum við hryðju­verkar­árásirnar sem framdar voru í borginni í síðasta mánuði.
  3. Stjórn Yahoo er að velta því fyrir sér að selja kjarna-internet­starfsemi sína. Hún er metin á minna en núll.
  4. Rússar gætu fryst framkvæmdir á Turkish Stream gasleiðslunni í nokkur ár vegna þess að Tyrkir skutu niður rússneska herþotu.
  5. Citigroup ætlar að halda bónus­greiðslum til miðlara og annarra starfs­manna óbreyttum á milli ára, samkvæmt heimildum Bloomberg.
  6. Fjöldi fólks slasaðist eftir sprengingu í námunda við neðan­jarðar­lestarstöð í Istanbul.
  7. Evan Williams, einn stofnenda Twitter, hefur selt 1,8 milljón hluti í fyrir­tækinu. Hann fékk 47 millljónir dala, um 6,1 milljarð króna, fyrir.
  8. Banda­ríkin ætla að senda nýjan afla af sérsveitar­hermönnum til Írak til að berjast gegn ISIS þar og í Sýrlandi.
  9. Vöxtur í alþjóðlegri fram­leiðslu hét áfram að dragast saman í nóvember. Styrkur markaða í Evrópu og Banda­ríkjunum hefur þó vegið upp á móti veikingu nýmarkaða, sérstak­lega í Asíu.
  10. Brian Krzanich, forstjóri Intel, notaði leynisjóð til að ýta úr vör nýjum tölvu­flögum fyrir­tækisins.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár